Úrval - 01.12.1979, Page 90

Úrval - 01.12.1979, Page 90
88 ÚRVAL áttavitalaus. Ég þrýsti á fjarskipta- hnappinn og kallaði: „Charlie Delta, Charlie Delta kallarNorth Beveland flugturn ...” Ég þagnaði. Það var tilgangslaust að halda áfram. I staðinn fyrir líflega truflanabresti og skíra rödd sjálfs mín í heyrnartækjunum heyrði ég aðeins dauft muldurí súrefnisgrímunni. Það sem ég var að segja heyrðist hvergi. Ég reyndi aftur, með sama árangri. Langt til baka, handan við svart og kalt flæmi Norðursjávarins sátu mennirnir í hiýjum, björtum flug- turninum í North Beveland, spjölluðu saman og dreyptu á rjúkandi kaffi eða kókói. Þeir heyrðu ekki i mér. Talstöðin var dauð. Síðasta úrræðið Loftið er mjög einmanalegur staður, ekki síst loftið á kaldri vetrar- nóttu. Vampíru-þotan min, með aðeins einu sæti, var einmanalegt híbýli, lítill stálkassi, sem stuttir vængir héldu á lofti. Hún geystist gegnum frosið loftið fyrir krafti eld- spúandi hólks sem þrýsti frá sér loftinu með 6000 hestafla orku á sekúndu. Ég barðist við að kæfa örvæntinguna. sem er flugmanninum skaðvænni en nokkuð annað. Ég renndi niður munnvatni mínu og taldi hægt upp að tíu. Svo stillti ég talstöðina yfir á rás F, en ekkert heyrðist annað en stöðugur hvinur- inn í hreyflinum fyrir aftan mig. Það hafði tekið konunglega flug- herinn tvö ár að þjálfa mig til að fljúga herflugvélum hans. Mikill hluti þess ríma hafði farið í fræðslu um hvernig bregðast skyldi við í neyðartilfellum. Það sem mestu máli skipti, sögðu þeir oftí flugskólanum, er ekki það að kunna að fljúga undir bestu skilyrðum, heldur það að kunna að fljúga þegar syrti í álinn og koma lifandi úr því. Nú reyndi á þá þjálfun. Jafnhliða því að ég prófaði rásirnar á talstöðinni eina eftir aðra, lét ég augun hvarfla yfir mælaborðið fyrir framan mig. Mælarnir sögðu sína sögu. Einhvers staðar undir fótum mér, í öllum þeim skara af mislitum vírum sem er hið eiginlega æðakerfí flugvélarinnar, hafði öryggi sprungið Ég minntist þess að okkar gamli, góði flugliðþjálfí, Norris, hafði sagt okkur að það fyrsta sem bæri að gera við þessar aðstæður, væri að draga úr flughraðanum til að fá hámarks flugþol vélarinnar fram. ,,Við megum ekki sóa dýrmætu eldsneyti,” sagði hann. ,,Við kunnum að þurfa á því að halda síðar. Svo við drögum úr flug- hraðanum.” Ég dró eidsneytisgjöfína að mér og fylgdist með snúnings- hraðamælinum. Hann er knúinn sínum eigin rafal svo ég hafði að minnsta kosti ekki misst hann. Ég beið þar til hreyfillinn var kominn í 7200 sn/mín. og fann að þotan hægði flugið. Aðalmælarnir framan við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.