Mímir - 01.06.2007, Page 63
anlegt (47). Hálfdán vissi ekki að orðið kven-
mannsnár væri haft yfir lík og það af Obbu.
Með þessu nöturlega orði sem Baldur sendir
vinnumann sinn með sést berlega virðingarleysi
hans gagnvart tilfinningum Hálfdáns og þar
með annarra smælingja.
3. í rússíbana með köflótt ullarteppi og
langa reykjarpípu
Merkisberi hins „góða“ í sögunni er Friðrik en
ólíkt Baldri er hann ekki allur þar sem hann er
séður. I fyrstu kynnist lesandi Friðriki út frá
samtali hans við Hálfdán og þegar sögumaður
segir frá námsárum hans í Kaupmannahöfn.
Ytri lýsingar á honum koma síðar en þá er líkt
og sjálfur leynilögreglumaðurinn Sherlock
Holmes sé mættur á sviðið:
I farþegahópnum var hávaxinn ungur maður.
Hann hafði brúnköflótt ullarteppi á öxlum,
steingráan harðkúluhatt á höfði, og langa
reykjarpípu í munni. (59)
Þessi og önnur lýsing á evrópskum klæðnaði
hans: „í síðbuxum og jakka, með síðbæronska
slaufu um hálsinn", ber vitni um spekingslegan
og jafnvel sérlundaðan heimsmann sem sker sig
verulega úr hópnum (49). Þá ályktun má einnig
draga af þeirri vitneskju sem þegar hefúr kom-
ið fram um heimsmanninn Friðrik. Hann er
titlaður grasafræðingur sem hefúr tengst heims-
borginni en velur síðan að búa einn í afdölum
með hinni fötluðu Öbbu. I upphafi var ætlun
hans að koma til Islands til að ganga frá dánar-
búi foreldra sinna og hverfa síðan aftur til sæl-
unnar í Kaupmannahöfn. Hann breytir þessari
stefnu snögglega þegar hann, undir áhrifum
vímuefna, verður vitni að ömurlegum aðstæð-
um Öbbu. Við þá sýn brestur hann í grát,
kúvendir lífi sínu og flytur með Öbbu á æsku-
stöðvar sínar.
Sögumaður lýsir Friðriki sem einlægum og
viðkvæmum manni. Af viðmóti hans og samtali
við Hálfdán að dæma er hann trúr og tryggur
vinur sem er góður heim að sækja. Hann ræðir
við Hálfdán sem jafningja og býður honum te
að drekka. Af samtali þeirra má ráða að Friðriki
er í nöp við séra Baldur eftir að hann rak Obbu
úr kirkjunni. Enginn af kirkjugestum í Daln-
um stóð með Öbbu svo að Friðrik hættir líka
að umgangast þá og verður jafn utangarðs og
hún. Sagt er að Dalamenn hafi hlegið að Friðriki
og Öbbu þegar þau voru að gróðursetja tré í
litla skikanum sínum við Brekku.
Síðar í sögunni, eftir að Abba er látin, er
sagt að Friðrik leiki á klerkinn þegar hann tek-
ur sjálfur að sér greftrun hennar. Ástæðurnar
eru tvær, annars vegar óbeit hans á Baldri og
hins vegar ástand kirkjugarðsins. Sögumaður
beitir írónískum og gróteskum frásagnarhætti í
lýsingum sínum á kirkjugarðinum í Botni sem
er sagður fara bókstaflega á flot í vorleysingum.
Þá „kreistist úr kirkjugarðinum út í ána“ og „allt
er þar soðið og í einum graut, tennur og rófu-
bein, tær og fingur, rasskinnar hér, mjaðma-
grind úr konu þar, hryggsúla frá þessari öld,
karlmannsístra frá þeirri næstliðnu" (76).
Það er engin furða að Friðrik velur Obbu
annan og betri legstað. Nákvæmar lýsingar af
vandvirkni hans við að búa um lík hennar sýna
einskæran söknuð hans. Oft eru tilfinningar
Friðriks í brennidepli en skýrast lætur sögu-
maðurinn þær koma fram við kveðjuathöfnina.
Þar er sagt að hann fari með fallegt frumsamið
ljóð sem er í anda Öbbu. Friðrik er einmana og
grætur. Það má hins vegar velta fyrir sér hvort
hann hafi ekki líka á þessu augnabliki horfst í
augu við sitt aumkunarverða líf.
Er hann sáttur við sjálfan sig? Sagan gefur
tilefni til að svara þessari spurningu neitandi.
Vitað er að Friðrik hélt til Danmerkur til náms.
1 stað þess að stunda námið hellti hann sér út í
svallsamt líferni stórborgarinnar með tilheyr-
andi vímugjöfúm. Afleiðingarnar leyna sér ekki
því að þegar litið er til baka má greina sterka
þrá hans eftir sálarró. Þessi þrá hans kemur
61