Helgarpósturinn - 29.05.1986, Side 21
unum í höfuðborginni. Byrjaði á
besta vini Dags, Tímanum en þar
var Degi alltaf hent. Mogga, DV,
Þjóðvilja og meira að segja fjór-
blöðungnum Alþýðublaðinu var
aftur á móti haldið vandlega til
haga. Sama sagan var hér á HP.
Morgunblaðið hafði ekki séð
ástæðu til að halda upp á litla bróð-
urinn og síðast var að reyna Þjóðvilj-
ann. Þar er Degi safnað og komm-
arnir eru líklegast þeir einu sem
hafa viðurkennt þennan norð-
lenska Dag sem dagblað. Að vísu
var ekki byrjað að halda málgagni
norðlenskra framsóknarmanna til
haga þar fyrr en fyrir u.þ.b. einum
mánuði. . .
Símanúmer okkar er
að er erfitt að vera yngstur
og minnstur í þessari veröld. Þegar
svo við bætist að tilheyra þeim
minnihluta sem býr utan höfuðborg-
arsvæðisins er síst von á góðu. Á
dögunum réðust framsóknarmenn
á Akureyri í það að breyta lands-
byggðarpósti sínum Degi í dagblað.
A dagblöðunum hér í Reykjavík hef-
ur lengi viðgengist að líma inn í
möppu öll hin dagblöðin. Því var
það þegar kunningja HP var bent á
merkilega grein í mánaðargömlum
Degi að hann hélt nú að auðsótt yrði
að fletta slíku upp hjá stóru systkin-
þotufluxji h£
Grandagarði 1 b, Reykjavík
Með vænni sneið af SS-álej
breytir þú venjulegu
brauði í ósvikið sælgæti
mk ■inir sterkefnuðu fyfsalar
landsins gera það ekki endasleppt.
Nú heyrir Helgarpósturinn að Inn-
kaupasamband apótekara, Pharm-
aco sé að kaupa meirihlutann í vá-
tryggingafélaginu Reykvískri end-
urtryggingu. Pharmaco mun vera
að kaupa hlut tveggja af þremur
stjórnarmönnum RE, en þeir eru
Aleggið frá Sláturfélaginu er ótrúlega
fjölbreytt. Við framleiðum 17 tegundir
af bragðgóðu, fitulitlu brauðáleggi úr
besta fáanlegu hráefni.
Allar matvörur Sláturfélagsins eru
framleiddar með nýtísku tækjabúnaði
undir ströngu gæðaeftirliti fagmanna.
Umbúðirnar eru líka eins vandaðar og
kostur er — það tryggir hámarks
geymsluþol.
Við kynnum hér nokkrar vinsælustu
tegundirnar:
Spægipylsan
okkar var
upphaflega gerð
eftir danskri uppskrift
fyrir meira en hálfri öld.
Hún hefúr síðan stöðugt verið
þróuð og aðlöguð smekk
neytenda hvetju sinni.
Reykt beikonskinka
er nýjung frá SS sem vakið hefur
verðskuldaða athygli.
Hún er löguð úr fituhreinsuðum svínasíðum.
Sérlega bragðgóð.
engir aðrir en Ragnar Kjartans-
son og Björgólfur Guðmunds-
son, sem nú eru í vörslum RLR í
rannsókn vegna meintra auðgunar-
brota í Hafskipsmálinu. Það er
kannski við hæfi að lyfsalarnir hasli
sér völl í slysa- og sjúkratryggingum
og taki við skipatryggingunum af
Hafskips-bræðrunum...
r viðskiptalífinu á bílamark-
aðinum hefur okkur borist sú flugu-
fregn að Skoda-umboðið Jöfur h/f
sé um þessar mundir að ganga frá
kaupum á Peugeot-umboðinu
Hafrafelli h/f. Uppgangur Jöfurs
hefur verið talsverður undanfarin
ár og umboðið með auk Skoda,
Chrysler og Alfa Romeo, hjólbarða-
tegundirnar Firestone, Copper og
Barum. Með kaupunum bætast síð-
an við Peugeot og Talbot bifreiðir og
Kleber hjólbarðar, ef heimildir okk-
ar reynast réttar.. .
Rúllupylsan
er framleidd
samkvæmt ævagamalli
íslenskri hefð og hefúr verið
óbreytt í áraraðir. Sívinsæl
í ferðanestið.
Malakoff
er ódýr og fitulítil
pylsa sem við höfum framleitt
lengi við miklar vinsældir. Tilvalin í
—skólanestið.
■^rýningin Matarlist ’86 var
haldin í Laugardalshöllinni um
daginn, eins og tæpast hefur farið
framhjá nokkrum manni. Nemend-
ur Hótel- og veitingaskólans
stóðu fyrir sýningunni af miklum
myndarskap, en til hafði staðið að
Kaupstefnan Reykjavík hf. ætti
þarna einnig hlut að máli. Þegar
undirbúningurinn var eitthvað á
veg kominn, kom hins vegar upp
mikil óánægja í undirbúningshópn-
um með afskipti aðila frá Kaupstefn-
unni. Það varð úr að samningnum
við fyrirtækið'var rift, ,,til þess að
við fengjum vinnufrið", eins og einn
aðstandandi sýningarinnar orðaði
það. Þetta fékkst þó ekki í gegn,
nema með því móti að lofa Kaup-
stefnumönnum 900 þúsundum
króna fyrir að hverfa af vettvangi.
Greiðsla hefur enn ekki farið
fram, því undirbúningshópurinn tel-
ur viðsemjendur sína ekki hafa upp-
fyllt öll skilyrði-eamningsins. . .
Lamba- og svínaskinkurnar
okkar eru einnig unnar úr völdum fitulausum
vöðvum. Þær eru bæði frábærar sem
brauðálegg og til steikingar
a pönnu.
Dallaspylsa
heitir nýjasta áleggið okkar.
Hún hefur fengið mjög góðar undirtektir
enda löguð eftir geysivinsælli
þýskri uppskrift.
Frísklegt kryddbragðið kitlar vandlátustu
bragðlaukana.
Hangiáleggið
frá SS er unnið úr sérvöldum, fituhreinsuðum
vöðvum. í það fara engin fyllingar-
eða þyngingarefni.
Sígilt álegg sem alltaf er jcifn vinsælt.
SUÐURLANDS
SLATURFELAG
HELGARPÓSTURINN 21