Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Blaðsíða 7
7
Má svara með mörgu móti. Sitt svar: að gjöra þá vitra
og góða, koma þeim í sem nánast trúar- og kærleikssam-
bantl við Guð fyrir Jesúm Ivrist. f>etta eru liinar innri um-
bætur, og um leið hið erfiðasta verk, miklu meira verk en
nokkrar ytri umbætur. — Hvernig eigum vér að vinna? Vor
orð eiga að vera lifandi Guðs orð, scm komi frá góðu og
hreinu hjarta, orð, sem miði til þess, að gjöra mennina
vitrari og betri. Presturinn á og að vinna með eftir-
dæminu, góðu eftirdæmi. Kenningin og breytnin á að vera
sameinuð og samvinnandi; þá að eins getur verið von um
árangur.
Séra Tómás og séra Mattías flytjaþakkir fyrir þenn-
an fyrirlestu/.
l>á urðu all langar umræður um útgáfu fyrirlestrarins.
Sóra Mattías kvaðst hafa verið lirifinn af fyrirlestrin-
um í beztu merkingu: í friði og rósemd. — Datt í hug, að
fyrirlesturinn kæmi út í «Verði ljós!». Er hræddur um, að
verði hann sérprentaður, þá útbreiðist hann vart, nema með
því að útbýta honum gefins.
Séra Sigtryggur: Fyrirlesturinn vakti töluvorðar at-
hugasemdir í liuga mínum, sem miða að því, hvort æskilegt
væri, að hann væri gefinn út í nafni fundarins, einkum við-
víkjandi því, sem talað var um sannleikann.
Séra Mattías: Hér er svarað þörf og þrá manna í
þessum fyrirlestri. Vér hræðumst vora eigin sannfæring.
Sannleikann allan fáum vér hér aldrei, en vér fáum þá náð
að leita hans.
Séra Arni lýsti yfir að það væri sín skoðun, að sann-
leikann fyndi liver sanntrúaður maður undir krossi Krists, svo
sem stæði í þeim sálmi, sem frægastur væri á enskri tungu.
(iHellubjarg og borgin mín», og í þessum orðum séra Hall-
gríms Féturssonar: «Gegnum Jesú liclgast hjarta», etc.
Séra Hjörleifur kvaðst eigi geta verið samþykkur
fyrirlestrinum að öllu levti, einkum viðvíkjandi því, sem talað
var um eftirleitun sannleikans.