Mímir - 01.06.2007, Page 53
Annað vandamál skapast þegar ekkert orð er
sýnilegt í setningunni sem talan getur átt við.
Annaðhvort er orðið þá í næstu setningu á und-
an eða það hreinlega vantar:
(13) a. Á síðustu leiktíð lék hann 22 (tuttugu og
tvo (þf.kk.)) af 26 leikjum (þgf.kk.) liðsins í
deildinni [...] (mbl.is 14.7.2004a).
b. I dag var svo enn 43 (fjörutíu og þriggja
(ef.kk.)) saknað (mbl.is23.6.2004a).
I (13a) gæti tölva átt erfitt með að fmna nafn-
orðið sem talan stendur með. Talan á við orð-
myndina leiki en ekki þá mynd sem gefm er upp
í setningunni. Talan er í þolfalli en nafnorðið í
þágufalli þar sem forsetningin af stýrir því. í
(13b) vantar alveg nafnorðið sem talan á við og
því erfitt að sjá í hvaða falli hún á að vera. Þar
er nóg að vita að talan á að vera í eignarfalli þar
sem priggja er eins í eignarfalli í öllum kynjum
en það liggur þó ekki í augum uppi. Tölvan þarf
að vita að saknað stýrir eignarfalli og það getur
flækt málið. Ef 41 væri saknað þyrfti svo að vera
ljóst hvort það væri jjörutm og eins eða jjörutíu
og einnar sem væri saknað.
Enn eitt vandamál skapast þegar nafnorðið
sem talan stendur með er skammstöfun þannig
að ekki er hægt að sjá fall orðsins:
(14) Það þýði um 3 ma.kr. (þriggja milljarða
króna) samdrátt í tekjum m.v. útflutnings-
verðmæti þorsks árið 2003 (mbl.is 22.6.
2004a).
Hér þarf bæði að lesa úr tölunni og skamm-
stöfuninni. Talan beygist eftir orðinu milljarð-
ur sem er skammstafað og er erfitt fyrir
tölvukerfi að lesa úr skammstöfuninni. Jafnvel
þó að orðalisti yfir skammstafanir væri íyrir
hendi þyrfti einnig að ákvarða fall orðsins og þá
fyrst væri hægt að ákvarða fall tölunnar.
Einn flokkur frumtalna er til sérstakra vand-
ræða en það er flokkur prósentutalna. I sumum
tilfellum standa prósentutölur með orðum eins
og prósent eða prósentustig og þar sambeygjast
tölurnar nafnorðunum prósent og prósentustig
eins og við er að búast en í langflestum tilvik-
um standa prósentutölur með prósentutákninu
%. Þetta tákn stendur fyrir orðið prósent og
beygist eins og nafnorðið:
(15) a. Nú hefur póstfyrirtækið hins vegar skipt
um skoðun eins og fyrr segir og ákveðið að
selja 33% (þrjátíu og þriggja prósenta) hlut
í Postbank ... (mbl.is 22.6.2004b).
b. Samkvæmt nýja fyrirkomulaginu verða
33% (þrjátíu og þrjú prósent) seld í formi
hlutafjár, en 16,9% í formi skuldabréfa
(mbl.is 22.6.2004b).
I dæmunum hér að ofan líta tölurnar nákvæm-
lega eins út, 33%, en eru bornar fram á gerólík-
an hátt. I (15a) eru talan og nafnorðið í
eignarfalli og hvorugkyni en í (15b) er fallið
nefnifall. I máli margra beygist % ekki og eru
þá talan og merkið höfð í nefnifalli eða þolfalli.
Þannig myndu margir segjaprjátíu ogprjúpró-
sent hlut í (15a) en hins vegar mælir Islensk
málstöð ekki með því að prósent sé óbeygt (ís-
lensk málstöð 2005) og því er vafamál eftir
hverju skal farið. Þó er hægt að greina kynið þar
sem prósent er alltaf í hvorugkyni en tölvukerfi
getur ekki greint fallið sjálfkrafa.
Þrátt fyrir þessi vandamál var hægt að búa til
reglur sem réðu við að hafa flestar talnanna rét-
tar. Við athugun á flokknum aldur kom t.d. í
ljós að í hvert sinn sem einhver orðmyndanna
árs, ára, mánaða eða vikna kom á eftir tölustaf
var talan í eignarfalli (eins, tveggja,þriggja,fjög-
urra) og því kyni sem nafnorðið á við:
(16) a. Ríkissaksóknari hefur ákært 22 (tuttugu og
tveggja) ára gamlan karlmann fyrir stór-
fellda líkamsárás [...] (mbl.is 10.6.2004c).
b. Kjörstjórn Norður-Somersetsýslu gaf út
kosningaskírteini í nafni Jamie Gribbon og
kom hann á kjörstað í Maltlands-miðstöð-
inni í fylgd 31 (þrjátíu og eins) árs ein-
stæðrar móður sinnar, Sue Palmer, en var
vísað frá (mbl.is 10.6.2004e).