Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 88
Ritrýnd grein | Peer review
Tímalengd föstu og undirbúningur aðgerðar
hjá 67 ára og eldri á Landspítala vegna
mjaðmabrots: Lýsandi afturvirk rannsókn
ÚTDRÁTTUR
Tilgangur
Áætlað er að 18% kvenna og 6% karla mjaðmabrotni á efri árum.
Mjaðmabrot geta orsakað mikla færniskerðingu og breytingu á högum
eldra fólks. Fasta fyrir skurðaðgerð er nauðsynlegur undirbúningur
aðgerðar en rannsóknir hafa sýnt að föstutími er of langur og bið eftir
að komast í aðgerð er að lengjast. Mikilvægt er að huga að næringu
hjá eldra fólki fyrir aðgerð til að koma í veg fyrir fylgikvilla. Tilgangur
rannsóknarinnar var að greina hvernig undirbúningi og föstu var háttað hjá
67 ára og eldri sem mjaðmabrotnuðu og fóru í aðgerð á Landspítala árið
2021. Einnig að skoða hvaða meðferðir voru veittar á biðtíma eftir aðgerð
og hvort mismunur væri milli aldurshópa á veittum meðferðum og hvaða
þættir tengjast lengd föstu á tæra drykki.
Aðferð
Megindleg afturvirk gagnarannsókn, þar sem gögn um sjúklinga 67 ára
og eldri, sem mjaðmabrotnuðu og fóru í aðgerð á Landspítala á tímabilinu
1. janúar til 30. júní 2021 voru greind.
Niðurstöður
Sjúklingar voru 144 talsins, meðalaldur var 82,1 ár (sf ±8,18). Biðtími eftir
aðgerð var að meðaltali 30 klst. (sf ±19,6) og meðalföstutími var 13 klst.
(sf ± 5,21). Vegna ófyrirséðra aðstæðna þurftu 40% að fasta tvo daga í röð.
Fjörutíu prósent höfðu óráðseinkenni fyrir aðgerð sem voru algengari
hjá ≥80 ára (n=83) miðað við þá sem voru ≤79 ára (n=61) p=0,038. Mat
á næringarástandi var framkvæmt hjá 14,6% sjúklinga fyrir aðgerð en
skráningu var oft ábótavant. Aðhvarfsgreining sýndi að lengri fasta á tæra
drykki fyrir aðgerð tengdist meiri notum á næringardrykkjum og að hærri
aldur dró úr lengd föstu (p=0,001).
Ályktun
Stytta þarf föstutíma þessa hóps fyrir aðgerð. Leggja þarf áherslu á að
stytta biðtíma eftir aðgerð til að koma í veg fyrir fylgikvilla hjá eldra fólki
sem mjaðmabrotnar. Huga þarf betur að næringu, líkamlegri, félagslegri
og andlegri virkni á biðtíma til að auka vellíðan og fyrirbyggja fylgikvilla í
kjölfar aðgerðar. Leggja þarf áherslu á að bæta hjúkrunarskráningu.
Lykilorð
Fasta, eldra fólk, mjaðmabrot, hrumleiki, næring, óráð.
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
Nýjungar: Rannsóknin sýnir að biðtími
eftir mjaðmabrotsaðgerð er að lengjast og
að sjúklingarnir eru hafðir óþarflega lengi
fastandi þrátt fyrir verklagsreglur um föstu.
Hagnýting: Hjúkrunarfræðingar og
annað heilbrigðisstarfsfólk getur nýtt
niðurstöðurnar til að fylgja betur þeim
verklagsreglum sem gilda um föstu fyrir
skurðaðgerð og leggja meiri áherslu á
líkamlega, félagslega og andlega virkni og
næringu í undirbúningi fyrir aðgerð.
Þekking: Rannsóknin staðfestir að tími
sem sjúklingar fasta er of langur og of lítil
áhersla er lögð á að gefa eldra fólki sem bíður
aðgerðar vegna mjaðmabrots næringu á
biðtíma.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Hjúkrunarfræðingar þurfa að vinna markvisst
eftir gildandi verklagsreglum.
doi: 10.33112/th.100.1.5