Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 11
sjórafélaginu í Vestmannaeyj-
um, verkalýðsfélaginu í Bolungavík,
Félagi járniðnaðarmanna í Reykjavík,
Þrótti og Hreyfli og víðar.
Hinsvegar sýna dæmin frá Hlíf í
Hafnarfirði, Verkalýðs- og sjómanna-
félaginu á Ólafsfirði, hvernig bróður-
leg samvinna sjálfstæðisverkamanna
og sósíalista getur þróast.
Alþýðusambandskosningamar sýndu
ennfremur nýja og þýðingarmikla
hlið í baráttunni um samtökin:
Allsherjaratkvæðagreiðsla sem að-
ferð er ekki lengur einhlítt vopn í
höndum ríkisstjórnarliðsins, heldur er
hún að snúast í höndum þess.
Það er fróðlegt að athuga heildar-
úrshtin í Reykjavík, en þau eru á
þessa leið: Á félagsfundum fengu
sameiningarmenn samanlagt ca. 700
atkvæði, en ríkisstjómarliðið ca. 420.
Hér eru taldir með fundarmenn þar
sem sjálfkjörið var: Skjaldborg,
Freyja, Nót, Fél. ísl. rafvirkja, Fóstra
og Fél starfsfólks í veitingahúsum. í
allsherjaratkvæðagreiðslum fengu
sameiningarmenn ca. 740 atkvæði, en
ríkisstjórnarliðið ca. 810.
í fundarkosningu fengu sameining-
armenn því um 280 atkvæði framyfir,
en í allsherjaratkvæðagreiðslunum
vantaði þá um 70 atkvæði. Samanlagt
fengu sameiningarmenn ca. 1440 at-
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna Mc Granery hefir sem kunnugt er ný-
lega lagt svo fyrir að hinn heimsfrægi kvikmyndaleikari og filmlistamaður
Charlie Chaplin skuli framvegis ekki hafa dvalarleyfi í landinu. En haplin
hafði tekið sér far á hendur til Evrópu til að vera viðstaddur fyrstu Csýningu
sinnar nýjustu kvikmyndar. Hann er sakaður um „kommúnisma‘“.
I þessu ljósi sér skopteiknarinn Jefimov móttökumar þegar Chaplin kemur
aftur heim í Iand frelsisstyttunnar.
VINNAN og verkalýðurinn
153