Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 36
JOHN WOLFARD:
Mynd af .frjálsu' verkalýðsfélagi
ÞÝTT ÚR WORIJ) TRADE UNION MOVMENT
IV.
VINNUSKILYRÐI VIÐ HÖFNINA í
NEW YORK
Bryggjustjórarnir eru umboðsmenn.
atvinnurekenda, en að öllum jafnaði
á Rayan þátt í vali þeirra. Jafnhliða
eru þeir meðlimir í deild hafnarverka-
manna, og þá oftast framkvæmda-
stjórar deildarinnar.
Stundum eru þeir ennfremur með-
eigendur í fyrirtækjinu sem sér um
skipaafgreiðsluna. Svo er um Florio,
Anastasía, Bowers og fleiri. Þannig
er sá maður sem ræður því hver vinnu
fær í hverju tilfelli, umboðsmaður
atvinnurekenda, ef til vill meðeig-
aridi í fyrirtækinu, jafnhliða er hann
svo starfsmaður verkalýðsfélagsins,
útnefndur af Rayan, og ef til vill
bófi og manndrápari.
Möguleikar þessa kerfis til að arð-
ræna og féfletta verkamennina eru
ótæmandi ekki sízt þegar við bætist
hin úrelta ráðningaraðferð sem enn
ríkir við New York höfn.
Ráðning fer þannig fram hvern dag
að verkamennirnir „raða sér upp“
eins og það er kallað.
Þessi aðferð þekkist óvíða nú orðið.
178
A vesturströnd Bandaríkjanna var hún
lögð niður eftir verkföllin miklu 1934
og ’36 sem skópu hið framsækna sam-
band hafnarverkamanna, Inteinational
Longshoremin’s and Warehousemen’s
Union (I.L.W.U.) undir forystu Harry
Bridges.
Hvern morgun raða verkamennirn-
ii sér í hálfhring utanum bryggju-
stjórann, segjum 150 mann á hverri
bryggju. Hann velur svo úr hópnum
þá er vinnu fá þann daginn. Þetta er
eínföld aðferð en skapar hinsvegar
mikla möguleika, sem eru óspart not-
aðir.
Það er föst regla að hver verkamað-
ur sem vinnu fær verður að kveldi að
skila aftur 2—3 dollurum af daglaun-
um sínum til bryggjustjórans, láti
hann það undir höfuð leggjast þarf
hann ekki framar að gera sér vonir um
að fá vinnu. Auk þessa fasta framlags
eru svo við hverja útborgun allskon-
ar „frjáls samskot”. Verkamaður sem
spurður var að því hvað gerðist ef
einhver neitaði að taka þátt í þeim
svaraði því til að sá hinn sami kæm-
ist að raun um að hann fengi ekki
vinnu daginn eftir og jafn vel yrði
hann fyrir óþægilegum hrindingum,
VINNAN og verkalýðurinn