Úrval - 01.12.1979, Blaðsíða 109
106
ÚRVAL
<BÍMBa&
: >
Prófessor Romasjof við hjarta-
uppskurð — hann gerir stundum
5-6 uppskurði á dag.
hundruð og þúsundir ára? Hvers
vegna að taka lyf, ef hunang getur
gert það sama?
Romasjof hefúr raunar ritað bók,
sem nefnist: Hvernig hægt er að lifa
án lyfja. Og ég komst að því síðar, að
heima hjá sér á hann fullar hillur af
flöskum með ýmiss konar grasaseyði,
og mestu af jurtunum hefur hann
safnað sjálfur.
Kona hans hefur það að gaman-
málum: „Fjodor iðkar jóga á hverjum
morgni og jórtrar gras á kvöldin. ’ ’
Jafnvel á skrifstofu sinni á sjúkra-
húsinu geymir hann krukku með
hunangi og aðra með grasatei.
Læknir kemur inn. ,,Prófessor X er
kominn með lungnabólgu og háan
hita.”
,,Við skulum llta á hann,” segir
Romasjof.
Fáum mínútum síðar kemur hann
úr sjúkravitjuninni með hópa af
læknum og hjúkrunarkonur í för með
sér og segir: „Dýfið laki í kalt vatn,
vefjið því utan um hann og breiðið
síðan yfir hann þykkt teppi.
Hann sér undrun mína og brosir:
„Heldurðu að ég sé orðinn vitlaus?
Það er ég ekki. Hann verður bráðum
miklu betri. Við eigum að nota allt,
BETRA ER AD FYRIRBYGGJA EN SKERA
107
sem hefur áhrif: Grös, nálarstungu-
aðferðina, lyflækningar, skurðaðgerð-
ir — jóga — nýta alla þekkingu for-
feðraokkar.”
Starfsbræður hans segja, að hann
geti greint sjúkdóm með því að horfa
í augu sjúklingsins, eða telja
æðaslögin ....
Nú var skurðstofan tilbúinn fyrir
hann, og hann hvarf aftur á braut.
Að því loknu þurfti hann að flytja
fyrirlestur við háskólann, inna af
höndum ýmis skyldustörf, eiga fund
með hóp af læknum frá Kúbu og
fara síðan á umræðufundinn um
kóleruna.
Hann fullvissaði mig um, að
fundurinn yrði athyglisverður, og
hann varð það.
Hann var haldinn að frumkvæði
Vísindafélags stúdenta, og stúdentar
frá Indlandi, Afríku og Kúbu tóku
þáttí honum.
Romasjof hlustaði með athygli og
ég var að velta því fyrir mér, hvort
hann vissi eins mikið um kóleru og
hjartaskurðlækningar.
Á eftir sagði hann við mig: ,,Ég
trúi ekki á þrönga sérhæfingu. Ég get
ekki skilið lækni, sem aðeins er tauga-
sérfræðingur eða einhver annar sér-
fræðingur. Getur skurðlæknir ekki
gert neitt annað en að skera upp
menn?”
Hann þagði andartak og hélt svo
áfram: „Hlutverk okkar skurð-
læknanna er takmarkað. Allt sem við
gerum er að skera burt einhverja smá-
bita.”
,,Við skerum burtu graftrarkýli en
gleymum, að það er hróp líkamans á
hjálp. Við fjarlægjum það, en skiljum
orsökina eftir. ”
„Góður læknir er ekki sá sem sker
eða læknar heldur sá sem upprætir
orsök sj úkdómsins. ” ★
Auglýsing í blaði á Sussex á Englandi: „Tannlæknir óskar eftir
aðstoðarstúlku undir eins. Hringið í síma XXX. Ef enginn svarar er
staðan ennþá laus. Financial Times, London.