Mímir - 01.04.1962, Blaðsíða 26

Mímir - 01.04.1962, Blaðsíða 26
lenzkukennslu í gagnfræðastigsskólum er að gera nemendur sem hæfasta til að beita móð- urmálinu, jafnt í ræðu sem riti, auðga orða- forða þeirra, skerpa skilning þeirra á réttri og rangri meðferð tungunnar, kynna þeim íslenzkar úrvalsbókmenntir að fornu og nýju og glæða bókmenntasmekk þeirra. Kennslunni ber að baga í samræmi við þennan megin- tilgang, en minni áherzla skal lögð á ýmsan fróðleik um málið, er lítt eða ekki stuðlar að því að ná framangreindu markmiði“, (Menntamál XXXIV. (1961), 307—308). Þetta þykir mér mjög skynsamleg stefnu- skrá, og ég get ekki betur séð en í niðurlags- orðunum sé liógværlega vikið að því atriði, sem ég drap á áðan, að allt of mikill tírni ís- lenzkukennara fer í ófrjótt stagl. Margir þeirra þráast við að troða inn í unglingana ýmsum vísindum, sem naumast eru í samræmi við ) ^ talmálið, eins og það er nú hjá þorra þjóðar- innar. Vill það þá verða út undan, sem mest er um vert, að auðga orðaforða nemendanna og glæða málkennd þeirra, en þörfin fyrir þetta verður æ brýnni, eftir því sem slangur- mál og enskuslettur ná meiri tökum á æsk- unni. Með bættum aðferðum og endurskoðuðu námsefni mætti vafalaust fá mjög aukinn tíma til að sinna þessum verkefnum. Það er ekki nóg að gcra tillögur um að auka bók- menntalestur; til þess að svo geti orðið, þarf að draga mjög úr þeim tíma, sem varið er til málfræði- og stafsetningarkennslu. Kétt er þó að hafa það í huga, að aukinn bókinennta- lestur er tilgangslítill, nema breytt sé mjög um kennsluaðferðir, og er það mál rætt nokkuð í fyrrnefndri grein Oskars Halldórs- sonar. Ég hef þegar tekið frain, að ég tel brýna þörf nýrra kennslubóka í málfræði, þar sein efnið sé tekið öðrum tökum í nánari tengslum við lifandi mál. Þeir, sem semja þær bækur, mættu gjarna bafa í huga þessa setningu, sem ég sá nýlega í enskri handbók fyrir kennara: „It is always desirable to present linguistic material in situations that are real and me- aningful to tbe learner“. í margnefndri álykt- un er lagt til, að dregið sé úr kennslu í setn- ingafræði og kommusetningu, og er það gleði- fregn. Þar er einnig lagt til, að gerðar verði rannsóknir á tíðni orða og stafsetningar- kennsla fyrst og fremst miðuð við algengustu orð og orðmyndir. Það er satt að segja furðu- legt, að þetta skuli ekki hafa verið tekið upp fyrir löngu. Einnig er boðuö endurskoðun á stafsetningarreglum, og ætla ég að leyfa mér að ræða það mál lítið eitt. Stafsetningin hefur löngum verið allvið- kvæmt mál, og er ég ekki í vafa uni, að mikill fjöldi manna mun telja það hina mestu goðgá að breyta nokkuð núgildandi stafsetningu. Það er auðvitað rétt, að breytingar á staf- setningu liafa ætíð ýmsa erfiöleika í för með sér, en svo gallað getur stafsetningarkerfi þó verið, að ávinningurinn við að breyta því skyggi algerlega á gallana, og svo liygg ég, að bér sé báttað. Það er nú orðið flestum Ijóst, að ekki er hægt að fylgja framburði í einu og öllu. En liann hlýtur þó að vera sá grundvöllur, sem stafsetningin byggist á, þótt uppruni og rit- befð eigi um leið að vera sú kjölfesta, sem heldur benni í jafnvægi. Það er alkunna, að tilraun Konráðs Gíslasonar til að færa staf- setninguna nær framburði mistókst, en af þeim mistökum má ýmislegt læra, og þegar tillit er tekið til þeirra framfara, sem orðið bafa í bljóðfræði og hljóÖungafræði á seinni árum, er augljóst, að hægt er að færa íslenzka stafsetningu miklu nær framburði en nú er. Það er viðurkennt, að stafsetningin getur far- ið mjög nærri því að vera fónemísk í málum, sem breytast liægt eins og íslenzkan. Einn erfiður þrándur er þó í götu staf- setningarbreytinga, en það er sá illi draugur vaninn, sem tröllríður Islendingum ekki síður en öðrum þjóðum. Markinu verður því sjálf- sagt ekki náð nema í áföngum. Ég ætla nú að drepa á helztu röksemdir, sem ég bef heyrt gegn breytingum á núverandi stafsetningu. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.