Helgarpósturinn - 23.10.1986, Page 12
Skoðanakönnun HP
85% HLYNNT AFKYNJUN
ENGINN MUNUR Á AFSTÖÐU KARLA OG KVENNA
Yfirgnœfandi meirihluti lands-
manna telur rétt ad kynferöisaf-
brotamenn verdi látnir gangast
undir afkynjunaradgerd, sam-
kvœmt skoöanakönnun sem Skáís
framkvœmdi fyrir Helgarpóstinn
helgina 11,—12. október sl. Af 800
aöspuröum tóku 87% ákveöna af-
stööu, en aöeins 13% voru óákveön-
ir eöa neituöu aö svara. Af þeim
sem tóku afstööu sögöu 85,3% „já"
viö spurningunni en „nei“ sögöu
14,7%.
Mjög hátt hlutfall þeirra sem svara
spurningunni játandi (Telur þú rétt
að láta kynferðisafbrotamenn gang-
ast undir afkynjunaraðgerð?) hlýtur
að vekja athygli, þar sem um mjög
almenna spurningu er að ræða,
þannig að ekki var átt sérstaklega
við þá kynferðisafbrotamenn sem
leita á börn, né heldur var sérstak-
lega spurt um síbrotamenn.
Niðurstöðurnar benda til þess að
ef 8 manns koma saman fyrir tilvilj-
un sé mjög líklegt að 6 séu þannig
fylgjandi afkynjun kynferðisaf-
brotamanna, að 1 sé á móti og 1
óákveðinn.
Þá vekur eftirtekt að enginn
marktækur munur er á afstöðu fólks
eftir kyni. Hlutfall þeirra sem ekki
tóku ákveðna afstöðu var ívið
hærra hjá konum, eða 15,2% á
móti 10,5% hjá körlum. En þegar
einvörðungu er litið á svör þeirra
sem gáfu upp ákveðna afstöðu kem-
ur í Ijós að nánast er um sömu út-
komu að ræða hjá körlum og kon-
um. Þessi niðurstaða kemur á óvart,
því fyrirfram var frekar búist við að
konur væru nokkuð harðari í af-
stöðu sinni gagnvart kynferðisaf-
brotamönnum en karlar.
Niðurstöður þessar ber að skoða í
ljósi talsverðrar umræðu um kyn-
ferðisafbrot gagnvart börnum. Þess-
ar niðurstöður benda þó til al-
mennraróánægju landsmanna með
þá mildu meðferð sem kynferðisaf-
brotamenn hafa almennt hlotið hjá
dómstólum landsins.
Sem kunnugt er hefur Svala
Thorlacius hæstaréttarlögmaður
gert þá kröfu til Hallvarðs Einvarðs-
sonar ríkissaksóknara að síbrota-
maðurinn Steingrímur Njálsson,
sem hlotið hefur nokkra dóma fyrir
kynferðisafbrot sín gagnvart ungum
drengjum, verði látinn gangast
undir slíka afkynjunaraðgerð. Nið-
urstöður þessarar skoðanakönn-
unar benda til þess að yfirgnæfandi
meirihluti iandsmanna sé Svölu
sammála. Svala er með mál 13 ára
drengs sem ienti í klóm þessa
manns og hlaut af andlegt og lík-
amlegt tjón. Hallvarður Einvarðs-
son ríkissaksóknari hefur enn ekki
tekið ákvörðun um hvort embættið
geri kröfu um afkynjunaraðgerð í
máli þessu; hann endursendi Rann-
sóknarlögreglu ríkisins gögn máls-
ins og bað um nánari rannsókn.
FOLKIÐ HEFUR EKKI KYNNT SER MALIÐ
SEGIR SKÚLI G. JOHNSEN BORGARLÆKNIR UM NIÐURSTÖÐURNAR.
„Mér finnst þessar niöurstööur
bera því vitni aö fólk veit almennt
ekki hvaö hér er á feröinni, aö
svona vandamál eru númer eitt, tvö
og þrjú geörœns eölis," sagöi Skáli
G. Johnsen, borgarlœknir, inntur
álits á niöurstööum skoöanakönn-
unarinnar.
Skúli hefur áður tjáð sig opinber-
lega um þá kröfu Svölu Thorlacius
að síbrotamaðurinn Steingrímur
Njálsson verði látinn gangast undir
afkynjunaraðgerð og sagði að þessi
krafa væri sett fram af vanþekk-
ingu.
„Það er auðvitað sjálfsagt að
reyna að laga hin geðrænu vanda-
mál áður en menn eru látnir gang-
ast undir aðgerð, e.t.v. gegn vilja sín-
um og að auki frammi fyrir því að
ekki er víst að slík aðgerð bjargi
málunum. Ég held að þessar niður-
stöður byggi á því að fólk hefur ekki
fengið tækifæri til að kynna sér
þetta mál rækilega. Það er sjálfsagt
svar hjá þeim sem ekki þekkja
vandamálið betur, að rétt sé að fara
þessa leið, það er eðlilegt af fóiki
sem ekki veit að hér er fyrst og
fremst um geðrænan sjúkdóm að
ræða. Það kemur mér ekki á óvart
að afstaðan sé hin sama hjá kynj-
unum, ég geri ráð fyrir að konur líti
eins á þetta og karlar," sagði Skúli
ennfremur.
OTVIRÆÐ AFSTAÐA FOLKS
SEGIR SVALA THORLACIUS HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR UM NIÐURSTÖÐUR SKOÐ-
ANAKÖNNUNARINNAR.
„Mér sýnist aö þarna komi Ijós-
lega fram mjög ákveöin afstaöa al-
mennings. Þetta er nákvœmlega í
þeim dúrsem ég hefhaft á tilfinning-
unni, eftir aö þetta mál sem ég er meö
fór afstaö og eftir aöég skrifaöi þessa
grein. Mér hefur fundist þetta vera
ótvírœö afstaöa fólks," segir Svala
Thorlacius hæstaréttarlögmaöur í
samtali viö Helgarpóstinn, innt álits
á niöurstööum könnunarinnar.
Svala lögfræöingur foreldra 13 ára
gamals pilts sem varö fyrir baröinu
á síbrotamanninum Steingrími
Njálssyni. Svala hefur gert þá kröfu
í málinu aö Steingrímur þessi gang-
ist undir afkynjunaraögerö.
,,Ég hef sagt það áður, að ég er
ekki þeirrar skoðunar að það eigi að
afkynja menn við fyrsta brot eða
smávægileg brot, en hvað varðar
mann með afbrotaferii eins og
þennan, þá finnst mér raunverulega
ekki annað koma til greina. Mér
finnst sá málfiutningur sem heyrst
hefur, að ekki megi afkynja menn
því þá missi þeir kynhvöt, bera keim
af því að kynhvöt kynferðislegra
síbrotamanna sé metin meira en lífs-
hamingja fjölda barna.
Að enginn veruiegur munur sé á
afstöðu karla og kvenna kemur mér
ekki mjög á óvart, mér hefur fundist
kynin vera nokkuð samdóma í
þessu. Mér hefur fundist konur tjá
sig meira en karlar um þessi mál, af
því fóiki sem hefur gefið sig á tal við
mig. En það hafa margir talað við
mig, meðal annars fjórir karlmenn
sem hafa sagt mér að þeir hafi lent
í klónum á einmitt þessum manni,
en ekkert hafi verið gert í málinu,"
sagði Svala.
AFKYNJA A SIBROTAMENN
SAGÐI AFKYNJAÐUR FYRRVERANDI KYNFERÐISAFBROTAMAÐUR í SAMTALI VIÐ HP
Viðtal Helgarpóstsins við fyrrver-
andi kynferðisafbrotamann fyrir
hálfum mánuði vakti að vonum
nokkra athygli. Viðmælandi blaðs-
ins æskti nafnleyndar, en hann hafði
gerst sekur um að leita kynferðis-
lega á unga drengi. Eftir geðrann-
sókn féllst hann af fúsum og frjáls-
um vilja á, að gangast undir afkynj-
unaraðgerð. Hann varð við það af
allri kynhvöt, en nú, 12 árum síðar,
segir hann að við aðgerðina hafi
hann breyst í eðlilegan mann. í við-
talinu var hann sérstaklega spurður
um kröfu Svölu Thorlacius í máli
síbrotamannsins Steingríms Njáls-
sonar, að hann verði látinn gangast
undir afkynjunaraðgerð. Við rifjum
hér upp svar þessa fyrrverandi kyn-
ferðisafbrotamanns:
„Já, ég er hjartanlega sammála
því sem hún er að segja. Sérstaklega
þegar um slík síbrotatilfelli er að
ræða. í mínu tilfelli var ekki gerð
um þetta krafa og vandamálið hjá
mér var eins og ég sagði áður ekki
á mjög alvarlegu stigi. Eftir því sem
maður heyrir um þennan mann sem
nú er mest talað um, þá er um hrika-
legt dæmi að ræða. T.d. eftir því sem
foreldrarnir segja um blessað barn-
ið sitt, að þessum 12—13 ára ungl-
ingi hafi hrakað niður úr öilu valdi.
Ég er ekki í nokkrum vafa um þetta,
Steingrímur er síbrotamaður með
nokkra dóma á sér og hann á skil-
yrðislaust að afkynja að mínu viti.
Það á ekki einu sinni að spyrja hann
að því. Þegar ég fékk þessa vitn-
eskju á sínum tíma hjá Þórði heitn-
um þá fann ég strax inn á það, að
aðgerð væri það öruggasta og ég
hreinlega bað um hana. Enda hefur
það komið í ljós að ég er allt annar
maður."
Greinargerd
Þessi skoðanakönnun var gerð
helgina 11.—12. október si. Hringt
var í 800 einstaklinga skv. tölvuskrá
yfir símanúmer fyrir allt landið.
Spurningunum var beint til þeirra
sem svöruðu og voru 18 ára eða
eldri og var miðað við jafnt hlutfall
12 HELGARPÓSTURINN
kynja.
Úrtakið skiptist í þrjú svæði:
Reykjavík (306 símanúmer), Reykja-
nes (182 símanúmer) og lands-
byggðin, þ.e. kjördæmi önnur en
Reykjavík og Reykjanes (312 síma-
númer).
Spurt var:
Telur þú rétt aö láta kynferöisaf-
brotamenn gangast undir afkynj-
unaraögerö?
Niðurstöðurnar birtast í meðfylgj-
andi töflum.
Telur þú rétt að láta kyn-
ferðisafbrotamenn gangast
undir afkynjunaraogerð?
ALLT LANDIÐ:
Fjöldi % af heild % þeirra sem tóku afstöðu
Jé 594 74,3 85,3
Nei 102 12,8 14,7
Óákveðnir 91 11,4 —
Neita að svara 13 1,6 —
KARLAR:
Fjöldi % af heild % þeirra sem tóku afstöðu:
Já 286 76,5 85,4
Nei 49 13,1 14,6
Óákveðnir 35 9,4 _
Neita að svara 4 1,1 —
KONUR:
Fjöldi: % af heild % þeirra sem tóku afstöðu
Já 308 72,3 85,3
Nei 53 12,4 14,7
Óákveðnir 56 13,1 —
Neita að svara 9 2,1 —
Skéís 10.86