Freyja - 01.01.1905, Síða 40

Freyja - 01.01.1905, Síða 40
Á AÐ FLENGJA BÖRNIN. —:o:— Þessi spurning hefir fyrir nokkru síöan oröið aö allmiklu um- talsefni meöal Vestur-íslendinga. Hvaö hefir vakið upp þenna draug, er ekki gott að segja. En víst er það, að nokkrir kennarar héldu með sér fund á St. Louis sýningunni til að ræða svipaö mál, n. þ. hvort heppilegt muni að leggja líkamlega hegningu á börn. Urðu um það deildar skoðanir, en sérstaklega var gerður góður rómur að máli John W. Crooks frá De Kalb, IIL, hann lauk máli sínu um það efni með þsssum orðum: ,,Það sem hvert barn œtti fyrtst af öllu að lœra, erheilsusam- leg virðing fyrir öllu réttmœtu valdi. Hvert það kenningakerfi sem ekki kennir barninu þetta—jafnv.el þó sú kenning útheimti líkam- lega refsingu, sáir frœkornum dauðans mitt í siðmenningu vorra tíma. “ Þetta eru alvarleg orð. en sem betur fer ekki sönn. Það barn sem einungis hlýðir fyrir ótta sakir er í alla staði jafn hœttulegt siðmenningu vorri eins og hitt sem ekkí hlýðir. Ottinn kyrkir sjálfstæðíð og gjörir úr barninu þroél, hugleysinga, hrœsnara og hœfilegt fyrir alla varmensku, og hefir barnið þá keypt virðinguna fyrir yfirvaldinu of dýru verði. Þegar of mikið er borgað fyrir ein- hverja dyggð—veröur hún að ódyggð. Sé barnið hýtt eða barið í viðurvist skólans, er því með slíkri hegningu gjört óbœtanlegttjón. Sú hegning verður að nokkurskonar Kains brennimarki í sál barns- ins sem aldrei máist af svo framarlega sem það er viðkvœmt að eðlisfari. En sé barnið ekki viðkvæmt fyrir virðingu sinni verður hegningin máttlaus, og gjörir þá barnið kœrulaust. Og af því að iíkamleg hegning er ekki nærri eins áreiðanlegt meðal við ó- hlýðni unglinga, eins og hún er áreiðanlega skaðleg í afieiðingum sínum á viðkvœmt eðlisfar, verður oss að efast um vísdóm Crooks og félaga hans í þessu máli. Það eru lélegir foreldrar sem ofur- selja börn sín undir annara keyri—eða vendi. Verði ekki hjá því komist að hirta börn líkamlega ættu foreldrarnir—-sérstaklega móð- irin að gjöra það, því hjá henni yrði þó hegningin tempruð af mildi, Það væri syndsamlegt að fá drenginn sinn eða stúlkuna gína í hendur ókunnugs manns til að ieggja á þau líkamlega refsingu.

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.