Helgarpósturinn - 29.05.1986, Síða 16
eftir Friðrik Þór Guðmundsson
SLEGIST UM
BÍLNÚMERIÐ
Um 6 vikna skeið voru
tveir einstaklingar með
númerið 1-3, annars vegar
Pétur Halldórsson, starfs-
maður vélsmiðju (hann á
Mitsubishi-inn), hins vegar
Þorbjörn Sveinsson,
slökkviliðsstjóri (sem á
Volvo-inn). Sýslumaður
hefur kveðið upp úrskurð;
slökkviliðsstjórinn fær að
halda númerinu. Sýslu-
maðurinn sjálfur, Pétur Kr.
Hafstein, ekur um á 1-1, en
það númer fylgir reyndar
embættinu.
Pétur Haildórsson;
Fyrirslattur
hjd
sýslumanni
,, Pétur sýslumaður sagði fyrst að
ég fengi númerið, en skipti síðan
um skoðun. Mér viröist sem hann
sé of stór karl í sér til að leiðrétta
þetta. Mér finnst greinileg stétta-
skiptingarlykt af þessu og hef
reyndar heyrt dœmi um að sýslu-
menn vilji ná til sín lágu númerun-
um í því skyni að úthluta þeim til
valinkunnra vildarvina," sagði
Pétur J. Halldórsson, starfsmaður
vélsmiðjunnar Þórs á Isafirði um
baráttu sína við að halda númer-
inu f-3.
„Sýslumaður hefur kúvent í
þessu máli og útskýringar hans
eru fyrirsláttur einn. Bifreiðaeftir-
litið í Hafnarfirði segist hafa fulla
heimild til að úthluta mér númer-
inu. Það er vissulega venja, að
þegar lágum númerum er endur-
úthlutað beri að fá heimild sýslu-
manns, en ekki í þeim tilfellum þar
sem um sama eiganda er að ræða,
eins og í mínu tilfelli. Ég ræddi við
fulltrúa í dómsmálaráðuneytinu,
en hann vildi ekkert gera í málinu.
Síðan ræddi ég við Árna Grétar
Finnsson lögfræðing og hann
sagði að ég gæti farið í mál, en það
myndi taka langan tíma og yrði
dýrt og ég treysti mér ekki í slíkt.
Og nú er búið að taka númerið af
mér,“ sagði Pétur Halldórsson.
Það hafa sjálfsagt flestir heyrt um
þá samkeppni sem ríkir milli áhuga-
manna um að eignast sem lœgst
skráningarnúmer á bíla sína. Slík
númer ganga gjarnan kaupum og
sölum fyrir all álitlegar og stundum
lygilegar upphœðir. Kunnugir segja
okkur þannig að í Reykjavík gangi
þriggja talna númer á milli 60 og
120 þúsund krónur og enn hœrri
upphœðir fyrir lœgri númer. Þannig
er okkur sögð algjörlega óstaðfest
saga af ónefndum forstjóra bílasölu
á höfuöborgarsvœðinu sem á að
hafa„verslað“ einnar tölu bílnúmer
og greitt fyrir heila fólksbifi vC, se>u
í dag er metin á eina milljón kröna!
Sjálfsagt ýkt, en eftir stendur að
miklar upphœðir eru í spilinu og
ekki óalgengt að gott númer hœkki
verð á bílum upp úr öllu valdi.
Á ísafirði hefur staðið styr um
númerið 1-3. Fyrir tveimur árum
fékk Pétur Halldórsson, starfsmaður
vélsmiðjunnar Þórs, þetta númer
við bílakaup. Pétur seldi bílinn í
september 1985, en kaupandinn
umskráði ekki fyrr en í febrúar sl. í
millitíðinni hafði Pétur flutt frá ísa-
firði til Hafnarfjarðar og um leið lög-
heimili sitt. Pétur fór að lengja eftir
númeri sínu og hringdi í bifreiða-
eftirlitið á ísafirði, sem tjáði honum
að búið væri að umskrá, en númera-
plöturnar ekki komnar. Allt um það,
Rétur Halldórsson: „Greinilega stétta-
skiptingarlykt af þessu".
Pétur pantaði nýjar plötur í Hafnar-
firði og fékk í framhaldi af því núm-
erið umskráð á nýja bifreið og í
sama mánuði flutti hann lögheimili
sitt til Isafjarðar á ný. í lok mánaðar-
ins skipti hann aftur um bifreið og
umskráði hjá bifreiðaeftirlitinu í
Hafnarfirði 2. apríl.
Tveir með sama númerið
Síðan gerðist það nokkrum dög-
um síðar að Pétur var beðinn að
hafa samband við sýslumanninn á
ísafirði, Pétur Kr. Hafstein, sem
hann gerði. Þá kom í ljós að sýslu-
maðurinn hafði 7. apríl úthlutað
númerinu 1-3 til nýs slökkviliðsstjóra
þar í bæ, Þorbjarnar Sveinssonar.
Að sögn Péturs tjáði sýslumaður
honum að Pétur hefði verið talinn
alfluttur suður og með lögheimili í
Hafnarfirði og hann ætti því ekki
rétt á númerinu. Pétur benti sýslu-
manni hins vegar á að hann hefði
flutt lögheimili sitt vestur og það áð-
ur en hann fékk númerið umskráð á
ný í Hafnarfirði. Sýslumaður bað
um staöfestingu á þessu og fékk síð-
an ljósrit af kvittun um aðseturs-
skipti og flutning lögheimilis til ísa-
fjarðar. Um leið komst Pétur að því
að Þorbjörn slökkviliðsstjóri Sveins-
son var enn með lögheimili í Hafn-
arfirði.
Embættin eru ósammóla!
Að sögn Péturs hafði sýslumaður
tjáð honum að með staðfestingunni
fengi hann réttinn til númersins, en
skyndilega hafi sýslumaður breytt
þessu og sagt að lögheimilið skipti
ekki máli heldur búsetan. Pétur leit-
aði álits á þessu hjá bifreiðaeftirlit-
inu í Hafnarfirði og þar var honum
tjáð að það væri lögheimilið sem
skipti máli en ekki búsetan. Pétur
benti sýslumanni á þetta misræmi,
en þá segir Pétur sýslumann enn
hafa breytt um stefnu og sagði hann
að hvorki lögheimilið né búsetan
skipti mestu í málinu, heldur sú
staðreynd að bifreiðaeftirlitið í
Hafnarfirði hefði úthlutað honum
númerinu án heimildar, þar eð
starfsregla væri að úthlutun númera
undir ákveðinni tölu — á ísafirði 100
— mætti ekki fara fram án sam-
þykktar lögreglustjóraembætta á
viðkomandi stöðum. Hjá eftirlitinu í
Hafnarfirði var Pétri aftur á móti
tjáð að úthlutunin hefði verið með
fullum rétti.
Það gerðist síðan 20. maí síðast-
liðinn að númerið í-3 var tekið af
Pétri og Þorbjörn slökkviliðsstjóri er
einn um þetta eftirsótta númer.
Pétur er hins vegar á ísafirði með
óskráðan bíl. Þessari orrustu er lok-
ið, en bílnúmerastríðið heldur
áfram!
Pétur Kr. Hafstein
sýslumaður:
Mistök í
Hafnarfirði
,,Úthlutun númersins 1-3 í Hafn-
arfirði var óheimil, þar áttu sér
stað viss mistök. A hinn bóginn
var úthlutunin á númerinu hér á
ísafirði til Þorbjarnar Sveinssonar
í samrœmi við starfsreglur, því þó
hann hafi ekki haft hér lögheimili
þá bar honum að umskrá bifreið
sína þar eð hann mun dveljast hér
lengur en í 6 mánuði. Mér fannst
ég ekki geta afturkallað úthlutun-
ina til Þorbjarnar á þessum for-
sendum og afturkallaði því úthlut-
unina frá bifreiðaeftirlitinu í Hafn-
arfirði til Péturs Halldórssonarý
sagði Pétur Kr. Hafstein bœjar-
fógeti á ísafirði og sýslumaður ísa-
fjarðarsýslu um málið.
„Pétur hefði sjálfsagt haldið
þessu númeri ef þeir hjá eftirlitinu
í Hafnarfirði hefðu farið eftir regl-
um, enda hafa menn með lög-
heimili á ísafirði haldið sínum
númerum þó þeir flytji brott um
tíma. Pétur var með lögheimili í
Hafnarfirði, þar sem hann lagði
númerið inn. Plöturnar voru send-
ar hingað. Pétur flutti síðan lög-
heimili sitt aftur til ísafjarðar, sem
mér var ekki kunnugt um. Eftir
stendur að útdeilingin í Hafnar-
firði var óheimil, enda víðast hvar
ríkjandi sú starfsregla að ekki
megi úthluta númerum undir
ákveðinni tölu — hér 100 og mjög
víða — nema með leyfi viðkom-
andi lögreglustjóraembættis. Á hinn
bóginn var úthlutun númersins
hér í samræmi við reglur og á
þeim forsendum tók ég þessa
ákvörðun," sagði Pétur Kr. Haf-
stein.
Pétur Kr. Hafstein, sýslumaður: „Úthlut-
unin hér í samræmi við reglur og á
þeim forsendum tók ég þessa
ákvörðun."
16 HELGARPÓSTURINN