Mímir - 01.06.2007, Síða 126
Starfsár Mímis 2006—2007
Mímir hefur haft í nógu að snúast þetta starfsár
og varla hefur liðið vika án þess að neitt hafi verið
á döfinni. Félagið á sér margar hefðir og hefur
núverandi stjórn fylgt þessum hefðum til hins
ýtrasta auk þess að brydda upp á nýjungum.
Haustönn
Þegar í upphafi starfsársins sýndi Mímir að
hann er vel sterkur og íþróttamaður mikill,
spakur að viti og hermaður hinn mesti, þegar
íslenskunemar afrekuðu að verða Háskóla-
meistarar í fótbolta, geri aðrir betur. Ljóst er að
afrek þessi verða lengi í minnum höfð og frægð
Mímis mun fara víða um lönd, munnlega, skrif-
lega og jafnvel með hugsanaflutningi.
I upphafi haustannar var sem endranær
blásið til ferskmennagöngu þar sem nýnemar
voru boðnir velkomnir og þeir kynntir fyrir há-
skólasvæðinu og starfsemi félagsins. Eldri nem-
ar slógust svo í hópinn og flestir fengu sér í aðra
tána — sumir jafnvel ögn meira en það.
Vísindaferðir eru auðgandi iðkan fyrir hvern
háskólanema og eru íslenskunemar engin und-
antekning þar á. Á haustönn heimsóttum við
Landsbankann, Landsvirkjun og Olgerð Egils
Skallagrímssonar og vísindaleg niðurstaða
heimsóknanna er að þær hafi verið hin besta
skemmtun. Þessar ferðir hafa í vetur endað á
Celtic Cross þar sem hersveitir íslenskra fræða
hafa skeggrætt um framburðinn á nafni öldur-
hússins milli þess sem mjöðurinn var teygaður.
Haustferð var, eins og nafnið gefur til
kynna, farin að hausti og var án efa ein magn-
aðasta skemmtun haustannar. Langferðabifreið
ferjaði íslenskunema á Stokkseyri þar sem
skoðuð voru ljón, gíraffar, antilópur og fleiri
furðuverur en því næst var haldið bjórboltamót
í knattspyrnu. Þar var stelpum stillt upp gegn
strákum og munnlegar heimildir eru fyrir því
að þær fyrrnefndu hafi farið með sigur af hólmi.
Strákaliðið hefur þó bent á að munnlegar heim-
ildir eru jafnan ekki jafntraustar og skriflegar
auk þess sem leikurinn hafi verið jafnjafn og
hefðbundinn jafnteflisleikur framan af „þótt
stelpurnar hafi ef til vill náð ögn betri uppskeru
í blálokin,“ eins og einhver sagði. Eftir öll þessi
átök var haldið á Fjöruborðið þar sem dýrindis
humarsúpa var snædd og prýðisgott hvítvín
sötrað með. Langferðabifreiðin góða skilaði
hópnum aftur til Reykjavíkur og gleðin hélt
áfram fram undir morgun í stórgóðu teiti hjá
Önnu Leu.
Októberfest sló í gegn hjá íslenskunemum
og mátti sjá marga af sjaldséðari meðlimum
Mímis sveifla ölkrúsum á þeirri skemmtun.
Eins og aðrir háskólanemar hreiðruðum við um
okkur á langborði í októberfestartjaldinu góða
og skáluðum að þýskum sið.
124