Helgarpósturinn - 29.05.1986, Síða 31
Listahátíð sett á laugardag:
Doris Lessing, Picasso og
250 þúsund króna smásaga
Það þarfvtst enginn ad kvarta yfir
því að nœsta helgi verði viðburða-
snauð; áhugamenn um fótmenntir
og boltaspark fá smjörþefinn af
heimsmeistarakeppninni beint frá
Mexíkó; áhugamenn um pólitískt
þjark og þras kœtast yfir bœjar- og
sveitarstjórnakosningunum; áhuga-
menn um fagrar listir og menningu
standa í löngum biðröðum í þeirri
von að fá að líta stórstjörnur sem
koma hingað norðureftir í tilefni
Listahátíðar.
Já, Listahátíð í Reykjavík verður
sett núna um helgina með mikilli
viðhöfn á Kjarvalsstöðum, Davíð
Oddsson borgarstjóri og frambjóð-
andi hefur reyndar beðist undan
þeim heiðri að setja Listahátíðina á
kjördag, en maður kemur í manns
stað í Sjálfstæðisflokknum, og
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra ætlar að hlaupa í vandfyllt
skarð Davíðs — varla að þar verði
heldur neinn skortur á málsnilld og
hugarleiftrum kvikum.
Setningarathöfnin er annars
býsna virðuleg, einsog þykir hæfa á
slíkum stundum; að lokinni ræðu
Sverris flytur Martin Berkofsky þrjú
íslensk þjóðlög í útsetningu Hafliða
Hallgrímssonar; þvínæst afhendir
rithöfundurinn frægi, Doris Lessing,
verðlaun í smásagnakeppni Listahá-
tíðar — óneitanlega býsna spenn-
andi að sjá hver hreppir hnossið. Að
því loknu verða tvær viðamiklar
myndlistarsýningar opnaðar á Kjar-
valsstöðum; Picassosýningin, dýr-
asta myndlistarsýning sem haldin
hefur verið á Islandi — þ.e.a.s. ef list-
in er mæld í peningum — og sýning-
in Reykjavík í myndlist, náttúrulega
i tilefni tvöhundruð ára afmælis höf-
uðborgarinnar. Opnunarathöfnin á
Kjarvalsstöðum hefst klukkan 14 á
laugardaginn.
•Síðdegis þann dag, um það leyti
sem boltavinirnir setjast við sjón-
varpið, leikur svo filippínski píanó-
leikarinn Cecile Licad einleik með
Sinfóníuhljómsveit íslands í Há-
skólabíói. Hún mun glíma við Kons-
ert no. 2 fyrir píanó og hljómsveit
eftir Rachmaninoff, en auk þess
leikur hljómsveitin verk eftir Jón
Nordal og Dvorak.
Doris Lessing fer aftur á stjá á
sunnudaginn, i þetta sinn í Iðnó. Á
samkomu sem hefst kl. 16 flytur
Magdalena Schram fyrirlestur sem
nefnist „Doris Lessing og ritverk
hennar", Arnar Jónsson, Kristbjörg
Kjeld og Bríet Héðinsdóttir lesa úr
verkum Doris Lessing, en síðan flyt-
ur skáldkonan sjálf fyrirlestur sem
hún nefnir „Gullöld skáldsögunnar".
Að lokum gefst áheyrendum færi á
að spjalla og bera fram fyrirspurnir.
Af miðasölunni á Listahátíð má
ráða að marga fýsir að sjá Flam-
enco-dansflokkinn frá Spáni leika
listir sínar. Hann mun troða upp í
veitingahúsinu Broadway á sunnu-
dagskvöldið kl. 20.30 og aftur í
Þjóðleikhúsinu á sama tíma á mánu-
dagskvöldið. Og fer nú hver að
verða síðastur að ná sér í miða.
Á sunnudagskvöldið opnar einnig
í Listasafni íslands sýning á verkum
Karls Kvaran, yfirlitssýning sem
spannar feril þessa sanntrúaða ab-
straktmálara.
Þetta er sumsé það helsta sem
verður á dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík um helgina.
-EH.
Leikhúsið Brúðubíllinn á 10 ára afmæli í sumar, en einsog kunnugt er ferðast útileik-
húsið milli gæsluvalla borgarinnar í júnímánuði ár hvert og kemur tvisvar sinnum á
hvern gæsluvöll á því tímabili.
í sumar verða sýndir tveir einþáttungar sem hvor um sig tekur hálfa klukkustund.
Sá fyrri heitir „Brúðubíllinn 10 ára" en það er blönduð dagskrá, bæði nýtt efni og valið ■
efni frá fyrri sýningum. Seinni einþáttungurinn heitir „Úlfurinn og kiðlingarnir sjö"
í leikgerð Helgu Steffensen. Sigríður Hannesdóttir semur vísurnar en báðar stjórna þær
brúðunum og Ijá þeim raddir ásamt leikurunum Erni Árnasyni, Aðalsteini Bergdal og
Þórhalli Sigurðssyni, en hann er einnig leikstjóri hljóðbandsins. Það er tekið upp hjá
„Ljósum punktum".
Laugardaginn 31. maí verður opnuð samsýning þeirra kvenna, sem standa að Gallerí
Langbrók — Textíl að Bókhlöðustíg 2 í Reykjavík. Sýningin ber nafnið „Flækja" og
verður þar sýndur vefnaður, skúlptúr, fatnaður og þrykk. Aðgangur er ókeypis, en opið
er alla daga frá kl. 14 til kl. 18.
Beckett sviðsetur Beckett:
Fangaleikhópur frá San Quentin
til íslands í haust?
Nóbelshöfundurinn írski, Samuel
Beckett, er áttrœður á þessu ári,
sem varla hefur farið framhjá fjöl-
mörgum aðdáendum hans hér á
landi. Og eftilvill munu þeir fá ærna
ástœðu til að kœtast á afmœli karls-
ins — nokkrir óbangnir íslendingar
vinna nefnilega að því þessa dag-
ana að fá hingað til lands frœgan
leikhóp sem túlkar þrjú verk Beck-
etts undir yfirskriftinni „Beckett
sviðsetur Beckett".
Leikritin þrjú eru gamalkunn —
Endatafl, Beðið eftir Godot og Síð-
asta orðræða Krapps, löngu orðin
sígildar bókmenntir öll. Leikhópur-
inn er hinsvegar svolítið óvenjulega
samansettur; hann er nefnilega
upprunninn úr San Quentin fangels-
inu í Bandaríkjunum, það eru níu
fyrrverandi tugthúslimir sem hafa
sett leikritin á svið — undir leik-
stjórn meistarans sjálfs. Og það þyk-
ir téðum Beckett-aðdáendum ekki
svo lítið, enda fer líklega hver að
verða síðastur að sjá verk Becketts
undir leikstjórn Becketts. Þetta er
sumsé Beckett einsog hann gerist
hreinastur og tærastur — kannski
ekki síst vegna reynslu leikaranna
úr grjótinu. Einsog þeir sem þekkja
verk Becketts vita eru þau uppfull af
anda innilokunar, vonleysis, leið-
inda og endurtekninga — það er
ekki örgrannt um að þetta ættu að
vera kenndir sem fangar þekkja
öðrum betur, enda hefur Beckett
alla tíð sýnt uppfærslum fanga á
verkum sínum mikinn áhuga. Leik-
hópurinn frá San Quentin lék í
Kaupmannahöfn á dögunum við
mikla hrifningu, í samtölum við Is-
lendinga þar létu þeir í ljósi mikinn
áhuga á að koma hingað — vonir
standa til að það geti orðið í
haust. . .
Listahátíð í Nýló:
Ljóðrænar abstraktsjónir og
Gilbert og George
Það eru listahátíðir víðar en
Listahátíð í Reykjavík og þarfekki
einu sinni að fara útúr bœnum til
að rekast á eina slíka. 1 Nýlista-
safninu við Vatnsstig opna á laug-
ardaginn 31. maí hvorki fleiri né
fœrri en 10 ungir Austurríkismenn
sýningu. Atta karlar og tvœr kon-
ur. Listamennirnir 10 hafa vakið
talsverða athygli úti í hinum stóra
heimi og nokkur fengur að fá þau
hingað til lands. Öll vinna þau
abstrakt myndir, allt frá Ijóðrœn-
um abstraktsjónum át í harða
geómetríu.
Listamennirnir leita aftur í tím-
ann í gamlar stefnur sem lítil sem
engin rækt hefur verið lögð við
spkum hins mikla hraða sögunnar.
Út frá þessum punkti hefja Austur-
ríkismennirnir tíu rannsóknir sín-
ar sem formbirtast í verkunum.
Nýlistasafnið telur þessa sýningu
góða viðbót við Listahátíð í
Reykjavík, en hún stendur til 15.
júní og er opin frá klukkan 16 til 22
virka daga en 14 til 22 um helgar.
Nýlistasafnið stendur einnig fyr-
ir sýningu á kvikmynd eftir Bret-
ann og Italann Gilbert og George.
Þeir hafa komið víða við í list-
heiminum, t.d. leikið kyrrar
myndastyttur á listahátíðum í
Bretlandi. Kvikmyndin er The
World ufGilbert og George. Heim-
ildir HP telja þessa mynd allra at-
hygli verðar. Kvikmyndin verður
sýnd í MÍR-salnum Vatnsstíg 3
laugardaginn og sunnudaginn 31.
maí og 1. júní klukkan 21. Kostar
hundraðkall. Góða skemmtun.
-gpm
í tilefni Listahátíðar I Reykjavík 1986 verð-
ur á sunnudag opnuð yfirlitssýning á
verkum Karls Kvarans listmálara í Lista-
safni Islands. Á sýningunni eru alls 96
verk, olíumálverk, gvassmyndir, vatnslita-
myndir og klippimyndir. Sýningin spann-
ar allan listferil hans, og er elsta myndin
frá 1941 en þær yngstu frá þessu ári. Sýn-
ingin verður sem fyrr segir opnuð sunnu-
daginn 1. júnf, stendur til 29. júníog verð-
ur opin daglega frá kl. 13.30 til 22 meðan
á Listahátíð stendur.
Stórsveit stofnuð um ICY-hópinn:
Faraldur
Úr hljómsveitargeiranum berast
þœr fréttir að stofnuð hafi verið stór-
hljómsveit í kringum ICY-hópinn
svonefnda, sem eins og kunnugt er
flutti Evrópubúum Gleðibankann í
Bergen í siðasta mánuði. Hljóm-
sveitin heitir Faraldur.
Auk Pálma Gunnarssonar (bassi
og söngur), Helgu Möller og Eiríks
Haukssonar, eru meðlimir grúpp-
unnar þeir Tryggvi Húbner á gítar,
Pétur Hjaltestedt á hljómborð, Jens
Hanson á sax og Sigurður Reynis-
son á húðir.
Faraldur fer um landið í sumar,
ásamt tveimur leikurum, þeim Arn-
ari Jónssyni og Eggerti Þorleifssyni,
en þeir verða í sameiningu og sitt í
hvoru lagi með ýmis grínatriði milli
laga. Þetta er í fyrsta sinni sem þess-
ir landsþekktu listamenn fara í álíka
Iandsreisu.
Umrædd hljómsveit er að undir-
búa upptöku á hljómplötu um þess-
ar mundir og er áætlað að hún komi
út 15. júní næstkomandi. Plötunni
hefur ekki enn verið gefið nafn, en
víst er að innihald skífunnar kemur
til með að geyma efni eftir Magnús
Eiríksson meðal annarra góðra
lagasmiða.
HELGARPÓSTURINN 31
l'UVPi.lTSÓ^FiaojjH OC