Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 33

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 33
því miður er ég alveg blaunk, en ég vona að ég geti einhverntíman gert eitthvað fyrir þig slsku Anna mín. Ég get ekkert sagt þér af Djó því hann hefur ekkert komið. Páll kom ekki heldur síð- ustu helgi, hann var að vinna, Freddy kom og einhver strákur með honum sem ég man ekki hvað heitir og Meihjú og annar strákur komu seinna um kvöldið, Bj örg og Rúna voru að slá sér upp með þeim, Björg var með Meihjú en Rúna með hinum, þær skemtu sér prýðilega báðar voru þær vel hálfar, eins og við öll vorum. Á sunnudaginn kom Lauga hingað út til að tala við Meihjú, en hann vildi ekkert við hana tala, ég fðr að segja Laugu frá því að ég ætt deit við sjóliða um kvöldið (hann heitir Art) en það er Lauga sem kjafta öllu í Freddy, hún sagði honum að ég vildi ekki sjá hann meira því ég væri alltaf með Art og síðast þegar hann hefði komið hefði hann verið hjá mér til sex um morgunin, Freddy spurði hana hvort hún gæti svarið að þett væri satt og hún gerði það eins og skot, Freddy bað mig um að hringja fyrir sig í bíl því hann hefði ekkert hér að gera, ég bað hann um að trúa þessu ekki því þetta væri allt saman líi en hann hrint mér bara frá sér og sagði að það þídd ekker fyrir mig að tala við sig meir, hann sagð að það hefði verið gott að hann hefð séð það svona fljótt hvernig ég væri, ég lagðist upp í dívan og talaði ekki við einn einasta mann, Óla fór út og hringdi á bíl fyrir þá, mér þótt þetta first voða leiðinlegt en ég jafnaði mig fljótlega aftur, og hugsaði með mér að það væri bezt að slá þessu öllu upp í kæruleysi, og fara í bæinn og skenmta mér vel, og ég gerði það líka ég fór með rútunni kl. 8V2, og það fyrsta sem ég sá þegar ég kom niður á Borg var Freddy og Meihjú að tala við einhverjar stelpur, ég skifti mér ekkert af þeim lét sem ég þekti þá ekki, ég fékk mér bíl og fór beint niður að skipi og náði í Art, við fórum hingað ........ og hann var hjá mér til 7 í morgun, Framhald á bls. 175. BÁLKUR Ormur Ólafsson er fæddur 10. apríl 1918 á ICaldaðar- nesi í Mýr- dal, Skaft- fellingur að ætt. Hann leggur fyrir sig dýra hætti og nær oft góðum árangri. Hann hefur áður kveðið sér hljóðs í Vinnunni og verkalýðn- um. Btndum málið Ijóðalags lijgum sálarglœður hryndum táli bræður brags byrjum skálaraður. Vakan hljóða átti óð œskurjóðar kinnar. Stakan góða lista Ijóð, lifgjöf þjóðar minnar. VINNAN og verkalýðurinn 175

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.