Golf á Íslandi - 01.10.2011, Side 73

Golf á Íslandi - 01.10.2011, Side 73
73GOLF Á ÍSLANDI • Október 2011 „Okkar fyrsta verk var að fá land undir golfvöll. Það var ekkert auðhlaupið þar sem þá voru 13 eða 14 kúabú í sveitinni og að auki allmikill fjárbúskapur þannig að hver landspilda var nýtt.“ Þegar Gissur flutti frá Neskaupstað kom frekar daufur kafli í starfsemi klúbbsins og var hann nánast í andar- slitrunum. Sjálfur var ég í mikilli vinnu sem og allir aðrir. En svo kom að því að félögum fjölgaði og upp- hófst kraftmikið starf sem enn í dag er að stórum hluta unnið í sjálfboðavinnu. Hvað finnst þér skemmtilegast við íþróttina? „Nú, maður er alltaf að glíma við sjálfan sig, gera eins vel og maður getur og ýmist gleðst maður eða hryggist yfir árangrinum. En fyrst og fremst er það glíman við sjálfið sem heillar mig. Flestir ef ekki allir mínir gömlu félagar eru farnir og ég spila því oftast einn. Mesti missirinn fannst mér þegar konan mín missti sjónina en við höfðum oft gengið völlinn og spilað saman. Hefurðu leikið á fleiri völlum utan þíns svæðis og jafn- vel í útlöndum, ef svo er, hverjir eru skemmtilegastir? Já, ég hef spilað bæði fyrir norðan og sunnan og á öllum völlunum hér austanlands. Erlendis hef ég spilað á Spáni og í Portúgal. Á Mallorca spilaði ég oftast á velli sem sonur minn, sem þar bjó og var hlut- hafi í og áttum við hjónin þar margar góðar stundir. Svo hef ég líka auk fyrrgreindra staða spilað á megin- landinu. Oftast lét ég mér nægja 9 holur en stundum fór ég 18.“ Stefán tekur fram fallega styttu og sýnir blaðamanni en hann vann hana á golfmóti Úrvals Útsýnar á Matalacanas 2003, þá á níræðisaldri. Hefur þú náð að leika 18 holurnar nálægt þínum aldri á golfferlinum? „Já, það má segja að það geri ég nánast daglega – alla vega þegar vel viðrar. Ég fer á völlinn daglega, oftast 9 holur en fer oft tvisvar á dag. Í næstsíðasta móti fór ég 18 holurnar á 88 höggum, 42 högg fyrri 9 holurnar og 46 þær seinni. Árangur minn á 95 ára afmælis- mótinu var ekki sem skyldi og tala ég ekkert frekar um það.“ Er næsta markmiðið að ná 100 ára aldrinum og ná golfhring þá? „Ja, maður veit aldrei, kannski verður það svo, en ég ætla að spila golf á meðan ég get hreyft mig en undirstaðan er að stunda líkamsrækt í einhverskonar mynd. Eitthvað að lokum Stefán? Það verður að koma fram að allar þær framkvæmdir sem hafa verið og eru í gangi á golfsvæðinu hefðu ekki verið framkvæmanlegar án mikils sjálfboða- starfs, sem ég hef jú áður minnst á, og skilnings bæjarstjórnar Neskaupstaðar og síðar Fjarðabyggðar, og velvilja og skilnings landeigenda. Talandi um sjálf- boðastarf verð ég að minnast á starf kvennanna í klúbbnum sem sjá alfarið um veitingar á mótum og að halda skálanum hreinum. Að mínu mati er golfvöllurinn okkar á bökkum Norð- fjarðarár einn besti 9 holur völlur landsins. Norð- fjarðaráin rennur að sunnan og austan, sjá má menn samtímis við veiðar og leika golf og fuglalíf er mikið. Þær endurbætur sem nú standa yfir með nýju og stærra æfingasvæði eru til mikillar bóta og ber að þakka Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað þá framkvæmd. Það er þýðingarmikið að hver klúbbur leggi rækt við unglingastarfið og verði ásamt Golfsambandinu skjöldur og skjól allra kylfinga. Í þessari nýju aðstöðu okkar á að verða athvarf æskunnar því hún mun landið erfa.“ Hér er Stefán á teig í afmælismóti sem haldið var honum til heiðurs þegar hann varð 90 ára. Til hliðar má sjá hann í 95 ára mótinu á skutlunni. Stefán púttar í rigningunni í 95 ára afmælismótinu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.