Golf á Íslandi - 01.10.2011, Blaðsíða 94
Golfklúbbur Grindavíkur fagnaði 30 ára afmæli
sínu í haust og má með sanni segja að klúbburinn
standi á tímamótum. Húsatóftavöllur mun formlega
stækka í 18 holur næsta sumar en stækkun vallarins
er á lokastigum og gætir nokkurrar eftirvæntingar
meðal Grindvíkinga með að völlurinn fullorðnist í 18
holur. Afmælisdagurinn var haldinn með pompi og
prakt þann 3. september síðastliðinn þar sem klúbb-
félögum og velunnurum klúbbsins var boðið að
leika völlinn sem 18 holur í fyrsta sinn. Mikil ánægja
ríkir meðal klúbbfélaga með stækkun vallarins sem
hefur verið undir handleiðslu feðganna Hann-
esar Þorsteinssonar golfvallahönnuðar og Bjarna
Hannessonar vallarstjóra á Húsatóftavelli. Auk
þess að stækka völlinn um fimm holur verður nýtt
klúbbhús tekið í gagnið næsta vor. Það er því mikill
uppgangur í golfinu í Grindavík og er Páll Erlingsson,
formaður GG, hæstánægður með hvernig til hefur
tekist.
„Það ríkir í raun eintóm sæla innan klúbbsins með
árangurinn í sumar. Það er frábær andi í klúbbnum
og félagsmenn eru gríðarlega sáttir með hvernig
völlurinn hefur verið í sumar og hvernig til hefur
tekist með stækkun vallarins,“ segir Páll kátur í
bragði.
Klúbburinn telur u.þ.b. 203 meðlimi og er því ekki úr
vegi að spyrja hvernig klúbburinn getur fjármagnað
stækkun vallarins og reist nýtt klúbbhús á þeim
erfiðu tímum sem nú ríkja í efnahagsmálum? „Svona
hlutir gerast ekki nema með samstilltu átaki. Hér er
mjög vel haldið utan um fjármálin. Vallarstjórinn á
einnig stóran þátt í því þar sem honum hefur tekist
að gera frábæra hluti úr litlu fjármagni. Við höfum
verið vel styrktir af fyrirtækjum og bæjarfélaginu
sem við erum mjög þakklát fyrir. Í dag er klúbburinn
skuldlaus og það hvíla engin lán á klúbbnum.“
Fimm nýjar brautir og nýr skáli
Blaðamaður Golfs á Íslandi var einn þeirra sem fékk
tækifæri til að leika Húsatóftavöll sem 18 holur í
afmælismóti klúbbsins. Völlurinn stækkar ennþá
lengra inn í hraunið í mjög skemmtilegt landslag.
Flatir vallarins voru komnar vel á veg en brautirnar
áttu enn nokkuð í land en munu væntanlega taka
vel við sér næsta vor. Hönnun nýju brautanna er vel
heppnuð og gaman að sjá hvernig völlurinn fléttast
inn í harðgert landslag þar sem hrauntungur grípa
augað. Að auki eru gerðar breytingar á eldri hluta
vallarins sem koma vel út.
„Nýju holurnar eiga eftir að verða stórkostlegar.
Þegar völlurinn opnar sem 18 holur þá getum við
með sanni sagt að hér séum við með þrískiptan
völl. Við erum með strandvöll, rótgróinn túnvöll og
svo nokkrar brautir í hrauni. Slíkan völl er erfitt að
finna þó víða væri leitað. Við erum gríðarlega stolt
af nýju holunum og hvernig þessar brautir eiga eftir
að líta út í framtíðinni. Við erum að eignast perlu
í einni af nýju brautunum sem mun spilast sem
par-5 hola. Það eiga margir eftir að verða ástfangnir
af þeirri braut og flötin á eftir að verða ein sú fal-
legasta á landinu. Þessar nýju brautir í hrauninu eru
kannski ekkert sérstaklega langar en þær leyna á
sér og refsa mjög auðveldlega. Við bætum við fimm
nýjum brautum og gerum breytingar á tveimur nú-
verandi brautum vallarins sem munu spilast með
öðrum hætti en þær hafa gert til þessa. Við erum
að ljúka öðru þrepi við stækkun vallarins en það er
ljóst að völlurinn kemur líklega til með að taka fleiri
breytingum á næstu árum,“ segir Páll en hvenær má
búast við að völlurinn opni formlega sem 18 holur?
„Við opnum völlinn sem 18 holur þegar hann er
tilbúinn en ég get lofað því að það verður næsta
sumar. Við höfum alltaf farið hægt í sakirnar hér
í Grindavík og bíðum þolinmóðir þar til að Bjarni
vallarstjóri gefur okkur grænt ljós. Við stefnum hins
vegar að því að opna nýtt klúbbhús næsta vor og
framkvæmdir á því eru langt komnar. Nokkrir eldri
félagar í klúbbnum hafa unnið gífurlegt sjálfboða-
starf við að taka þetta gamla íbúðarhús í gegn og
gera úr því skála. Þessi nýja aðstaða mun umbylta
starfi klúbbsins.“
Gestir lofsyngja völlinn
Aðsókn á Húsatóftavöll hefur aldrei verið meiri en
í sumar. Að sögn Páls hefur völlurinn litið feikilega
vel út í allt sumar og viðbrögð gesta ekki látið á
sér standa. „Þeir kylfingar sem koma hingað halda
hreinlega ekki vatni yfir því hversu góður völlurinn
okkar er. Völlurinn hefur komið mörgum kylfingum
K L Ú B B A
fréttir
Golfklúbbur Grindavíkur fagnaði 30 ára afmæli sínu í haust.
Völlurinn stækkar í 18 holur og nýr skáli opnar
Húsatóftavöllur
tekur stóra skrefið
94