Golf á Íslandi - 01.10.2011, Side 52

Golf á Íslandi - 01.10.2011, Side 52
Aðstæður: Það voru frábærar aðstæður á Urriðavelli þegar lokastigamótið á Eimskips- mótaröðinni fór fram. Þrátt fyrir að september væri genginn í garð var mjög hlýtt og veður með eindæmum gott. Urriðavöllur var einnig í frábæru ásigkomulagi og hefur sjaldan verið betri. Sigurvegarar: Stefán Már Stefánsson úr GR (67- 66-71=204 -9) og Sunna Víðisdóttir úr GR (74-70- 73=217 +4). Bestu skorin: Í karlaflokki; Stefán Már Stefánsson, 66 högg. Í kvennaflokki; Sunna Víðisdóttir úr GR, 70 högg. Högg mótsins: Helgi Runólfsson úr Keili átti kannski ekki fallegasta högg mótsins en líklega það dýrasta. GSÍ og Bílabúð Benna stóðu fyrir skemmtilegri keppni þar sem nokkrum kylfingum gafst færi á að vinna sér inn Chevrolet Camaro bifreið fyrir að fara holu í höggi. Helgi var einn þátttakenda í keppninni. Hins vegar var högg hans í keppninni ekki alveg á stefnu því hann sló bolta sínum beint í Camaro bifreiðina. Rándýrt högg! Vendipunkturinn: Segja má að línur hafi farið að skýrast í mótinu strax eftir fyrri keppnisdag en þá höfðu Stefán Már og Sunna tekið afgerandi forystu í sínum flokkum. Pútterinn var sjóðandi heitur hjá Stefáni Má á fyrri keppnisdegi þar sem hann fékk alls tólf fugla og einn örn og skildi keppinauta sína eftir í karlaflokki. Sunna lék sérlega vel á öðrum hring í mótinu og kom í hús á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Bæði höfðu þau sjö högga forystu fyrir lokahringinn og fögnuðu að lokum öruggum sigri. Ummæli mótsins: „Annað sætið er ansi oft mín saga,“ sagði Signý Arnórsdóttir úr Keili eftir að hafa orðið í öðru sæti á Urriðavelli. Hún varð alls þrisvar í öðru sæti í sumar og tvisvar í þriðja sæti. Hún tryggði sér engu að síður stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinni þrátt fyrir sigurleysi í sumar. Mesta bæting á milli hringja: Í karlaflokki; Jón Karlsson úr NK, þrettán högg (84-71). Í kvennaflokki; Íris Katla Guðmundsdóttir úr GR, níu högg (81-72). Auðveldasta og erfiðasta holan: Fimmta hola Urriðavallar spilaðist sem auðveldasta holan í Chevrolet-mótinu. Meðalskor á þessa par-5 holu var 4,80 högg sem þýðir að margir kylfingar voru að næla sér í fugl eða örn á holuna. Erfiðasta holan var aftur á móti þriðja holan sem er afar krefjandi par-4 hola. Meðalskor á holunni var 4,85 högg. Dómari: Sigurður Geirsson. Sunna Víðisdóttir úr GR hafði mikla yfirburði í kvennaflokki í Chevrolet-mótinu á Urriðavelli og fagnaði að lokum góðum sex högga sigri. Hún lék mjög gott og stöðugt golf í mótinu og hafði sjö högga forystu fyrir lokahringinn. Sunna lék sérlega vel á öðrum hring en þá kom hún í hús á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Hún stóðst svo pressuna á seinni keppnisdegi og lék á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Samtals lék hún á fjórum höggum yfir pari og varð sex höggum á undan Signýju Arnórsdóttur úr Keili sem varð önnur. „Ég er rosa ánægð með þennan sigur. Ég var að spila mjög stöðugt golf og gerði fá mistök. Ég var búin að vera að spila vel síðustu vikurnar fyrir mótið og púttin hjá mér voru mjög góð á fyrri keppnisdegi. Það er gaman að standa sig vel á Urriðavelli því þetta er erfiður en um leið mjög fallegur golfvöllur. Þetta er besta mótið hjá mér frá upphafi og vonandi er þetta byrjunin að einhverju stærra,“ sagði Sunna að móti loknu. Sunna verður 17 ára gömul í haust en þrátt fyrir ungan aldur hefur henni nú tvívegis tekist að sigra á Eimskipsmótaröðinni. Hún vann einnig lokamótið á mótaröðinni á síðustu leiktíð sem fram fór á Strandarvelli og er ljóst að framtíðin er björt hjá Sunnu sem er gríðarlegt efni. Hún mun halda í há- skólanám í Elon háskólann í Norður-Karólínu haustið 2012. Þótt Signý Arnórsdóttir úr Keili hafi þurft að láta sér lynda annað sætið í mótinu þá tryggði það henni stigameistaratitilinn í kvennaflokki. Þrátt fyrir að hafa ekki tekist að vinna mót í sumar þá var Signý oft í baráttunni og var sem dæmi þrisvar í öðru sæti og tvisvar í þriðja sæti. „Annað sætið er ansi oft mín saga. Það hefði verið skemmtilegra að vinna eitt mót í sumar. Það er svekkjandi að hafa svona oft verið í baráttunni en það telur að vera svona ofarlega,“ sagði Signý eftir mótið. Karen Guðnadóttir úr GS varð í þriðja sæti á fjórtán höggum yfir pari sem er hennar besti árangur á Eimskipsmótaröðinni. Eldri systir hennar, Heiða Guðnadóttir úr GKj, og Íris Katla Guðmundsdóttir úr GR urðu jafnar í 4.-5. sæti á tuttugu höggum yfir pari. Lokastaða í kvennaflokki: 1. Sunna Víðisdóttir GR 74-70-73=217 +4 2. Signý Arnórsdóttir GK 74-77-72=223 +10 3. Karen Guðnadóttir GS 76-75-76=227 +14 4.-5. Heiða Guðnadóttir GKj 76-77-80=233 +20 4.-5. Íris Katla Guðmundsdóttir GR 81-72-80=233 +20 6. Guðrún Pétursdóttir GR 82-82-74=238 +25 7. Jódís Bóasdóttir GK 82-77-80=239 +26 8. Ragnhildur Kristinsdóttir GR 77-78-85=240 +27 9. Þórdís Geirsdóttir GK 81-78-82=241 +28 10. Hansína Þorkelsdóttir GKG 85-82-77=244 +31 Atvinnukylfurnar teknar fram að nýju Stefán Már hefur leikið sem atvinnumaður undan- farin ár og þá aðallega í Þýskalandi. Hann lék ekkert erlendis í ár eftir að hafa orðið fyrir meiðslum á úlnlið á síðasta ári. Stefán er hins vegar orðinn heill heilsu og hyggst reyna fyrir sér að nýju á erlendri grundu. „Ég ætla að fara aftur út að keppa og mun taka heilt keppnistímabil á þýsku mótaröðinni sem hefst í janúar á næsta ári. Ég hef mjög gaman af þessu. Ég tók góða pásu hér heima eftir að hafa meiðst en er nú hungraður í eitthvað meira og ætla mér alla leið. Það er ekki spurning að ég á fullt erindi í atvinnu- mennskuna og ég var að leika mjög vel áður en ég lenti í meiðslunum,“ segir Stefán sem mun ásamt Þórði Rafni Gissurarsyni úr GR taka heilt keppnis- tímabil á þýsku mótaröðinni á næstu leiktíð. „Besta mótið frá upphafi“ Yfirburðir hjá Sunnu Sunna lék flott golf. Signý varð önnur og tryggði sér stigameistaratitilinn. seinni 9 52
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.