Mímir - 01.06.2007, Blaðsíða 128
Aðrar vísindaferðir haustannar voru í Vífil-
fell, Eddu útgáfu og þýðingarfyrirtækið Skjal.
Allar vísindaferðir eru ánægjulegar en Mímir
hefur sérstaklega gaman af því að geta heimsótt
vinnustaði þar sem íslenskuíræðingar starfa og
þótti því stórgott að fá tækifæri til að fræðast
um útgáfustörf og þýðingar.
Mímir stóð fyrir bjórkvöldi á Celtic Cross
26. janúar og þar voru ýmsar undarlegar aðferð-
ir notaðar til að krydda bjórdrykkjutæknina.
Steini skemmtanastjóri setti fram leikreglur um
drykkju sem urðu með aðstoð annarra viðstaddra
flóknari eftir því sem á leið. Þetta kvöld kynnt-
umst við einnig Arndísi sjálfri.
Þorrablót Mímis gekk í garð í allri sinni
dýrð 3. febrúar. Boðið var upp á hákarl, hangi-
kjöt, hrútspunga, rófustöppu og allt tilheyrandi.
Hápunktur kvöldsins var án efa æsispennandi
glímukeppni þar sem glímukóngi síðasta árs var
velt úr sessi í hörkuspennandi lokabaráttu.
Steini var krýndur glímukóngur Mímis 2007.
Árshátíðin okkar var svo haldin þann 9.
mars í salarkynnum ReykjavíkurAkademíunnar
og var þá ger veisla mikil. Herlegheitin hófust í
heimahúsum eins og vera ber en Þóra Lind tók
á móti nýnemum og Sigrún hélt fyrirteiti eldri
nema, hvort tveggja við góðan orðstír.
Svanhvít stýrði veislunni og fór hún fram
samkvæmt hefð. Halla Sif formaður ávarpaði
samkomuna í fullum herldæðum, Svavar og
Egill skipuðu vítanefnd sem vítti fólk fyrir það
sem ámælisvert getur talist, Álfdís flutti minni
karla og Arngrímur minni kvenna. Nýkiýndur
glímukóngur Mímis skoraði á margfaldan Is-
landsmeistara í glímu og háði æsispennandi
viðureign sem reyndar endaði með sigri ís-
landsmeistarans. Við borðuðum gómsætar
steikur frá Rauðará, drukkum dýrindis veigar
og héldum loks á sameiginlegan dansleik Hug-
vísindadeildar í Sunnusal. Árshátíðin var væg-
ast sagt ógleymanleg skemmtun.
Mímir bryddaði upp á nýjung í starfi sínu
þann 16. mars þegar Mímisþing var haldið. Við
mættum í þriðja sinn á þessu skólaári í Reykja-
víkurAkademíuna sem bauðst til að hýsa þingið.
Fjöldi nemenda, kennara og annarra gesta kom
á þetta glæsilega málþing nemenda í íslenskum
fræðum og hlýddi á níu fyrirlestra um málfræði
og bókmenntir. Líflegar og skemmtilegar um-
ræður spunnust í kjölfar allra fyrirlestranna og
var almenn ánægja með hversu fjölbreytileg við-
fangsefnin voru. Þarna komu saman íslenskar
bókmenntir allt frá Völuspá til atómskálda og
málfræðin teygði sig frá íslenskri málstefnu,
þágufallshneigð og fornafnanotkunar til ný-
tískulegra tölvumálvísinda svo dæmi séu nefnd.
Atli Freyr og Sigrún skipulögðu þingið ásamt
stjórn Mímis.
Lokahnykkurinn á góðu starfsári var svo
söguleg menningarferð helgina 30. mars til 1.
apríl en þá skelltum við okkur austur í Suður-
sveit, nánar tiltekið á Þórbergssetrið á Hala. Þar
fræddi Soffía Auður okkur um meistara Þór-
berg, við fórum í feikigóða gönguferð og stafa-
ratleik, borðuðum góðan mat og mættum
yndislegu viðmóti bústýrunnar og manns henn-
ar. Þar mætti okkur eitt fallegasta fjall í heimi
sem vakti áður óþekktar, rómantískar og ljóð-
rænar kenndir í hugum okkar og við fórum í
heitt bað í fiskikari. Þjóðsöngurinn var sung-
inn, drykkjuleikir iðkaðir og að sjálfsögðu var
einnig glímt enda er glíma eitt helsta áhugamál
Mímis. Þá drýgði hinn listelski Svavar náttúru-
gjörning þar sem nýju fötin keisarans komu við
126