Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Síða 10
10
fundinum með meiri hlut atkvæða, að hann væri samjiykkur
vínsölubanni, og greiddi enginn atkvæði á móti því.
5. Iíjör presta.
Flutningsmaður, séra Eyólfur Kolbeins, gat þess, að sóra
,lón á Mælifelli hefði átt að vera formælandi. Finst mega
tala um kröfur prestanna til nútímans. Alt, scm lífsanda
dregur, hefir 3 kröfur: a) Húsaskjól. Prestar yfir höfuð eigi
vel settir í því efni, þau hús, sem þeir liafa, als eigi boðleg,
þeir geta naumast lifað í þeim. b) Fæði. pað þurfamenn líka.
Nú er því svo varið, að tekjur eru víða litlar, og gjaldast oft
seint og með vanskilum. c) Hreifingar. Presturinn þarf að
hafa liollar hreifingar. En hann hofir þá sérstaklega óhollu
hreifingu, að þurfa að innheimta tekjur sínar. Landssjóður
á að sjá prestum fyrir skýli og fæði og losa þá við innheimt-
una.
Séra Hjörleifur. Fyrirkomulagið á bústöðum presta
er óhæfilegt, með þeim lánskjörum til bygginga, sem prestar
nú verða að sæta.
Séra Magnús kvað þá spurningu vaka fyrir sér, hvort
það efldi sannan kristindóm, að ræða um kjör presta. Gat
verið samdóma um bústað prestanna.
Sóra Benedikt lét í ljós, að hann vildi, að landsjóður
tæki við kirkjujörðunum, og greiddi prestum föst laun.
Séra Árni áleit, að ef menn vildu koma þessu máli í
hrcifingu, þá myndi lieppilegast, að senda áskorun til þings-
ins, að setja milliþinganefnd.
Séra Mattías talaði um mikla rjcttaróvissu á tekjum
presta.
Séra Magnús kvaðst eigi þekkja hana.
Séra E. Kolbeins kcmur með dæmi, er sýna óvissu
um lambsfóður o. íl.
Séra Magnús kveðst hafa gengið út frá sinni reynslu.
Séra Hjörleifur vill, að menn lialdi sjer betur við
efnið.