Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 35
Það mun hafa verið 1929—’30 að ég hætti að stunda sjómennsku, enda þá
orðinn mjög farinn að heilsu og ekki með öllu óþreyttur ,eftir 40 ára volk á
sjónum.“
Jæja Carl minn, þú hefur nú sagt okkur merkilegt sögubrot af þróun ís-
lenzkra fiskveiða úr frumstæðum áraskipum í nýtízku vélskipaútveg og svo
nokkuð af þínum eigin þætti í þessari sögu.
En segðu mér nú eitt að lokum, ef þú þorir að trúa mér fyrir því. Það mætti
nefnilega ætla, að þú værir orðinn sæmilega efnaður, svo maður segi ekki
naeir, eftir allt þitt starf, annar eins framtaksmaður og sjógarpur. Og að sjálf-
sögðu hefur þú verið sæmdur krossi, einum eða fleiri, fyrir brautryðjenda-
starfið í veiðiskap og útvegsmálum, — eða er ekki svo?
„Jú, mikil ósköp“, svarar Carl Löve og hlær við“. Ríkur er ég sannarlega. •—
Eg hefi í hjúskap mínum átt þátt í að koma upp 12 börnum, hverju öðru efni-
legra. Þannig hef ég orðið mörgum milljónaranum auðugri í elli minni. — En
afraksturinn af striti mínu, eins og margra annara samtíðarmanna minna á
sjónum, hefur að öðru leyti lent í úKinn óseðjandi, sem þú þekkir.. Og úr
því þú minntist á kross skal ég segja þér það, að krossaglingur frá óvinum
alþýðunnar hefur mér jafnan verið viðurstyggð, hvaða nafn sem því er gefið
— en einn kross hef ég þó fengið. Það er krossinn, sem þjóð mín ber nú á
herðunum, kross hernáms og ófrelsis, sem ég vil að hún varpi af sér hið allra
fyrsta.“
Þannig fórust Carli Löve orð, hinum aldna sægarpi, síðast er við áttum tal
saman.
J. R.
bréfið hennar gunnu
Pramhald af bls. 173.
eg skemti mér vel eins og þú getur ímindað þér. Ég á að hitt hann á Laugar-
daginn aftur, og mig hlakkar mikið til.
Jæja elsku Anna mín ég held ég hafi ekki meira að segja þér að þessu sinni,
ég vona að þú hafir haft þolinmæði til að lesa þetta rugl .
Vertu blessuð og sæl elsku hjartans Anna mín og hafðu það alltaf sem best
þess óskar þín einlæg vinkona Gunna.
Vertu hughraust vina mín
ég vona að guð þið geimi
gleði og gæfan fylgi þér
ætíð í þessum heimi.
VINNAN og verkalýðurinu
177