Mímir - 01.06.2007, Blaðsíða 127
Hugvísindaþing skall á í nóvember með
áhugaverðum fyrirlestrum um allt milli himins
og jarðar og íslenskunemar létu sig ekki vanta á
fræðahlaðborðið. Rannsóknaræfmg að hausti
batt endahnútinn á þingið og þangað mætti
Mímir að sjálfsögðu til að blanda geði við ýmsa
sprenglærða fræðimenn sér til gagns og gam-
ans.
Mímir hefur sinnt menningarlegum hugðar-
efnum sínum af kappi á skólaárinu enda hefiir
hann, auk þess að sökkva sér í Hugvísinda-
þing, heimsótt bæði Þjóðminjasafnið og Þjóð-
menningarhúsið. I Þjóðmenningarhúsinu böð-
uðum við okkur í dulúðugri nærveru handritanna
og fræddumst um handrit og handritagerð en
spreyttum okkur svo sjálf á því að skrásetja eigin
speki á skinn.
Kraptakvöldið tók næst við. Þar átum við
osta og vín og sungum í kór í kofa niður við sjó
í bandbrjálaðri íslenskri norðanátt. Sigga Sigur-
jóns mætti og tók við heiðursviðurkenningu
Mímis, Ondinni, og hélt bráðskemmtilega
ræðu um ættir anda. Þar voru raktar kenningar
sem jafnvel gætu tengt Öndina sjálfa við Andrés
önd og hans fjölskyldu. Anton flutti ávarp ný-
nemafulltrúa og er það talið vera lengsta íslenska
ræða sem flutt hefur verið án sagnorða. Arn-
grímur skáld Vídalín stýrði svo ferskeyttum
gjörningi þar sem íslenskunemar botnuðu vís-
ur af mikilli elju meðan óveðrið hélt áfram að
dynja á þakinu fyrir ofan okkur.
Fáir hátíðisdagar eru í meira uppáhaldi hjá
Mími en dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember,
og af því tilefni var spurningakeppni á Stúdenta-
kjallaranum með íslensku ívafi. Spurninga-
keppnin var þó aðeins ofurlítill forsmekkur að því
sem í kjölfarið fylgdi en daginn eftir gerðist nokk-
uð sem fróðir menn hafa nefnt „menningar-
viðburð ársins“. Þá hélt Mímir upp á 60 ára
afmælið sitt með tilheyrandi ræðuhaldi, söng
og skemmtun. Eiríkur Rögnvaldsson stýrði
veislunni af harðfylgi og rak hver hápunkturinn
annan. Mímisliðar á öllum aldri rifjuðu upp
sögur úr starfi hins merka og fræga félags og
flatkakna, samlokna, brennivíns og annars góð-
gætis var neytt. Dansinn dunaði svo fram á nótt
og vafðist engum hugur um að afmælisnefnd
Mímis hefði skipulagt frábæra veislu en nefnd-
ina skipuðu Álfdís, Sigrún og Svanhvít. Meðal
gesta í veislunni má nefna Snorra Sturluson,
Jónas Hallgrímsson, Ferdinand de Saussure og
Guðrúnu Ósvífursdóttur.
Haustönn lauk með próflokateiti hjá Antoni
þar sem ölið flæddi um allt og stiginn var dans
sem teygði sig jafnvel upp á borð og stóla þegar
gamanið stóð sem hæst.
Vorönn
Eftir áramót var haldið áfram á braut öflugra
skemmtana og ber þar fyrst að nefna vísinda-
ferðir sem um þetta leyti urðu tengdari náminu
okkar. Fyrsta vísindaferðin var farin í Reykja-
víkurAkademíuna þar sem Viðar Hreinsson
framkvæmdastjóri Akademíunnar fræddi okk-
ur um störf fræðimanna þar, í íslenskum fræð-
um og öðrum. Eftir þessa skemmtilegu
heimsókn fengum við okkur óíslenskan mat
sem ekki getur talist í líkingu við hefðir
mammna okkar og ammna á pitsnastað í nánd
íslenskra ijarna þar sem sjórinn tekur við af
Reykjavík. Þetta er nefnt hér því að þarna
kviknaði hugmyndin að Mímisþingi og verður
nánar sagt frá því von bráðar.
125