Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 12
I1
Er ritið fór í prontun, barst frétt um að kauplagsnefnd
hefði reiknað út kaupgjaldsvísitöluna fyrir nóvember, og
að vísitalan hafi reiknast 153 stig. Framfærsluvísitalan
reiknaðist hinsvegar 163 stig, eða 10 stigum hærri. Og ef
gamla vísitalan hefði verið í gildi, hefði hún verið komin upp
í 644 stig.
Samkvæmt hinni nýju vísitölu eiga Dagsbrúnarmenn að
frá kr. 14,14 um tímann eftir næstu mánaðamót. Væri
hinsvegar reiknað út samkvæmt framfærsluvísitölu, eins
og sósíalistar Iögðu nýlega til á þingi, ætti kaup Dagsbrún-
armanna að verða kr. 15,06. Þannig á t. d. að ræna Dags-
brúnarmenn 92 aurum á klukkustund, eða sem svarar kr.
2208 á ári fyrir 300 daga vinnu. Gefur þó þessi verðlags-
vísitala hvergi nærri sanna mynd af dýrtíðinni.
Sé reiknað með gömlu vísitölunni, en hún gilti áður en
þrífylldngin tók völd í þjóðmálum og verkalýðsmálum, þá
ætti Dagsbrúnarmaður að hafa kr. 19,84 um tímann. Kaup-
ránið nemur því samkvæmt henni kr. 5,70 á klukkustund
eða sem svarar 13 þús. 680 krónum á ári miðað við 300
vinnudaga. — Með öðrum orðum, fullt kaup Dagsbrúnar-
manna þyrfti að hækka um 40% til að vega gegn dýrtíð-
inni, sem valdhafarnir hafa leitt yfir alþýðima á undan-
gengnum árum.
kvæði gegn ca. 1230, eða um 210 at-
kvæðum umfram.
Þessi þróun er mikilsverð, því að
hún ber því vitni, að áhrif sameining-
armanna eru að færast út fyrir hóp
þess verkalýðs, sem áður fyrr sótti
fundi í félögunum.
Aðferðir ríkisstjórnarliðsins í hin-
um nýafstöðu kosningum hafa orðið
sér eftirminnilega til skammar. Ekki
sizt hefur hin herfilega misnotkun á
starfsmöimum Alþýðusambands-
stjórnar verið áberandi, en sumir
þeirra hafa verið í lengri eða
skemmri ferðalögum, einn þeirra á
bifreið sambandsins, til þess eins að
skipuleggja kosningabaráttu ríkis-
stjórnarliðsins. Er ekki ómögulegt, að
ýmislegt fleira kunni að koma í dags-
Ijósið.
Af hálfu sambandsstjórnar hafa
kosningamar fyrst og fremst ein-
kennst af opinskáum undirbúningi
klofningsráðstafana í sambandinu og
tilraunum til þess að halda fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna með ofbeldi.
154
VINNAN og verkalýðurinn