Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Blaðsíða 36
mér oft og víða vera of lítil áherzla lögð, bæði af mór og
öðrum.
Kg útliáta |iol! a ekki frekar, þar cð eg vona, að yður só
orðin skoðun míu full ]jós.
En það er mér vel ijóst, og eílaust einnig yður, að lilut-
verk það, sem vér höfum tekist á hendur að vinna, er afar
ervitt og vandasamt, en einnig at'ar áríðandi fyrir tímanlega
og eilífa velferð manna. pað er grundvöllurinn undir sannri
gæfu í lífinu hér og eftir dauðann. Og verk vort er því
meira þreytandi, sem það er misskilið eða lítils metið af of
mörgum, og vinnan þannig löguð, að ávöxturinn er vanalega
eigi sýnilegur og tvísýnn, og vór verðum sífclt að vinna í
v o n i n n i.
A hinn bóginn vitum vér allir, hve breyzkir og fjarri
hinni heilögu fyrirmynd, Kristi, vór erum. petta beygir oss
djúpt niður í mestu auðmýkt, og vér biðjum Guð um náð og
líkn, lið og ijós. Biðjum liann allir, að vera máttugan í
veikleika vorum fyrir Jesum Krist. Hann hjálpi oss í Jesú
nafni til þess, að vinna hans dýrðlega ríki til cllingar.
þess er vert að geta, að nútíminn lileður ýmsum störf-
um á íslenzkan prest, som eru óviðkomandi embætti hans, og
sem liljóta að taka mikið upp af hugsun hans og tíma. —
Hann verður að vera bóndi og helzt góður búmaður til
að geta lifað með fjölskyldu; af laununum tómum yrði líf
lians mjög víða á landinu reglulegt sultarlíf. Fólk lítur flest
smærri augum á prestinn, ef honum búnast illa. En virðing
fólksins fyrir prestinum er eitt af sMIyrðunum fyrir því, að
hann geti unnið gagn. Honum eru einnig falin oddvitastörf,
hreppsnefndastörf, sýslunefndastörf, amtsráðsstörfo. fl., og auk
þess vafsast hann oft í kaupfólagsstörfum og pólitík. Hversu
þetta spillir fyrir hinu eiginlega prestsstarfi hans, ætti öllum
að vera vel Ijóst.