Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 28
Viðtal
26 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Öflugar göngudeildir geta bætt
flæðið á spítalanum
Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Hulda útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1999, starfaði
til að byrja með á gjörgæslu á Landspítalanum og flutti svo
til Danmerkur þar sem hún starfaði einnig á gjörgæsludeild.
Hulda flutti svo aftur heim til Íslands og starfaði þá við sölu-
og markaðssetningu á lyfjum á Íslandi og lauk á sama tíma
meistaranámi frá HÍ í stjórnun og stefnumótun. „Þá vaknaði
áhugi minn á hugtakinu vinnustaðamenning, hvernig heilbrigð
og jákvæð vinnustaðamenning stuðlar að öryggi og vellíðan
starfsfólks og hefur jákvæð áhrif á árangur vinnustaða. Árið
2019 kom ég aftur á Landspítalann og réði mig þá sem verkefna-
stjóra á menntadeildinni og ári seinna 2020 var árið sem var
tileinkað hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á vegum WHO.
Landspítalinn tók þátt í því átaki sem hafði það að markmiði að efla
leiðtoga í hjúkrun. Við settum á fót leiðtogaþjálfun fyrir unga
hjúkrunarfræðinga og ljósmæður sem stóð undir formerkjum
Nightingale Challenge og stóð yfir í eitt ár. Þegar því lauk var
haldið áfram að bjóða upp á leiðtogaþjálfun á Landspítalanum
fyrir þennan hóp en með aðeins öðru sniði.“ Hulda leiddi þetta
átak og segir það hafa verið mjög gefandi og lærdómsríkt. Hún
segir að klíníkin hafi fljótlega togað í sig þegar hún hóf aftur störf
á Landspítalanum og að hún hafi flakkaði á milli deilda og þannig
kynnst bæði legudeildum og göngudeildarstarfsemi samhliða
vinnu sinni á menntadeildinni.
Fjölbreytt og áhugaverð hjúkrun
Þú tókst við starfi hjúkrunardeildarstjóra haustið 2022 en hvar
kynntist þú fyrst göngudeildarstarfsemi? „Ég kynntist henni fyrst
þegar ég vann á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma og fannst
sú starfsemi strax mjög áhugaverð og spennandi. Á göngudeild
kynnist maður sjúklingum á annan hátt og mætir þeim á þeirra
forsendum með sinn sjúkdóm. Á göngudeild eru líka gríðarleg
tækifæri í að efla þjónustu við sjúklinga til þess að þeir nái að vera
sem mest sjálfbjarga með sinn sjúkdóm. Þegar starf deildarstjóra
á göngudeild þvagfæraskurðlækninga var auglýst var ég ekki lengi
að hugsa mig. Ég hafði ekki sérþekkingu á hjúkrun sjúklinga með
þvagfæravandamál en eftir því sem ég hef kynnst þessari hjúkrun
betur finnst mér mjög gefandi að hjúkra þessum hópi sjúklinga því
hjúkrunin er fjölbreytt og áhugaverð.“
Hulda segir deildarstjórastarfið skemmtilegt, krefjandi og gefandi.
„Ég er alltaf með umbætur í huga, hvernig við getum bætt starf-
semina í þágu sjúklinganna og oft geta litlar breytingar bætt
heilmikið,“ segir hún og bætir við að hún hlakki alltaf til að mæta í
vinnuna því á deildinni starfi frábært fólk sem stundi vinnu sína af
mikilli fagmennsku og heilindum.
Leggur ríka áherslu á opin og hlý samskipti
Hverjar eru helstu áherslur þínar í starfi deildarstjóra? „Ég legg
mikla áherslu á að við vinnum ávallt út frá þörfum sjúklingsins, að
hann fái þá bestu mögulegu þjónustu til að ná bata eða lifa sem
best með sinn sjúkdóm. Skipulag og skilvirkni skiptir miklu máli
og einnig að mönnun sé nægileg. Ég legg einnig ríka áherslu á opin
og hlý samskipti við okkar skjólstæðinga og á milli starfsfólks.
Það er gríðarlega mikilvægt að okkur líði vel saman og það skilar
sér í okkar starfi. Hér vinna framúrskarandi hjúkrunarfræðingar
með mikla reynslu sem ég ber mikið traust til. Ég legg áherslu
á að þeir njóti sjálfstæðis í starfi samkvæmt verkferlum og
innan þess ramma sem starfið býður upp á og samkvæmt
gildum Landspítalans. Við erum mjög sérhæfð göngudeild, eina
göngudeild þvagfærasjúkdóma á landinu og því erum við leiðtogar
í þessari grein. Fagfólk, innan sem utan spítalans, getur leitað til
okkar þegar á þarf að halda og fengið ráðleggingar og aðstoð. Það
er stefna okkar að miðla þekkingu og færni.“
Einstaklingsmiðuð hjúkrun
Hulda segir að starfsemi göngudeilda sé frábrugðin annarri
starfsemi deilda að því leyti að þar fari fram mikil sérhæfing:
„Þegar hjúkrunin er orðin svona sérhæfð eins og á minni deild
krefst hún dýpri þekkingar og meira innsæis í sjúkdóminn sem
eykur svo gæði hjúkrunarstarfsins að mínu mati,“ segir hún og
bætir við að meðferð á göngudeildum hafi ávallt það að markmiði
að hjálpa sjúklingum að vera sem mest sjálfbjarga með sinn
sjúkdóm í sínu daglega lífi. „Við mætum sjúklingunum á þeirra
forsendum og veitum ávallt einstaklingsmiðaða hjúkrun. Við
útskrift setjum við mál viðkomandi í traustan farveg og tryggjum
eftirfylgni. Heimaþjónusta til sjúklinga er tryggð og auk þess er
mikilvægt að þeir fái réttar hjúkrunarvörur til að hafa heima hjá
sér fyrir alla umhirðu. Við erum með bókanir þannig að sjúklingar
Göngudeild þvagfæraskurðlækninga er einstök, þar fer fram öflug starfsemi og framþróun í meðferð sem
hefur leitt til þess að legudögum sjúklinga hefur fækkað. Hulda Pálsdóttir er hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild
þvagfæraskurðlækninga, sem í daglegu tali er kölluð deild 11A. Hún er einstaklega jákvæð, segir að fjölbreytni
í meðferðarúrræðum fyrir sjúklingahóp deildarinnar hafi aukist og að öflugar göngudeildir geti bætt flæðið
á spítalanum. Við fengum Huldu í viðtal um starfsemi deildarinnar en byrjuðum á því að spyrja hana
hvar hún hafi starfað áður.
Hulda Pálsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild þvagfæraskurðlækninga