Helgarpósturinn - 29.05.1986, Page 20
Tímamót £ fóðurframleiðslu
á Islandi
Fóðurblandan hf. hefur flutt alla
starfsemi sína í nýja, fullkomna fóð-
urverksmiðju að Korngarði 12 við
Sundahöfn. Með opnun nýju verk-
smiðjunnar verða ekki einungis
þáttaskil í 25 ára sögu Fóðurblönd-
unnar hf. heldur og tímamót í fóður-
framleiðslu á Islandi.
Við hönnun verksmiðjunnar höfum
við í senn tekið mið af reynslu okkar
og hugviti svissneskra völundar-
smiða. Arangurinn er tæknilega full-
komin fóðurverksmiðja þar sem
tölvutækni er nýtt við eftirlit og alla
vinnslu. Þetta gerir okkur meðal ann-
ars kleift að blanda fóðrið nákvæm-
lega í þeim hlutföllum sem uppskrift-
irnar segja til um og að auka mjög
vinnsluhraða og fjölbreytni. Með
þessu móti verða blöndurnar okkar
alltaf nýjar og ferskar er þær berast
kaupandanum.
✓
I heild sinni mun nýja verksmiðjan
leiða af sér enn betri fóðurblöndur og
fullkomnari þjónustu. Nú, á tímum
kvótakerfls og offramleiðslu, er mikil-
vægara en nokkru sinni að standa rétt
að fóðrun búfjár. Skynsamleg notkun
kjarnfóðurs, byggð á þekkingu og
reynslu, er forsenda hagkvæmni í bú-
rekstri.
Bændur! Hafið samband við okkur og
nýtið ykkur fullkomnustu tækni í fóð-
urblöndun.
FÓÐURBLANDAN HF.
KORNGARÐI12 S: (91)687766 SUNDAHÖFN
FORYSTA Í FÓÐURBLÖNDUN
Landhelgisgæslunnar og Slysa-
varnafélags Islands. Eins og
mönnum er enn í fersku minni gaf
gæslan SVFÍ varðskipið Þór í byrjun
ársins og var fleyið þegið með þökk-
um og kemur til með að verða notað
við kennslu í slysavörnum fyrir sjó-
menn. En hér kemur þá málið:
Nokkru eftir gjöfina höfðu slysa-
varnamenn samband við forstjóra
Landhelgisgæslunnar, Gunnar
Bergsteinsson sem að undanförnu
hefur verið í gagnrýnu sviðsljósi
vegna meininga Jóns Sveinsson-
ar. Þeir spurðu Gunnar hvort SVFÍ
væri ekki leyfilegt að nota Þórsnafn-
ið áfram á skipið. En Gunnar hélt nú
ekki og sagði að Landhelgisgæslan
yrði að halda eftir þessu fræga nafni
úr sögu stofnunarinnar, annað væri
ekki verjandi. Þessvegna brá slysa-
varnamönnum talsvert í brún á dög-
unum þegar þeir fréttu að sami
Gunnar hefði veitt vini sínum og
bílaviðgerðarmanni, sem við höfum
því miður ekki nafnið á enn, leyfi til
að nota Þórsnafnið á hraðbát sinn,
sem Gunnar mun reyndar hafa leyfi
til að nota öðruhvoru.. .
Þ
að er ekki í hverri viku sem
Helgarpósturinn birtir fréttir af
starfi skátahreyfingarinnar, en
hér á eftir er gerð bragarbót á því:
Við heyrum nefnilega að fyrir dyr-
um standi undirbúningur að gríðar-
mikilli hátíð skáta í Viðey á kom-
andi sumri. í tengslum við landsmót
hreyfingarinnar verður þar haldin
fjölbreytt útiskemmtun fyrir fjöl-
skylduna með vísi að tívolíi og
kaðlaævintýrum að hætti þessa fé-
lagsskapar. Skátarnir ætla að nefna
þetta framtak sitt „Nýtt lýðveldi"
eftir því sem HP heyrir ennfrem-
ur...
lESn það verður ekki bara ging-
gang-gúlli-gúlli í Viðeynni. Jafn-
framt landsmóti sínu í eynni og fjöl-
skylduskemmtuninni sem við dráp-
um á hér á undan, ætla skátarnir
að skipuleggja ítarlegan ratleik um
borgina, sem er einskonar fótgang-
andi rall sem allir geta tekið þátt í,
jafnt smáir sem stórir. Þetta verður
framlag hreyfingarinnar til 200 ára
afmælishátíðar borgarinnar í sum-
ar. . .
--------------
Bílbeltin
hafa bjargað
BÍLALEIGAN ÓS
Langholtsvegi 109 (í Fóstbræömheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greiðslukorta
þjónusta
Sími 688177
20 HELGARPÓSTURINN