Úrval - 01.12.1979, Side 78
76
URVAL
höggið, og kippti svo hart í, að
prestur hraut ofan í mýrina eða
kelduna og vöknaði mjög, en er
prestur stóð upp aftur, segir Eiríkur:
„Þér var nær að vera heima, Fúsi.”
— Skildi svo með þeim.
Eiríkur var ávallt beitarhúsasmali á
vetrum í Hofteigi og stóð yfir sauðum
allan daginn. Fór hann, eins og siður
er, snemma á morgnana að heiman,
og kom heim aftur, þegar dimmt var
orðið á kvöldin.
Einn vetur var hann léður frá
Hofteigi fyrir sauðasmala að
Aðalbóli í Hrafnkelsdal. Þar bjó þá
ekkja, er Anna hét, fyrirvinna hjá
henni var þá Stefán Ölafsson sterki úr
Húsavík, mikill maður og sterkur,
hann kvæntist ekkjunni síðar. Stefán
var heima við á daginn og hirti gripi
þá, er heima voru. Það hafði farist
fyrir hjá Stefáni að moka hesthúsið
nógu oft, og hafði safnast fyrir svo
mikið undan hestunum, að þá tók
nærri heima í ræfrinu. Eiríkur var
allan daginn við beitarhúsin og
kom seint heim á kvöldin. Eiríki
þótti daufleg vistin á Aðalbóli og
þóttist þar hafa orðið fegnastur mat
sínum, eins og Grettir á Reykhólum,
enda sagði hann svo sjálfur frá, að
húsfreyja hefði haldið öllu til Stefáns,
sem bæði var í tilhugalífi við hana og
heima á daginn, fannst Eiríki, að
Stefán ætti of gott í samanburði við
sig, en hefði þó öllu léttari störf og
hægri, og fékk hann af þessu óvild
nokkra til Stefáns, þótti hann og um
of húsbóndaríkur á heimilinu. Þá var
það eitt kvöld um veturinn, er Eiríkur
var kominn heim frá beitarhúsunum,
að Stefán skipar Eiríki að moka hest-
húsið morguninn eftir, áður en hann
færi í beitarhúsin, en Eiríkur tók lítt í
það, en segir á þá leið, að Stefán
muni ekki annað þarfara vinna
sjálfur. Hefur Stefán þá í heitingum
við hann, og svo líður nóttin.
Morguninn eftir fer Eiríkur að vanda
snemma til beitarhúsanna og var
Stefán þá eigi risinn úr rekkju. Um
kvöldið tekur hann með sér taðpoka
heim. Hafði hann pokann á bakinu í
bandi og bmgðið lykkju fram fyrir
höfuð sér að haida í, ófærð var
nokkur og fannir sums staðar, þegar
heim kom að bænum, lá leið Eiríks
fram hjá hesthúsinu, en dimmt var
orðið, og er hann gengur fram hjá
hsthúsdyrunum veit hann ekki fyrri
til en Stefán snarast út úr hesthúsinu,
að honum og rekur hnefann svo hart
á nasir Eiríki, að blóð féll um hann
allan. Eiríkur reiðist, fleygir
lykkjunni yfír höfuð sér, svo hann
verður laus við byrðina og ræðst á
Stefán, varð þar harður aðgangur, en
svo lauk, að Eiríkur hafði Stefán
undir og hélt honum föstum í skafl-
inum og lét blæða úr sér í andlit
honum, þar til honum hætti að
blæða. Lét hann þá Stefán loks upp
standa, og fór sjálfur heim til bæjar.
Ekki lagði Stefán neitt til Eiríks upp
frá því, hvorki ill né gott, að hann
sagði.
Þegar Eiríkur var vinnumaður á
Hallormsstað hjá síra Gunnlaugi, var