Helgarpósturinn - 29.05.1986, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 29.05.1986, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST ÞAU ERU ekki beint beysin launin fyrir austan tjald, eins og eftirfarandi saga sýnir: Tíðinda- maður póstsins hitti gamlan félaga sinn niðri á Lækjartorgi í nýliðinni viku og kvaðst sá vera að hverfa til skrifstofustarfa í Póllandi í sumar, en hann er menntaður í viðskiptafræði. Þetta hygðist hann einkum gera sér til upplifunar og skemmtunar. Engu að síður var Póllandsfarinn spurður hvað hann kæmi til með að hafa upp úr krafsinu. „Það verður víst eitthvað um 2100 íslenskar," svaraði hann heldur vandræðalega. ,,Nú jæja,“ brást tíðindamaður við og hélt áfram, „það er ekki svo slappt, gerir nærri tíuþúsund á mán- uði. . .!“ Að þeim orðum sögðum, varð Póllandsfarinn ennþá vand- ræðalegri. Og sagði svo hikandi: „Ja, þessar 2100 krónur eru nú eiginlega mánaðarkaupið, sjáðu. . .“ FYRIR ÞÁ sem fljótir eru að gleyma, gerðum við okkur að leik hérna á Helgarpóstinum fyrir fá- einum vikum að reikna út laun tekjuhæstu manna í landinu. 1 Ijósi þeirra niðurstaðna má bæta því við ofangreinda sögu, að allmargir íslendingar virðast hafa tvöföld pólsk mánaðarlaun á tímann, ég endurrita: á tímann. . . MÖNNUM HEFURorðið nokkuð tíðrætt um „klúbbinn" sem stofna á í tilefni Listahátíðar í Reykjavík og verður starfræktur á Hótel Borg meðan á hátíðinni stendur. Slíkir klúbbar hafa reynd- ar verið fastur liður á Listahátíð hin síðari ár, en nú ber svo við að framkvæmdin verður með nokkuð öðru móti en tíðkast hefur. Þeir sem vilja fá inngöngu í klúbbinn verða nefnilega að kaupa sér meðlimskort sem kostar 1200 krónur. Fyrir það lítilræði fá kort- hafar að blanda geði við ýmislegt stórmenni sem sækir Reykjavík heim í tilefni Listahátíðar — kannski lngmar Bergmann, en varla Picasso, því hann er dauður, og svo náttúrlega helstu broddana í menningarlífinu í höfuðborginni. Sú ákvörðun að ekki verði teknir inn fleiri en 400 klúbbfélagar ætti líka að tryggja það að þetta sam- neyti geti farið fram án óþægi- legrar átroðslu utanaðkomandi. Hinsvegar hcifa einhverjir úrtölu- menn verið að þusa um að það sé býsna stórt skarð í fjárhaginn að greiða 1200 krónur fyrir þann sem fer ekki nema einu sinni i klúbb- inn, hvað þá fyrir hjónin sem koma utan af landi til að hlusta á Dave Brubeck og langar þvínæst að skreppa niðrí klúbb. Og gott ef þeir voru ekki líka að fjasa um „snobb" — við megum kannski eiga von á því að stofnaður verði and-klúbbur Listahátíðar . . . MORGUNBLAÐIÐ birti hugðnæmt, en jafnframt hryggi- legt ævintýri um daginn, og það á síðu sem liefur einatt verið lögð undir pólitískt þras — sjálfri leið- arasíðunni. Ævintýrið fjallaði um nokkra íslendinga sem villtust af ógáti inní frumskóg og fóru villur vegar. Við getum ekki orðað þetta betur en Mogginn: „Málavextir vegna þessa mikla gjaldþrots minna á, hve viðskiptalífið er orðið flókið hér sem annars staðar. Stjórnendur fyrirtækja starfa í frumskógi lagareglna. Þeir rata ekki nema með leiðsögn sér- fræðinga. Þegar leiðir eru valdar kemur oft í Ijós, að engin ein er ótvírætt rétt. Fordæmi vantar svo til þess að fá úr því skorið, hvort það sé beinlínis lögbrot að fara einhverja þeirra. A þetta jafnt við um reikningsskil sem aðra ráð- stöfun fjármuna. í Hafskipsmálinu reynir vafalítið á mörg matsatriði af þessu tagi.. .“ Já, maður klökknar . . . ÞAÐ VERÐUR ekki sagt annað en Flokkur mannsins reki frekar nýstárlega kosningabaráttu, sem miðist ekki aðeins við þær kosningar sem fara í hönd heldur líka í fjarlægri framtíð. Þannig hitti einn starfsmanna HP flokk krakka úr þessum félagsskap á dögunum, sem réttu honum strax barmmerki með exi bandstriki og emmi. Okkar maður, frjáls og óháður, kvaðst ekki hafa áhuga á þessu merki og rétti krökkunum það aftur, en þau sögðu þá í einum brosandi og líflegum kór: „Þá skaltu bara gefa barninu þínu það...!“ MENN ERU eitthvað að blóta þessum frjálsu styrktarhapp- drættum með jöfnu millibili, en það er þeim sammerkt að gefa út meira en hundruð þúsund miða sem gerir það að verkum að aug- lýstir vinningar falla flestir á ókeypt númer. Og hér kemur heilagur sannleikur sem við heyrðum úr herbúðum eins af þessum happdrættum: Kvikindis- lega þenkjandi starfsmaður þess mun hafa gert sér leik að því um stund að hringja í fólk út um allt land, sem hafði fengið sent miða sem vinningar höfðu lent á, en ekki greitt þá, og spyrja hvort því fyndist þetta ekki vera gremjulegt og hvort því fyndist ekki núna að það hefði betur borgað miðana! Það fylgir þessari furðulegu sögu að margsinnis hafi verið skellt á 'ann. . . ÞAÐ ER enginn notandi með þetta símanúmer. Vinsamlega athugið hvort rétt símanúmer hefur verið valið.“ Þannig hljómar rödd símsvara ef hringt er sam- kvæmt nýútkominni bók, — Síma- skrá 1986. Póstur og sími hefur hafið dreifingu á þessum kjörgrip en mörg númer eru þar ný af nál- inni. Tekin hafa verið upp fleiri 6-númer en fæstar þeirra breyt- inga eru komnar í gagnið. Við hér á HP fregnum að nýja bókin taki gildi og breytingarnar verði keyrðar í gegn í fyrstu viku júní. Þangað til er eins gott að nota bara þá gömlu góðu.. . OG ENN af símanum. Það er mikið að gera hjá símvirkjum þessa dagana við að setja upp kosningasíma á hinar aðskiljan- legustu kosningaskrifstofur. Þannig var það með einn HP mann sem flutti í fyrri viku og datt í hug að færa símann, að honum var svar- að pent að það yrði sko enginn almúgasími færður fyrr en eftir kosningar. Þangað til væri ailur tími þeirra símfærslumanna upp- pantaður. . . OG ÞRIÐJA símasagan. Um áramótin síðustu lýsti samgöngu- ráðherra því fjálglega í ræðu að nú væri kominn sjálfvirkur sími um allt land og gömlu sveifatólin með stutt löng stutt heyrðu sög- unni til. I afskekktum byggðum Öxarfjarðar og Kelduhverfis kemur mönnum þetta spánskt fyrir sjónir og gömlum bændum dettur í hug að þeir sjálfir séu nú taldir eitthvað aftan úr 19. öldinni. Þar er ennþá stutt og löng hálfu ári eftir að sjálfvirkur kom um allt land... HELGARPUSTURINN Ekkert mál Alfreð bað um piss hann Jón minn Pál, að pínulitlum dropa úr sér skvetti. Kappinn sagði mér er ekkert mál, en míga skal ég fyrir Hæstarétti. Niðri. Hafðirðu skrifað lengi fyrir skúffuna? Guðmundur Ólafsson leikari „Bæði já og nei. Ég hafði dálítið fengist við að skrifa þó að það hefði mestmegnis verið fyrir sjálfan mig. En fyrir tveimur, þremur árum sendi ég inn smásögu í samkeppni sem Samtök móðurmálskennara stóðu fyrir. Konan mín, Olga Guðrún Árna- dóttir, fékk að vísu fyrstu verðlaun, en sagan mín var eigi að síð- ur valin til birtingar í smásagnasafninu sem Samtök móður- málskennara gáfu út. Sú saga var það fyrsta af mínum ritsmíð- um sem kom fyrir almenningssjónir." — Varð þessi barnabókasamkeppni þér síðan hvati til frekari afreka á ritvellinum? „Já, hún hvatti mig vissulega. Ég var reyndar byrjaður á sög- unni um Emil og Skunda en hafði hugsað hana sem langa smá- sögu. En þegar ég frétti af þessari samkeppni ákvað ég að lengja hana. Mig langaði fyrst og fremst að sannreyna fyrir sjálfan mig hvort ég yfirleitt entist til að skrifa. Því ýmsir vilja gjarnan skrifa en hafa ekki úthald til að sitja nógu lengi við. En ég varð náttúrulega ákaflega undrandi þegar hringt var í mig og mér tilkynnt úrslit dómnefndarinnar." — Lastu söguna fyrir börnin þín jafnóðum og þú samdir hana? „Þegar ég var búinn að skrifafjóra, fimm kaflasagði ég börn- unum mínum að kunningi minn hefði beðið mig um að yfirfara fyrir sig sögu. Svo las ég fyrir þau kaflana og spurði hvort þeim fyndist að þessi kunningi minn ætti að halda áfram með sög- una. Ég hagræddi sannleikanum lítið eitt til þess að þau yrðu ekki of hlutdræg. Krökkunum leist vel á söguna og þá upplýsti ég að ég væri í rauninni höfundurinn. Hefðu þau verið mjög nei- kvæð er ég ekki viss um að ég hefði haldið áfram með hana." — Er sagan ætluð einhverjum tilteknum aldurshópi? „Það veit ég svei mér ekki. Ég reikna með að krakkar allt frá sex, sjö ára aldri og upp í tólf, þrettán ára geti haft gaman af henni, jafnvel eldri unglingar. Við höfum haft þann háttinn á hér á heimilinu að við lesum oft fyrir börnin okkar sögur sem ætlað- ar eru miklu eldri börnum, og jafnvel fullorðnum. Bókmennta- áhugi barna mótast af því sem þau eru vanin við." — Hvað viltu svo láta uppi um söguþráðinn? „Sagan fjallar um strák sem á heima í Reykjavík og á foreldra sem eru að byggja eins og svo margir aðrir. Hann langar til að eignast hund og fer að safna sér fyrir hvolpi. Sagan gengur mestmegnis út á þetta og síðan hvað gerist þegar hann eignast hvolpinn. Meira vil ég ekki segja um söguþráðinn því ég vænti þess að sagan sé spennandi á köflum og því vil ég ekki spilla eftirvæntingunni fyrir lesendum." — Hvaðan kemur þetta fáheyrða nafn, Skundi? „Þetta nafn er mér dálítið kært vegna þess að afi minr, sálugi átti hund með þessu nafni. En ég hef ekki heyrt þetta hunds- nafn hvorki fyrr né síðar. Og vonandi á hvolpurinn hans Emils síðar meir eftir að verða frár á fæti í samræmi við nafngiftina." — Og hyggstu ekki halda áfram að skrifa? „Jú, ég hef áhuga á því. Það er nokkuð nærtækt fyrir mig þar sem ég vinn í leikhúsi og er því stöðugum samvistum við bókmenntirnar. Ég er farinn að hugsa fyrir næstu sögu sem verður líka fyrir krakka þótt hún sé annars eðlis en Emil og Skundi." Guðmundur Ólafsson leikari hlaut á þriðjudag fyrstu verðlaun sem veitt eru úr Verðlaunasjóði íslenskra barnabóka fyrir bók sína Emil og Skundi. i dómnefndaráliti segir m.a.: „Sagan er vel samin og skemmti- leg. Persónusköpun er góð, söguhetjan trúverðug og bregst við vanda- málum á rökréttan hátt. Söguþráður er spennandi og umhverfi allt rót- fast í íslenskum veruleik." Við verðlaunaafhendinguna kom fram í ávarpi Ólafs Ragnarssonar útgefanda og formanns stjórnar Verðlauna- sjóðs íslenskra barnabóka, að dómnefndarmenn hefðu verið á einu máli um að bakvið dulnefnið sem höfundur Emils og Skunda skýldi sér með leyndist einhver þekktur og reyndur höfundur barna- og unglinga- bóka, svo kunnáttusamlega væri sagan skrifuð. En reyndin var önnur. Hér var kominn fram á sjónarsviðið nýr höfundur og verðlaunabókin Emil og Skundi hans fyrsta bók. HELGARPÖSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.