Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 19
á brott, og ég sá margar slíkar búðir úr lofti. Þannig hef ég séð tugi þessara
búða. Hvarvetna í Evrópu veitti ég því athygli hve þessar búðir líktust hver
annarri um byggingarstíl og allt útht, og hve svipaðar voru allar aðgerðir til
að dylja þær, þannig að þær sæjust ekki frá vegum né öðrum samgönguleiðum.
Það er engin ástæða til að halda að Rússarnir hafi fundið upp einhverja nýja
aðferð til að dylja þær.
Hvergi neitt þrælahald.
Að sérstakri beiðni okkar gafst okkur þann 29. marz tækifæri til að fljúga
yfir og umhverfi Kiev. Skyggni var gott, við flugum í tæplega 200 metra hæð
og jafnvel lægra. Við flugum einnig nokkra hringi yfir umhverfi Moskvu og
Karkov, enda þótt við grandskoðuðum ekki þau svæði. í nágrenni Kiev sá
ég litlar herbúðir á einum stað, og voru þar bensínstöðvar og vörubílar.
Þar stóðu 3 eða 4 smáhús, sem virtust heppilegar hermannaíbúðir, en hvorki
fyrir bílana né heldur fangelsi. Þessi hús stóðu þar á opnu svæði, og engin til-
raun gerð til að dylja þau. Þessi hús stóðu þar á opnu svæði, og engin til-
líkingu af þrælabúðum, og erum við allir sammála um það. Hinsvegar getum
við upplýst að það er mikið af aldingörðum í nágrenni Kievborgar“.
Annar nefndarmannanna lýsti þessu yfir:
„Það var hvergi neitt, alls ekki neitt, sem benti til að þrælabúðir fyndust
á þessum landsvæðum."
Mikið er nú gefið út af sorpritum
til að svert þau ríki, sem lúta
stjórrj) vinnandi stétta. — Bókin
„Þrælabúðir Stalíns" er eitt þessara
sorprita kostuð af amerísku hern-
aðarauðvaldi. Forystumenn A.F.L.
í Bandaríkjunum og aðrir helztu for-
göngumenn þeirra samsærisafla í al-
þjóðasamtökum verkalýðsins er
kallar sig „Frjáls verkalýðsfélög",
eru handbendi hinna amerísku og
brezku auðhringa, er hyggja nú á
stríð. — Myndin er af kápusíðu bók-
arinnar „Þrælabúðir Stalíns" og á
að sýna þá staði innan Sovétríkj-
anna sem „þrælabúðirnar“ eru
starfræktar á.
VINNAN og verkalýðurinn
161