Golf á Íslandi - 01.10.2011, Side 48
Arnór Ingi:
„Þetta er minn stærsti sigur á ferlinum og jafnframt
sá fyrsti á Eimskipsmótaröðinni þannig að ég er
mjög sáttur,“ segir Arnór Ingi eftir sigurinn í Íslands-
mótinu í holukeppni. „Það er gott að hafa loksins
náð að brjóta ísinn og það er ennþá betra að þetta
skuli vera Íslandsmeistaratitill. Ég var búinn að vera
frekar dapur á golfvellinum í sumar og frammi-
staðan á flötunum hreint út sagt ömurleg fram að
meistaramóti GR. Slátturinn hefur alltaf verið fínn en
eftir meistaramót hafa púttin verið að koma til. Ég
sló mjög vel í þessu móti og það var líklega lykillinn
að sigrinum,“ segir Arnór kátur.
Arnór hefur áður lent í öðru sæti í Íslandsmótinu í
holukeppni en það var árið 2007 þegar hann tapaði
fyrir Ottó Sigurðssyni í úrslitaleik. Hann var svo í
fjórða sæti árið eftir og hefur því náð fínum árangri
í holukeppni. „Ég er annað hvort svona góður í
holukeppni eða lélegur í höggleik,“ segir Arnór og
hlær en hann er 22ja ára gamall.
Æfir markvissara og ætlar að bæta púttin
Arnór segist vera farinn að æfa markvissara en
undanfarin ár en hann eyddi áður miklum tíma á
æfingasvæðinu. „Ég æfði líklega of mikið. Nú æfi
ég mun markvissara og í styttri tíma í einu. Núna er
ég búinn að vinna einu sinni og kannski verður þá
auðveldara að vinna aftur. Ég veit núna hvað þarf til
að vinna mót og hef fengið staðfestingu á því að ég
get þetta.“
„Mig hefur skort
gæðin á flötunum“
Arnór er farinn til Bandaríkjanna þar sem hann
stundar nám í Belmont Abbey háskólanum í Norður-
Karólínu. Hann ætlar að reyna að bæta stutta spilið
hjá sér í vetur og þannig ná að bæta árangur sinn í
íþróttinni.„Ég er stöðugur en mig hefur skort gæðin
á flötunum. Um leið og ég rúlla boltanum rétt á
flötunum þá er ég kominn í toppklassa. Ég hitti alltaf
að lágmarki þrettán flatir á hring í tilætluðum högg-
fjölda og um leið og púttin fara að detta þá koma lágu
hringirnir. Það hefur verið mikill stígandi í mínum leik
og vonandi heldur þetta svona áfram.“
„Þetta er ólýsanleg tilfinning og frábær endir á sumrinu,“ sagði Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir úr GR sem varð Íslandsmeistari í þriðja sinn í sumar á Hellu eftir
sigur í Íslandsmótinu í holukeppni. Hún vann öruggan sigur á Signýju Arnórs-
dóttur úr Keili í úrslitaleik, 6/5.
Fyrir hafði Ólafía orðið Íslandsmeistari í höggleik og Íslands-
meistari í Sveitakeppni með kvennasveit GR. Ólafíu gekk vel
í mótinu og vann nokkra stóra sigra á leið sinni að titlinum.
Hún lék Karen Guðnadóttur úr GS grátt í 8-manna úrslitum og
fagnaði þar öruggum 6/5 sigri. Sunna Víðisdóttir úr GR varð
fórnarlamb hennar í undanúrslitum en leikur þeirra var þó tals-
vert meira spennandi. Að lokum mætti hún Signýju í úrslitum
sem hafði lagt titilhafann Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni í úr-
slitum og hafði Signý þar betur. Úrslitaleikurinn á milli Ólafíu
og Signýjar náði aldrei að verða spennandi. Signý glímdi við
meiðsli sem háðu henni og var hún í raun gríðarlega sátt
með að komast í úrslitaleikinn. Eftir níu holur hafði Ólafía
þriggja holu forystu og gerði út um leikinn á 13. holu eftir
að hafa unnið þrjá holur af fjórum á seinni níu holunum.
Valdís Þóra tryggði sér þriðja sætið í mótinu eftir að hafa lagt
Sunnu Víðisdóttur úr GR í leik um þriðja sætið, 2/1.
Ólafía Þórunn var kát að móti loknu enda hafði hún náð þeim frábæra árangri
að verða bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í ár. „Ég spilaði mög
vel í mótinu og var alltaf í kringum parið eða undir því. Ég bætti mig með
hverjum leik. Eftir þessa sigra hef ég mun meiri trú á sjálfri mér og það er
gaman að geta loksins sýnt öllum hvað ég get,“ segir Ólafía sem viðurkennir
að hún hafi ekki byrjað sumarið eins og hún hefði kosið.
„Ég byrjaði sumarið rólega en var búin að vera í smá lægð í háskólagolfinu úti
áður en ég kom heim. Svo fór ég að æfa eins og ég sjálf vildi hafa æfingarnar
mínar til að koma mér aftur í gamla gírinn. Eftir það gekk bara vel því ég var
dugleg að æfa og hafði líka gaman af því. Ég hef bætt mig í sumar og er orðin
mun stöðugri kylfingur.“
Ólafía Þórunn stundar nám og keppir með Wake Forrest háskólanum í Norður-
Karólínu sem er einn af bestu golfháskólum í Bandaríkjunum. Ólafía hefur sitt
annað ár hjá skólanum í haust og ætlar sér stóra hluti í vetur. „Ég set stefnuna
hærra og ætla mér að verða enn betri. Ég vona að á næstu þremur árum muni
mér takast að vinna vonandi eitt háskólamót,“ segir Ólafía Þórunn sem hefur
lengi verið ein af efnilegustu kvenkylfingum landsins og gæti náð langt í
íþróttinni.
Ólafía Þórunn í stuði á Strandarvelli„Sjálfstraustið hefur aukist
með sigrunum í sumar“
Meðal óvæntra úrslita í riðlakeppninni á
Hellu var þegar Hólmar F. Christiansson
vann landsliðsmanninn Alfreð B.
Kristinsson. Hér er Hólmar í aksjón á Hellu.
Sumarið var frekar rýrt
hjá Íslandsmeistara
kvenna í höggleik 2009
og í holukeppni 2010. Hún
endaði í 3. sæti á Hellu.
48