Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 18
Viðtal
16 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
starfsfólks og fjölskyldur þeirra þá létum við þetta ganga upp. Svo
mikill samtakamáttur. Við búum vel að starfsfólki hvað það varðar.
En svo er Covid að „klárast“ og þá komu eldgosin – við klárum eitt
og þá kemur bara ný áskorun. Það er endalaust hægt að finna
verkefni – eða maður þarf ekki að leita – þau koma til manns.
Það hefur verið mikið um að vera á Suðurnesjunum
undanfarið, hvernig hefur álagið verið?
Deildin er eiginlega búin að að vera í viðbragðsstöðu on/off frá
því það byrjaði að gjósa. Við erum búin að fá til okkar margt
fólk sem hefur verið að slasa sig þegar það hefur verið að
ganga upp að gosinu, með öndunarerfiðleika, ofkælingu og allt
mögulegt. Það var alveg áskorun því þá vorum við enn þá á gömlu
bráðamóttökunni. Það virtist fylgjast að, að þegar það var fínt
„gönguveður“ þá sáum við aukningu hjá okkur. Þá fundum við
alveg fyrir því að það voru fleiri að leita til okkar. Svo þann 10.
nóvember sl. þegar Grindavík var rýmd þá fengum við til okkar
flesta skjólstæðinga frá Víðihlíð. Þeir byrjuðu á því að fara á nokkra
staði en langflestir komu á endanum hingað. Það er náttúrlega
yfirfullt alls staðar og lítið pláss á hjúkrunarheimilum í kringum
okkur. Þannig að við erum núna með á annarri hæðinni hjá okkur
30 skjólstæðinga bæði þá sem voru í Víðihlíð og svo einnig nokkra
sem eru á bið eftir hjúkrunarheimili. Við vorum búin að opna hérna
10 rúma deild fyrir þá einstaklinga en nú eru þeir eins og segir
orðnir 30. Við gerum ráð fyrir því að við munum vera á þessum
stað í einhvern tíma, þ.e. heimilisfólk Víðihlíðar er ekki að fara til
baka ekki á næstunni og það vantar mjög mikið hjúkrunarrými hér
á svæðinu.
Fylgdi þá mönnun með frá Víðihlíð?
Já, svona að mestu leyti, það var náttúrlega eitthvað af fólki sem
fékk ekki húsnæði hér á svæðinu og þurfi að fara annað og gat
eðlilega ekki stundað vinnu hér. En langstærsti hópurinn kom
hingað sem gerði okkur kleift að taka þetta verkefni að okkur því
mönnunin sem var fyrir hefði ekki dugað.
Við vorum einnig að opna nýja og stórglæsilega 19 rúma sjúkra-
deild í október 2023 sem hefur mikið að segja fyrir stofnunina
og hjálpar okkur á bráðamóttökunni mikið þar sem við þurfum
minna að senda skjólstæðinga okkar á LSH þegar flæði á þeirri
deild er meira.
Heilbrigðisstarfsfólk er viðbúið ýmsu en býst
kannski ekki við að jörðin opnist í eða við byggð,
hvernig var það?
Við erum með neyðaráætlun og viðbúnaðarstig og eigum þetta
allt til og höfum æft með tilliti til flugslysa og annarra stórslysa en
það var dálítið öðruvísi með jarðskjálftana þó að áætlun hafi verið
til. Sérstaklega í tengslum við þætti eins og þegar Grindavík var
rýmd 10. nóvember þá var svolítið óljóst á hvaða stigi við værum
sem stofnun. Og svo þegar það gaus núna síðast og það fór af allur
hiti og rafmagnið datt út þá náttúrlega þurfti að bregðast við því
og á sama tíma og við vorum að reyna að finna út úr því hvernig
ætti að sjá um stofnunina. Þá hafði fólk líka áhyggjur af sínum
eignum og fjölskyldum. Svo komst hiti á en þá var spurningin hvað
gerist ef það verður viðvarandi rafmagnsleysi og heitavatnslaust.
Þá þurfa örugglega margir að fara úr bænum. Og þó að við sem
stofnun séum í góðu lagi þá er ekki víst að það sé allt í góðu hjá
starfsfólkinu okkar ef það þarf að fara með fjölskyldurnar sínar
eitthvað annað. Við áttum í góðum samskiptum við aðrar stofnanir
ef það hefði þurft að koma til rýmingar hjá okkur. Fólk var bara
boðið og búið að hjálpa.
Við erum komin með kennslustjóra hjúkrunar og það hafa verið
miklar bætingar eins og í tengslum við æfingar og slíkt. Við erum
með æfingabúnað sem við höfum nýverið fengið. Þannig að við
getum hent í æfingar á bráðamóttökunni sem starfsfólk hefur lengi
kallað eftir til að viðhalda færni. Þetta er nauðsynlegur þáttur í
okkar starfi og einnig á þessum tímapunkti hjá okkur þar sem við
höfum bætt við okkur miklum búnaði og tækjum sem starfsfólk
hefur þurft að læra á.
Hafa hjúkrunarfræðingar á deildinni bætt við sig
námi í bráðahjúkrun?
Það hafa a.m.k. fjórir klárað diploma í bráðahjúkrun og
tveir eru með meistarapróf í bráðahjúkrun. Ég veit að tveir
hjúkrunarfræðingar eru svo að skoða möguleika sína til að verða
sérfræðingar.
Hver er þín framtíðarsýn fyrir bráðahjúkrun á
landsbyggðinni?
Ég myndi vilja efla bráðahjúkrun á landsbyggðinni. Það er er
kannski hægara sagt en gert þegar þú er með takmarkaða
hjúkrunar- og læknamönnun. Það er hægt að gera svo ótrúlega
margt án þess að þurfa að fara á Landspítalann. Landspítalinn ætti
nánast að vera fyrir algjöra sérhæfingu þannig að fólk sé ekki að
koma með minni háttar vandamál þar inn. Við erum oft að senda
mjög veikt fólk á Landspítalann sem við getum ekki sinnt meira
vegna þess að við erum ekki með sérhæfinguna. Landspítalinn er
með sérþekkinguna og meiri úrræði en við. Þannig finnst mér að
þetta eigi að virka.
Endurmenntun starfsfólks á landsbyggðinni er svo takmörkuð. Þú
hefur ekki tækifæri til að sækja alla endurmenntun. Landspítalinn
er með fullt af endurmenntun fyrir sitt fólk. Það mætti útfæra það
svolítið þegar þú ert með minni stofnanir sem hafa ekki tækifæri
og bjargráð til að fara í þessa vinnu; geta nýtt það sem er verið að
gera á Landspítalanum fyrir starfsfólk annars staðar. Fólk kemst
t.d. ekki frá vegna þess að það er enginn til að leysa það af. Eftir
allt sem er búið að fara í gegnum í Covid þar sem allt var meira og
minna rafrænt og hægt að gera á netinu í gegnum fjarfundabúnað
og annað þá ættum við að vinna svolítið með það, svo fleiri geti
nýtt sér þá reynslu sem er til. Það er algjör óþarfi að hver stofnun
sé að finna upp hjólið.
Fólk kallar mikið eftir endurmenntun, annars staðnar það bara í
starfi. Það vill bæta við sig þekkingu. Við erum búin að koma því í
gegn að allir hjúkrunarfræðingar í fastri vinnu á bráðamóttökunni
sem hafa starfað í tvö ár fara á ALS námskeið. Áður var það
þannig að fólk var að fara á eigin kostnað og var þá minna um
að fólk væri að fara og einnig að viðhalda skírteininu sínu. Við
erum með bráðateymi fyrir stofnunina og þurfum að hlaupa í
alls konar aðstæður, fara upp á fæðingardeild, sjúkradeild og
heilsugæsluna. Erum einnig með greiningarsveit sem er fyrsta
sveit á vettvang í stórslysum. Í þessari greiningarsveit eru nánast
allir hjúkrunarfræðingar á bráðamóttökunni.
Stofnunin er í miklum vexti og verið er að vinna að aukinni fag-
mennsku – auka boðleiðir og bæta samfellu og gæði í þjónustunni.
Einnig er verið að vinna mikið í gæðamálum á stofnuninni og
erum við komin með gæðastjóra sem hefur unnið mikið í þessum
málum. Við erum að vinna að gæðahandbók fyrir stofnunina
sem er ótrúlega gott. Við höfum haft aðgang að gæðahandbók
Landspítala sem hefur oft reynst okkur vel og við getað nýtt okkur
í starfi. Eins og áður sagði þá er kominn kennslustjóri hjúkrunar