Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Side 4

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Side 4
4 % Séra Benedikt Kristjánsson: Kvaðst eigi vilja mæla því bót, hvernig kirkjur séu nú sóttar. En þótt nú séu færri en fyr, sem sæki kirkjuna, þá muni þó þessir fáu fara af innri livöt. Upplýsingu safnaðanna fieygi fram, og þess vcgna sé moira heimtað af prestunum en áður var, til þess að fullnægja þörfum safnaðanna. Heíir von um, að á- standiö í þessu efni sé að batna og batni áfram. Séra Emil: Sammála séra Benedikt. Alítur að eigi megi dæma kirkjuræknina eftir messuskýrslum og messuföll- um eingöngu. Séra Matthías: Aldarhátturinn sé, að lifa mest á skemtunum, þar sem þær fáist. J>ess vegna sé svo mikill ys og þys á sunnudögunum á sumrin, því það sé oini dag- urinn, er fóik liaíi frjálsan. Séra Sigtryggur Guðlaugsson: Söfnuðurinn kem- ur fyrst og fremst saman í kirkjunni til þess, að nálgast Guð með lofgjörð og bæn, en eigi eingöngu til þess, að fá allfc hjá prestinum. Aðalumbótin hlýtur að vera, að sú lifandi löngun vakni hjá hverjum einum, að vera sem mest samein- aður Guði sínum. Yið vonum, að umbæturnar komi, en þurfum starfandi og sterka menn, til að framfylgja þeim. Séra Eyólfur svarar. Séra Matthías eins. Séra Zóphonías: Eitt höfuðatriðið í umbótunum lilýt- ur að vera það, að innra, andlegt, lifandi trúarlíf vakni lijá söfnuðunum. pað er mikið áfátt í þessari grein. Prestarnir eiga að leggja krafta sína fram að umbótum í kirkjurækni, og lögunin á einkum að stefna að hinu innra lífi, trúarlífinu, Séra Bonedikt svarar nokkrum orðum. Séra Helgi álítur, að fundurinn goti eigi borið frain ncina tillögu um þetta mál, og færði ástæður fyrir því. Séra Árni Jónsson talaði nokkur orð. Kvaðþaðsína reynslu nú á síðari árum, að fólk komi eigi fjölmennt og með áhuga til kirkjunnar, nema á hátíðum, við barnafermingar og við jarðarfarir.

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.