Úrval - 01.12.1979, Page 77

Úrval - 01.12.1979, Page 77
75 FRÁ ElRJKlJÁRNHRYGG unda dægri birti upp, og hafði Eiríkur sig þá á kreik, lagði byrði sína á bakið og náði til bæjar í Skriðdal á áliðnum degi. Ég man ekki, að hvaða bæ hann kom, en þar bjó þá ekkja nokkur, sem þekkti Eirík, viidi svo til, að hún var að sjóða slátur. Eiríkur lagði af sér byrðina, þegar til bæjar kom og gekk rakleiðis inn í eldhús til húsfreyju, heilsaði henni og beiddi hana að gefa sér að borða, kvaðst nú vera svangur. Hún tekur tinfat, er rúma mundi nær átta mörkum og fyllir af soði og slátri, fylgir síðan Eiríki til baðstofu og fær honum fatið, en Eiríkur tæmir á lítilli stundu; hún innir hann eftir, hvort hann vilji meira, og játti hann því, lætur hún þá í fatið aftur lungu, niðursneiddan blóðmör og fleira, og borðar Eiríkur það einnig vonum bráðar, en er hann hefur lokið því, segir hann: ,,Nú væri gott að hafa eitthvað til að væta sér á eftir.” Hús- freyja sækir þá í þriðja sinn í fatinu skyrhræring og mjólk út á og setur á kné Eiríki, en hann hættir eigi, fyrr en hann hefur lokið úr fatinu, réttir það að húsfreyju, þakkar henni fyrir matinn og bætir við: „Þetta er sú besta saðning, sem ég hef fengið á ævi minni, því að nú var ég orðinn svangur.” Að því búnu hallar hann sér aftur á bak um þvert rúm og sofnar vært. Svaf hann þar í öllum vosklæðum af fram undir dag morguninn eftir, hélt þá af stað með byrði sína og heim að Hofteigi, en það er mjög löng leið. Ekki er þess getið, að honum yrði neitt meint af saðningu sinni í Skriðdalnum. Það var eitt sumar á útengjaslætti, að binda skyldi heim hey af engjum í Hofteigi, engjar voru skammt frá túni og stuttar milliferðir, en reitt á þrem hestum. Eiríkur batt, með einni eða tveimur vinnukonum, en prestur tók á móti og hlóð úr; annað fólk var að þurrka hey og raka upp í sæti, því að þerrir var góður. Af því að stutt var að flytja og reipi mörg, gengu milliferðir svo greitt, að Eiríkur hafði ekki undan að binda fyrir á hestana, prestur var ákafa- maður við verk sitt og þótt honum seint ganga heybandið hjá Eiríki, gerði honum orð á engjarnar að hraða svo bandinu, að milliferðarmaður þyrfti ekki að bíða lengur en meðan látið væri upp á hestana. Eiríkur þóttist hafa ærinn eril, þótt ekki færi hann hraðara, tók hann það ráð að stækka bandið, svo sem reipin tóku, vissi hann að presti mundi ekki auð- hlaupið að því, að snara sátunum upp í heyið, er það tæki að hækka. Þegar prestur fann, að bandið var orðið lítt viðráðanlegt og varla klyftækt, reiddist hann Eiríki, hljóp út á engjar til hans og atyrti hann fyrir hey- bandið, Eiríkur svaraði engu, en hélt áfram bandinu, prestur þrífur þá reipi, sem Eiríkur hafði lagt niður og ætlaði að fara að setja á, slær til hans svo að hagldirnar komu í herðar eða bak honum. Þar var kelda eða bleyta í mýrinni. Eiríkur þykktist við, greip reipsilana um leið og hann fékk
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.