Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Page 37
Hvernig eigum vérað prédika?
Erindi, flutt á prestafundi á Akureyri 27. júní 1899, eftir
Jónas Jónasson.
pað liefir einatt verið sagt um okkur prestana af þeim,
sem hafa um okkur dæmt, að við prédikuðum fólkið út úr
kirkjunum, með öðrum orðum, að prédikun vor, boðun orðs-
ins, meðferð vor á inum kristilegu sannindum, færi oss ekki
betur úr hendi en svo, að fólkið yrði leitt á því; fólkið hætti
að koma til kirkjunnar, þættist ekkert liafa upp úr því að
fara, það væri alt af sama staglið, sami tónninn, og væri því
ckki ferðinni til kostandi að taka sig upp að heiman og fara
til kirkjunnar. petta er mál, sem mér er ekki auðið að leggja
dóm á. Til þess að geta það svo, að nokkur mynd væri á,
þyrfti maður að fara sér ferð um landið, og kynna sér pré-
dikunarhátt presta og safnaðarlífið sem víðast, auðið væri, og
leita upp annmarka þá, sem á þessu eru. En það geta fæstir
komið því við. Flestir, að rninsta kosti við prestar, erum svo
bundnir, að við getum það ekki, og höfum því aö eins þá tví-
ræðu ánægju, að heyra alt af til sjálfra okkar, og verður því
lítið úr um kunnugleik á þeim efnum. En hvað sem í þessu
kann nú að vcra hæft, að vér prédiluim fólkið út úr kirkjun-
um, þá er þó einn sá sannleikurinn órækur, að kirkjurækni
hofir nú um æði mörg ár farið allmjög hnignandi, og altaris-
göngur því nær lagst í dá. Eg fyrir mitt leyti kenni þetta
ekki prestunum eingöngu; það er tíðarandinn, þessi nú róð-
andi mentunartízka, scm miklu oða, ef til vill, mestu ræður