Úrval - 01.12.1979, Blaðsíða 22
20
ÚRVAL
7. Löghelgað og auðfengið kynlíf.
8. Fjölskyldustofnun.
9. Viðurkenning á því að á nýju
heimili okkar séu eða geti verið
(komið) fleiri en maki minn sem eiga
heimtingu á forgangstilliti svo sem
börn mtn, foreidrar og gamalgrónir
vinir.
10. Að taka við „fjölskyldupakka”
(tengdafólki, stjúpbörnum), ekki
bara maka.
11. Mitt eigið heimili, athvarf og
skjól.
12. Virðuleg staða og stétt.
13. Að skapa, með félaga mínum,
fjárhagslega og/eða félagslega
einingu.
14. Að eiga allt umlykjandi ímynd
sem örvar okkur bæði til að vinna,
byggja, skapa.
15. Viðurkennda rás fyrir athafna-
þörf mína — allt sem ég geri er líka
fyrir fólkið mitt.
II. hluti:
Væntingar sem sþrottnar eru af innri
þörfum mínum
Sálrænar og líkamlegar hvatir eru
órjúfandi hluti af innsta kjarna hvers
og eins, og sennilega er ennþá
erfiðara að gera sér sjálfsgagnrýna
hugmynd um þessi atriði heldur en
þau sem minnst er á í fyrsta hluta. En
jafnvel þótt þú gerir þér ekki grein
fyrir tilfinningum þínum varðandi
sumt af þessu, muntu komast að því
að svörin taka að myndast ef þú veltir
spurningunum einlæglega fyrir þér:
1. Sjálfstæði/ósjálfstæði:
Hve fær er ég að sjá um sjálfa/n
mig og njóta mín sem einstaklingur?
Þarf ég á maka mínum að halda til að
fullkomna mitt eigið sjálf, eða hrinda
því af stað sem ég er ekki einfær um
að stofna til?
Finnst mér að ég geti ekki komist
af án maka míns (eða maka
almennt?)
Er gildismat mitt á sjálfri/sjálfum
mér komið undir því hvernig maki
minn umgengst mig og tilfinningum
hans til mín?
Bíð ég eftir því að maki minn fitji
upp á áætlunum/nýjungum?
Reiði ég mig á að maki minn móti
smekk okkar, lífsmáta, atferli?
2. Virkni/óvirkni:
Hve mikið þrái ég og hversu fær er
ég um að gera það sem ég tel mig
langa að gera?
Get ég verið virk/ur í raunveru-
leikanum jafnt sem í hugarheimi
mínum?
Ef ég er óvirk/ur, ber ég þá gremju
í garð virks maka? Beiti ég neitunar-
valdi án þess að stinga upp á mála-
miðlun, svo dæmi sé nefnt?
3. Nánd/firrð:
Á ég stöðugt örðugara með að
afhjúpa tilfinningar mínar, hugsanir
og gerðir fyrir félaga mínum, eða finn
ég til einlægari nálægðar við hann?
Voga ég að afhjúpa veikleika
(ágalla) í skapgerð eða vitsmunum
svo sem barnalega hegðun, þekkingar
(menntunar) skort?