Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 42
ars getur hún hreyít sig úr stað með 250 metra hraða á klst. og gengur þá
á stálvöltum eða meiðum.
Undirstöður vélarinnar eru með sérstökum vökvaþrýstiútbúnaði. — Áhöfn
vélarinnar eru 5 menn ,en unnið er allan sólarhringinn í 8 klst. vöktum og
þarf þessvegna að hafa þrefaldan mannskap eða 15 menn og 2 að auki sem
ekki ganga á vaktir, eða alls 17 menn.
Vélin getur grafið meira en 3000 rúmm. á sólarhring og vinnur að jafnaði
á við 7000 verkamenn. Nú hafa verið smíðaðar margar slíkar vélar í Sovét-
ríkjunum.
Nýlega hafa verið smíðaðar leðjudælur sem hvíla á flekum og geta dælt upp
1000 rúmm. af sandi og leir á klst. allt að 17 metrum undir vatnsyfirborði.
Vélaorkan er 7000 kw.
Með opnum Lenínskurðins fyrir skipaumferð er lokið fyrsta þætti í hinum
stórkostlegum framkvæmdum sem eiga að vera grundvöllur að framkvæmd
kommúnismans í Sovétríkjunum. Þessar framkvæmdir hófust með plöntun
skjólskógabeltanna árið 1948. Því starfi á að vera lokið á 10 árum. Ennþá
stórkostlegri vatnsorkuver og áveitur og ræktun eyðimerkurlandssvæða
eru á döfinni.
Verið er að reisa orkuver við Kúbiséf sem á að hafa 2 millj. kw. afl og
framleiða 10 milljarða kwh. á ári og Stalíngradorkuverið sem verður 1,7 millj.
kw. og framleiðir einnngi 10 miljarða kwh. á ári. Byrjað er á Túrkomenskurð-
inum. Stórkostlegasta af þessum framkvæmda verður þó Ob-fenissejstíflurn-
inum. Stórkostlegastar af þessum framkvæmdum verða þó Ob-Jenissejstíflurn-
ar sem eiga að snúa við rennsh stórfljótanna Ob og Jenisej. Loftslag Vestur-
ast fyrir 200 milljónir manna.
Meginið af orku allra þjóða Sovétríkjanna þarf að beina að þessum stór-
virkjunum. Þar er ekki aðeins um að ræða að grafa skurði og gera stíflur og
reisa orkuver, heldur þarf nýbyggingu á öllum sviðum til þess að þessar
framkvæmdir séu mögulegar. Byggja þarf nýjar borgir og þorp. Það þarf
nýja vegi fyrir umferð 25 tonna vörubíla, ný hafnarmannvirki í Moskvu,
Roslof, Stalingrad og fleiri borgum, nýjar járnbrautir og raforkuver og véla-
verksmiðjur, nýjar sementsverksmiðjur, nýjar sjálfvirkar steypuverksmiðjur
og þannig mætti lengi telja. Sovétríkin geta með sanni sagt: Við höfum engan
tíma til að fara í stríð.
184
VINNAN og verkalýðurinn