Freyja - 01.06.1901, Page 3
FREYJÁ
83
honum því hún kom á knéð,
kemur hún mér á bæði.
Bakkus er að fara flatt,
—fellur máske bráðum,
sem hefur lengi leikið glatt
lýði við í náðum.
Sá er þáði mestann m&tt
Mósesar af dáðum,
Jehóa er lagstur látt
iíklega sofnar bráðum.*
Ótai þannig að hún bjó
og mun fæsta spara.
Mammon hygg ég muni þó
með þeim lengstu lijara.
Hann er lýða helzta traust
lreimskan meðan drottnar,
en um síðir efalaust
einveldi hansþrotnar.
Allt að sama brunni ber,
breyting ræður tíða;
guðir, menn og allt hvað er
elli-lögum hlýða.
Mör þótt syrpan heiftar hög
hóti neyð og stríði,
ekki sagt ég æðrist mjög
eða stórum kvíði.
Byggt því trúartraust er mitt
tállausum á rökum.
Þegar Helja heimtar sitt
hún má sleppa tökum.
S- J. Jóhannesson.
*) Hér er átt við Jehóva eins og
hann er sýndur í sögu Gyðinga, sem
grimmur herguð. Höf.
(