Golf á Íslandi - 01.10.2011, Side 72
Golfklúbbur Norðfjarðar hélt síðla sumars mót til
heiðurs Stefáni Þorleifssyni heiðursfélaga og einum af
stofnfélögum klúbbsins og formanni hans til margra
ára. Stefán golfkappi er enginn venjulegur kylfingur
því hann leikur enn golf reglulega þótt hann sé orðinn
95 ára og leikur sér að því að leika á betra skori en
aldurinn.
Stefán er ern mjög og vel á sig kominn enda
íþróttamaður frá unga aldri og stundar enn auk
golfs, sund, skíði, leikfimi og dans. Hann tók auðvi-
tað þátt í mótinu en var nú ekki ánægður með eigin
frammistöðu, en þess ber að geta að hann var í fyrsta
holli og það hreppti versta veðrið.
Stefán varð 95 ára þann 18. ágúst og tekur þátt í vel-
flestum mótum sem fram fara á Grænanesvelli. Hann
hefur verið í fararbroddi í íþrótta- og æskulýðsmálum
í Neskaupstað auk þess að vera framkvæmdastjóri
Fengu land undir golfvöll
gegn því að þar mættu
líka ganga sauðfé og kýr
Stefán Þorleifsson, 95 ára heiðursfélagi
í Golfklúbbi Norðfjarðar leikur enn golf
en hann hefur verið einn af
forystumönnum klúbbsins í áratugi:
G O L F
viðtalið
Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað um árabil.
Segja má að Stefán hafi alla tíð látið félagsmálin og
bæjarlífið í Neskaupstað sig miklu varða hvort sem
það er á vettvangi pólitíkur eða félagsmálin almennt.
Yfir 50 kylfingar mættu á mótið sem sýnir best þann
hug sem Austfirðingar bera til þessa mikla höfðingja.
Við mótsslitin flutti Ragnar Sverrisson stjórnarmaður
í GN Stefáni og fjölskyldu kveðjur klúbbfélaga og
Stefán flutti sköruglega þakkarræðu að vanda. Alma
Guðmundsdóttir hitti hinn aldna kylfing í haust og
lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
Hvenær byrjaðir þú að leika golf og hvernig vildi það
til?
Gissur Ó Erlingsson, sá mikli félagsmálafrömuður,
kom hingað til Neskaupstaðar sem stöðvarstjóri
Pósts og Síma og hann var hvatamaður að stofnun
Golfklúbbs Neskaupstaðar 1965, en nafninu var
síðar breytt í Golfklúbb Norðfjarðar. Gissur hafði
kynnst golfíþróttinni og meðal verka hans var aðild
að stofnun Golfklúbbs Vestmannaeyja. Við vorum
nokkrir sem gengum til liðs við Gissur og okkar fyrsta
verk var að fá land undir golfvöll. Það var ekkert auð-
hlaupið þar sem þá voru 13 eða 14 kúabú í sveitinni
og að auki allmikill fjárbúskapur þannig að hver land-
spilda var nýtt.
Okkur golfáhugamönnum ásamt bændum í sveitinni
kom saman um að svæðið norðan Norðfjarðarár væri
fýsilegasti kosturinn þó þar væri enn lausaganga
búfjár og svæðið frekar óslétt og illt yfirferðar. En
samningar tókust við landeigendur og við fengum
þarna úthlutað svæði með því fororði að þarna
mættu ganga sauðfé og kýr en ekki hestar – og svei
mér þá ef ég held ekki að þetta sé ennþá ákvæði í
samningnum, sem nú er í gildi.
Við byrjum án nokkurra tækja eða tóla og byrjuðum á
að setja niður 6 holur. Vitanlega kom enginn arkitekt
að hönnuninni en Gissur hafði kynnt sér málið og var
sá eini sem eitthvað þekkti til golfvalla. Í raun og veru
er ótrúlegt að hugsa til þess í dag að okkur hafi dottið
í hug að gera þarna golfvöll.
Þegar við vorum komnir með sæmilega slétt svæði
komum við með sláttuvélarnar að heiman frá okkur
til að slá flatirnar sem voru auðvitað ekki fyrir garð-
sláttuvélar. Fyrsta alvöru vélin sem við eignuðumst
fengum við að gjöf frá Golfklúbbi Reykjavíkur og
önnur tæki voru svo keypt frá Bretlandi en þá sigldu
norðfirsk skip með afla til Bretlands og var tækifærið
notað til tækjakaupa.
Fyrsta athvarfið okkar á vellinum var gamall vega-
vinnuskúr sem gerði ekki meira en að halda vatni og
vindi en seinna var flugskýlið á Norðfjarðarflugvelli
auglýst til sölu en þar sem enginn vildi kaupa það
var klúbbnum gefið húsið. Það þjónaði okkur í mörg
herrans ár.
Stefán með félögum sínum í
afmælismótinu í sumar. Að ofan má
sjá hann einbeittan í rigningunni.
72