Úrval - 01.12.1979, Side 92

Úrval - 01.12.1979, Side 92
90 ÚRVAL En undir mér var hið allra versta, öldu- þungur og miskunnarlaus Norður- sjðrin, sem beið þess að gleypa mig og flugvéiina mína og grafa okkur að eilífu í votri, svartri gröf. Og enginn myndi nokkru sinni vita það. I 15 þúsund feta hæð og lækkandi fór að renna upp fyrir mér, að nýr óvinur hafði bæst í raðirnar móti mér. Langt í burtu, til hægri og vinstri, fram undan og vafalítið aftur undan líka, blikaði tunglsljósið á flatt og endalaust svart haf. Austur-Anglíu- þokan var komin. Meðan ég flaug í vestlæga átt frá Þýskalandi hafði myndast ofurlítil gola, sem veðurfræðingarnir höfðu ekki séð fyrir. Þessi gola flutti belti af hlýrra lofti af Norðursjó inn á sléttur Austur-Anglíu. Þegar það kom í snertingu við ískalda jörðina, þéttuðust milljarðar rakaagna í sjávar- loftinu og mynduðu þá tegund þoku, sem getur á hálfri klukkustund lagst eins og breiða yfir heila fjórðunga. Ég hafði enga hugmynd um hve langt vestur hún teygðist, kannski til vestur-Miðlandanna, og kannski lagðist hún upp að austurhlíðum Pennínafjallanna. Það kom ekki til grein að reyna að fljúga yfir þokuna til vesturs þar til yfir hana kæmi, án nauðsynlegra tækja og talsambands- laus hlyti ég að villast yfir ókunnugu landsvæði. Það kom heldur ekki til greina að snúa aftur til Hollands og lenda á einhverri af flugbraumm hollenska flughersins meðfram strönd- inni, ul þess hafði ég einfaldlega ekki bensín. Eins og komið var fyrir mér var ekki um annað að ræða heldur en lenda á Merriam St. George eða farast í flaki Vampírunnar einhvers staðar í þokuhjúpuðum fenjum Norfolk. I tíu þúsund feta hæð hætti ég að lækka flugið og jók eldsneytisgjöfina um hársbreidd til þess að halda mér á lofti, I huga mér ómuðu fyrirmæli Norris flugliðþjálfa: , ,Þegar við erum gersamlega villtir, herrar mínir, yfír þokubakka eða órofnum skýjaflóka, hljótum við að hugleiða möguleikann á að varpa okkur út í fallhlíf. ’ ’ Vitaskuld\ liðþjálfi. Því miður er Vampíran illræmd að því leyti, að það má heita ógerlegt að varpa sér út úr henni. Nokkuð fleira, liðþjálfi? ,,Það fyrsta sem við gerum, þess vegna, er að beina flugvélinni út yfir opið haf, frá öllu þéttbýli. ’' Úrræðin voru öll fyrirfram hugsuð. Nema hvað enginn hafði nefnt að möguleikarflugmanns, sem bærðist á öldum Norðursjávarins á kaldri vetrarnótt, voru innan við einn á móti hundrað fyrir því að honum tækist að tóraí hálftíma. ,,Þá er það síðasta úrræðið, herrar mínir, sem ekki er notað fyrr en í ítrustu nauðir rekur. Þetta er betra, liðþjálfi. Ég fæ ekki betur séð en að ég sé nú í ítrustu nauðum staddur. ,,Ö11 loftför, sem nálgast strendur Bretlands, koma fram á radar skerm- um í viðvörunarkerfum þjóðarinnar. Ef við höfum þannig misst fjarskipta-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.