Golf á Íslandi - 01.10.2011, Síða 92
Afmælismolar - Hreppsstjórinn froðufellandi
Gunnar Kjartansson var fyrst kosinn í stjórn GOS
1984, var hann ritari fyrstu árin, en tók svo að sér
formennsku vallarnefndar. Starfaði hann ötull að
uppbyggingu vallarins. Tók sér frí frá stjórnar- og
nefndarstörfum fjögur ár, en kom tvíefldur til leiks
1997. Bar á herðum sér uppbyggingu á vellinum.
Ófáar stundirnar vann Gunnar á vellinum, sá um að
byggja upp, flestar ef ekki allar, flatir vallarins. Það var
ekki spurt um tíma eða stund, meira að segja sást til
Gunnars á jóladag við flötina á fjórðu braut, en þar
hafði myndast krapastífla, sem hann losaði.
Hann sá um að borað var eftir vatni í landi Svarfhóls
og lagði vökvunarlagnir að öllum flötum vallarins.
Fræg er sagan af hreppstjóra Hraungerðishrepps,
sem kom akandi á öðru hundraðinu niður traðirnar
að golfvellinum. Vatnslítið var í hreppnum um mitt
sumar, en hann sá að verið var að vökva allan golf-
völlinn. Stóð hann í þeirri meiningu að Gunnar og
hans prelátar væru að svelta alla sveitina með þessari
vökvun. Gekk hreppstjórinn froðufellandi um og
spurði um þann sem bæri ábyrgð á þessari vatns-
notkun. Fór hann heldur sneyptur til baka, þegar búið
var að upplýsa hann um að golfklúbburinn væri með
sína eigin borholu og vatnsveitu, sem kæmi vatns-
veitu hreppsins ekkert við.
Vel sótt afmælismót
Það var mikill merkisdagur í sögu Golfklúbbs Selfoss
4. september en þá var haldið upp á 40 ára afmæli
Golfklúbbsins.
Haldið var afmælismót og var öllum formönnum
klúbba á Suðurlandi og vinaklúbbum GOS boðið
til þátttöku en einnig var þetta mót opið öllum
kylfingum á landinu.
K L Ú B B A
fréttir
105 keppendur skráðu sig til leiks og spiluðu frábært
golf, flestir í algjörri rjómablíðu, ekki hægt að hafa
það betra á afmælismótinu.
Grímur Arnarsson kom sá og sigraði með glæsilegu
vallarmeti, 65 högg, eða fimm undir pari.
Forseti Golfsambands Íslands, Jón Ásgeir Eyjólfsson,
kom og ávarpaði veislugesti en boðið var upp á kökur
og kaffi um kvöldið.
Forsetinn heiðraði fjóra félaga, einn fékk silfurmerki
GSÍ og þrír fengu gullmerki GSÍ. Þeir voru:
Bárður Guðmundarson, Jón Ágúst Jónsson og Gunnar
Kjartansson.
Hlynur Geir Hjartarson fékk silfurmerki.
Úrslit úr punktakeppni á afmælismóti:
1. sæti Eiríkur Þór Eiríksson GOS 42 p.
2. sæti Kristján Baldvinsson GKG 41 p
3. sæti Eiríkur Stefánsson GÁS 40 p
4. sæti Pétur Pétursson GKj 39
5. sæti Ragnar Sigurðsson GOS 39p
6. sæti Axel Óli Ægisson GOS 39
7. sæti Birgir Rúnar Steinarsson GOS 38p
8. sæti Jón Sveinbjörn Jónsson GKj 38p
9. sæti Erlingur Arthúrsson GHG 37p
10. sæti Björn Þór Heiðdal 37p
Bárður Guðmundarson, Jón Ágúst Jónsson og
Gunnar Kjartansson fengu gullmerki GSÍ.
Verðlaunahfar í afmælismótinu.
92