Golf á Íslandi - 01.10.2011, Blaðsíða 56
Því lengri sem kylfan er, því erfiðara er að stjórna henni og því erfiðara er að slá
beint og því erfiðara er að slá stöðugt á miðjuna á höggfletinum.
Hér má læra af bestu kylfingum heimsins. Tiger Woods var lengi með 43,5“ dræver
þegar hann var upp á sitt besta. Bubba Watson er með 44,5“ og Sergio Garcia 43,75“.
Meðallengd á driverum á PGA tour er 44,5“ og hefur verið það frá því 2005. Þar ertu
með bestu golfara jarðar, með frábærar sveiflur, en samt nota þeir drævera um 2“
styttri en dræver sem seldur er út í búð handa miðlungs kylfingi. Af hverju eru bestu
kylfingar heims ekki með lengri drivera? Golf er þeirra lifibrauð og þeir eru búnir að
prófa mismunandi löng sköft. Það er augljós yfirhönd í golfi að slá langt. Það þarf
ekki að rýna lengi í tölfræðina eða peningalistann til að sjá það. Þessir kylfingar vilja
slá eins langt og þeir geta, en þeir einfaldlega ráða ekki við lengri kylfu! T.d. sagði
Bubba Watson í viðtali fyrir stuttu að lykillinn að lengd væri styttra skaft í dræver.
Svo gott sem allir kylfingar slá sjaldnar á sæta blettinn með lengri kylfu. Þeir einu
sem ráða sæmilega við lengri kylfu og sjá smávægilega aukinn kylfuhraða eru þeir
sem hafa gott vald á kylfunni, nota úlnliðina seint í niðursveiflunni (mikið „lag“),
eru með mjúkt tempó og fara ekki „over the top“ (inn-út feril). Ef að þetta á ALLT
við þig, þá gætir þú prófað að vera með driver í lengri kantinum til að ná í nokkra
auka metra. Ef að einungis eitt af þessu á ekki við þig, sem eru flestir kylfingar,
þ.e. þú sveiflar hratt, notar úlnliðinn snemma, ferð „over the top“, slæsar, eða ert
óstöðug(ur) með dræver, þá ætti rétta lengdin fyrir þig á dræver að vera frá 43,5“-
44,5“ fyrir karla og um 42“-43“ fyrir konur. Ef þú ert ekki enn sannfærð(ur) um að
spila með styttri dræver, þá ættu niðurstöður nokkurra rannsókna vonandi að
hjálpa. Í einni sem gerð var á stórum hópi af kylfingum með mismunandi getu þá
juku einungis 10% af þeim kylfuhraðann þegar þeir fóru úr 42“ dræver í 48“. Fæstir
af þeim bættu við boltahraða því þeir hittu ekki jafn oft á miðjuna á höggfletinum.
Ef að þú slærð 1,5 cm frá „sæta blettinum“, þá missirðu um 5% af lengdinni.
Ef þér skeikar um 2,5 cm, þá missirðu um 10%.Að lokum bendi ég á að rjúka ekki
beint út í bílskúr að stytta dræverinn þinn. Það þarf að þyngja hausinn rétt til að
viðhalda sömu tilfinningu (swingvigt eða MOI) þegar hann er styttur. Láttu lærðan
kylfusmið um verkið.
Birgir Vestmar Björnsson - Golfkylfusmiður
www.golfkylfur.is
Af hverju hafa
dræverar lengst?
Á myndinni hér fyrir
neðan má sjá aðra
rannsókn gerða af
Tom Wishon á 50
kylfingum af mis-
munandi getu.
„Því lengri sem kylfan er, því
erfiðara er að stjórna henni og
því erfiðara er að slá beint og
því erfiðara er að slá stöðugt á
miðjuna á höggfletinum.“
56