Golf á Íslandi - 01.10.2011, Page 94

Golf á Íslandi - 01.10.2011, Page 94
Golfklúbbur Grindavíkur fagnaði 30 ára afmæli sínu í haust og má með sanni segja að klúbburinn standi á tímamótum. Húsatóftavöllur mun formlega stækka í 18 holur næsta sumar en stækkun vallarins er á lokastigum og gætir nokkurrar eftirvæntingar meðal Grindvíkinga með að völlurinn fullorðnist í 18 holur. Afmælisdagurinn var haldinn með pompi og prakt þann 3. september síðastliðinn þar sem klúbb- félögum og velunnurum klúbbsins var boðið að leika völlinn sem 18 holur í fyrsta sinn. Mikil ánægja ríkir meðal klúbbfélaga með stækkun vallarins sem hefur verið undir handleiðslu feðganna Hann- esar Þorsteinssonar golfvallahönnuðar og Bjarna Hannessonar vallarstjóra á Húsatóftavelli. Auk þess að stækka völlinn um fimm holur verður nýtt klúbbhús tekið í gagnið næsta vor. Það er því mikill uppgangur í golfinu í Grindavík og er Páll Erlingsson, formaður GG, hæstánægður með hvernig til hefur tekist. „Það ríkir í raun eintóm sæla innan klúbbsins með árangurinn í sumar. Það er frábær andi í klúbbnum og félagsmenn eru gríðarlega sáttir með hvernig völlurinn hefur verið í sumar og hvernig til hefur tekist með stækkun vallarins,“ segir Páll kátur í bragði. Klúbburinn telur u.þ.b. 203 meðlimi og er því ekki úr vegi að spyrja hvernig klúbburinn getur fjármagnað stækkun vallarins og reist nýtt klúbbhús á þeim erfiðu tímum sem nú ríkja í efnahagsmálum? „Svona hlutir gerast ekki nema með samstilltu átaki. Hér er mjög vel haldið utan um fjármálin. Vallarstjórinn á einnig stóran þátt í því þar sem honum hefur tekist að gera frábæra hluti úr litlu fjármagni. Við höfum verið vel styrktir af fyrirtækjum og bæjarfélaginu sem við erum mjög þakklát fyrir. Í dag er klúbburinn skuldlaus og það hvíla engin lán á klúbbnum.“ Fimm nýjar brautir og nýr skáli Blaðamaður Golfs á Íslandi var einn þeirra sem fékk tækifæri til að leika Húsatóftavöll sem 18 holur í afmælismóti klúbbsins. Völlurinn stækkar ennþá lengra inn í hraunið í mjög skemmtilegt landslag. Flatir vallarins voru komnar vel á veg en brautirnar áttu enn nokkuð í land en munu væntanlega taka vel við sér næsta vor. Hönnun nýju brautanna er vel heppnuð og gaman að sjá hvernig völlurinn fléttast inn í harðgert landslag þar sem hrauntungur grípa augað. Að auki eru gerðar breytingar á eldri hluta vallarins sem koma vel út. „Nýju holurnar eiga eftir að verða stórkostlegar. Þegar völlurinn opnar sem 18 holur þá getum við með sanni sagt að hér séum við með þrískiptan völl. Við erum með strandvöll, rótgróinn túnvöll og svo nokkrar brautir í hrauni. Slíkan völl er erfitt að finna þó víða væri leitað. Við erum gríðarlega stolt af nýju holunum og hvernig þessar brautir eiga eftir að líta út í framtíðinni. Við erum að eignast perlu í einni af nýju brautunum sem mun spilast sem par-5 hola. Það eiga margir eftir að verða ástfangnir af þeirri braut og flötin á eftir að verða ein sú fal- legasta á landinu. Þessar nýju brautir í hrauninu eru kannski ekkert sérstaklega langar en þær leyna á sér og refsa mjög auðveldlega. Við bætum við fimm nýjum brautum og gerum breytingar á tveimur nú- verandi brautum vallarins sem munu spilast með öðrum hætti en þær hafa gert til þessa. Við erum að ljúka öðru þrepi við stækkun vallarins en það er ljóst að völlurinn kemur líklega til með að taka fleiri breytingum á næstu árum,“ segir Páll en hvenær má búast við að völlurinn opni formlega sem 18 holur? „Við opnum völlinn sem 18 holur þegar hann er tilbúinn en ég get lofað því að það verður næsta sumar. Við höfum alltaf farið hægt í sakirnar hér í Grindavík og bíðum þolinmóðir þar til að Bjarni vallarstjóri gefur okkur grænt ljós. Við stefnum hins vegar að því að opna nýtt klúbbhús næsta vor og framkvæmdir á því eru langt komnar. Nokkrir eldri félagar í klúbbnum hafa unnið gífurlegt sjálfboða- starf við að taka þetta gamla íbúðarhús í gegn og gera úr því skála. Þessi nýja aðstaða mun umbylta starfi klúbbsins.“ Gestir lofsyngja völlinn Aðsókn á Húsatóftavöll hefur aldrei verið meiri en í sumar. Að sögn Páls hefur völlurinn litið feikilega vel út í allt sumar og viðbrögð gesta ekki látið á sér standa. „Þeir kylfingar sem koma hingað halda hreinlega ekki vatni yfir því hversu góður völlurinn okkar er. Völlurinn hefur komið mörgum kylfingum K L Ú B B A fréttir Golfklúbbur Grindavíkur fagnaði 30 ára afmæli sínu í haust. Völlurinn stækkar í 18 holur og nýr skáli opnar Húsatóftavöllur tekur stóra skrefið 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.