Helgarpósturinn - 12.03.1987, Page 10

Helgarpósturinn - 12.03.1987, Page 10
HP HELGARPÖSTURINN Ritstjóri: Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúar: Helgi Már Arthursson Sigmundur Ernir Rúnarsson Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson Gunnar Smári Egilsson Guðlaugur Bergmundsson Kristján Kristjánsson Jónína Leósdóttir og Óskar Guðmundsson. Ljósmyndir: Jim Smart. Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingar: Sigurður Baldursson Sveinbjörn Kristjánsson Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471) Guðrún Geirsdóttir Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík sími 681511. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36, sími 681511. Útgefandi: Goðgá h/f Setning og umbrot: Leturval s/f. Prentun: Blaðaprent h/f. LEIÐARI Hjálp — í hungruðum heimi Gengið er út frá því í almennri umræðu, að fjölmiðlar hafi mikil áhrif á gang mála í samfé- laginu. Þetta má til sanns vegar færa að vissu marki, en samt verður að gera ýmsa fyrirvara í þessu sambandi. Þannig skiptir miklu að gera greinarmun á áhrifum fjölmiðla á al- menna umræðu í þjóðfélaginu annars vegar og svo hins vegar beinum áhrifum þessara miðla til breytinga. Algengast er, að menn gleymi að gera þennan mikilvæga greinar- mun. í fyrra tilvikinu er ótvírætt, að fjölmiðlarnir geta nánast ráðið þjóðfélagsumræðunni, þ.e. ákveðið hvaða mál eru á dagskrá hinnar al- mennu umræðu í samfélaginu. I síðara tilvikinu er um að ræða annan þátt íhlutverkifjölmiðla, sem eraðhaldsþátturinn, þ.e. að gegna því bráðnauðsynlega hlutverki að benda á það, sem betur mætti fara, grafast fyrir um hvaðeina, sem brýtur í bága við leik- reglur samfélagsins o.s.frv. Helgarpósturinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki á báðum þessum sviðum, en er sennilega þekktara í hugum fólks fyrir þau ótal mál, sem blaðið hefur flett ofan af. En oft fer það saman, að Helgarpósturinn hefur með því að benda á misfellur í samfé- laginu skapað þarfa umræðu um brýn þjóð- félagsmál. Dæmi um þetta eru ábendingar Helgar- póstsins og gagnrýni á rekstur Hjálparstofn- unar kirkjunnar í fyrra. I fyrstu voru viðbrögð- in sígild: Forsvarsmenn stofnunarinnar neit- uðu staðfastlega gagnrýninni, efndu til and- mæla á opinberum vettvangi o.s.frv., en að lokum sigraði sá sannleikur, sem Helgarpóst- urinn hafði vakið athygli á. Rétt er að fram komi, að þar eiga Pétur Sig- urgeirsson, biskupinn yfir íslandi, og stjórn Hjálparstofnunarinnar hrós skilið fyrir að fall- ast á gagnrýni HP og efna til endurskoðunar á starfsemi HK. Þá hljótum við að geta þeirra kirkjuþingsmanna, sem höfðu hugrekki og þor til þess að viðurkenna staðreyndir í stað þess að stinga hausnum í sandinn. Á mánudag var efnt til blaðamannafundar, þar sem Árni Gunnarsson, nýkjörinn stjórnar- formaður HK, Haraldur Ölafsson, nýr stjórnar- maður og biskupinn kynntu nýja stofnskrá Hjálparstofnunarinnar, leiðir til endurreisnar HK og laka fjárhagsstöðu HK. Á fundinum kom fram, að sú gagnrýni, sem Helgarpósturinn setti fram á sínum tíma hafi verið réttmæt enda þótt nýi stjórnarfor- maðurinn vildi ekki viðurkenna, að allt hafi verið réttmætt í gagnrýninni. í sjálfu sér skiptir það ekki máli. Hjálpar- stofnun kirkjunnar á að verða önnur og betri stofnun en hún var áður. Það er megininntak þess boðskapar, sem kynntur var á frétta- mannafundinum og í viðtölum við fjölmiðla. Það er gleðilegt og er mikilvægt fyrsta skref til þess að „berja í trúnaðarbrestina", eins og Árni Gunnarsson komst að orði um brýnasta verkefni nýju stjórnarinnar. Á þeim grunni ætti að verða unnt að endurreisa Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Lykilatriði í þessu endurreisnarstarfi er skynsamleg fjármálastjórn, afnám leyndar um reksturinn og lágmarksrekstrarkostnaður, sem kominn var úr böndunum. Úttekt Helgarpóstsins á málefnum Hjálpar- stofnunar kirkjunnar er dæmi um árangurs- ríka og áþreifanlega fjölmiðlun. Hún varð e.t.v. fyrst og fremst áþreifanleg vegna þess, að kirkjunnar menn hlustuðu. Helgarpósturinn fagnar því, að hafin er endurreisn þessarar stofnunar, og vonar að al- menningur byrji á nýjan leik að láta fé af hendi rakna til hennar. Auðvitað má áfram deila um hvaða leiðir séu bestar í hjálparstarfi, en það breytir því ekki, að okkur ber siðferðileg skylda til að hjálpa hungruðum heimi. E að líkum lætur mun Indriði G. Þorsteinsson setjast í ritstjórn- arstól Tímans innan skamms. Þau mál eru þó ekki frágengin enda á Indriði marga óvini innan Fram- sóknarflokksins. Það eru ein- staklingar innan „landbúnaðarliðs- ins". Þeir hafa áður komið í veg fyrir að Indriði kæmist aftur í stólinn, þegar til stóð að Indriði, Magnús Bjarnfreðsson og Helgi Péturs- son gerðust allir ritstjórar NT á sín- um tíma. Landbdnaðarliðið á við erfiðan mann að eiga, því Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri Tímans, vill allt til vinna að fá Ind- riða. Hann treystir honum til þess að rífa blaðið upp á rassinum úr þeirri lægð sem það hefur verið í undir stjórn Níelsar Árna Lund, allt frá endurfæðingunni... l^Ua látæka pressan hefur nú tekið sig saman um að flytja upp á Höfða með ritstjórnir sínar og Blaða- prent, prentsmiðju sem Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið eiga 10 HELGARPÓSTURINN saman. Gengið hefur verið frá teikn- ingum af stórhýsi sem rísa á framan við stórhýsi Þýsk-íslenska. Ómar Kristjánsson, forstjóri Þýsk-ís- lenska, varð ekki hrifinn þegar hann sá þessar teikningar. Þannig er að nú sést hús Þýsk-íslenska og aug- lýsingarnar utan á því mjög vel frá Vesturlandsveginum. En ef hús Blaðaprents verður reist munu aug- lýsingar Þýsk-íslenska að mestu fara í hvarf að baki nýja húsinu. Ómar kærði því teikninguna til byggingar- nefndar, en skipulagsnefnd hafði áður samþykkt hana. Niðurstaða nefndarinnar varð sú að Blaða- prentsblöðunum var gert að lækka sitt hús um 1 metra, en Ómar hafði gert kröfu um mun meiri lækkun. Hús og auglýsingar Þýsk-íslenska munu því bráðum hætta að blasa við þeim sem fara um Vesturlands- veginn, en þess í stað mun baksíðan á fátæku pressunni blasa við augum vegfarenda... Þ að gengur illa hjá Þýsk-ís- lenska að greiða þær 51 milljón kr. sem fyrirtækið var sektað um vegna vantalins skatts á sínum tíma. Þær sögur heyrast nú úr fjármálaráðu- neytinu að Guðmundur G. Þórar- insson, efsti maður á lista Fram- sóknar í Reykjavík og bróðir Ómars Kristjánssonar, eiganda Þýsk-ís- lenska, herji nú á Þorstein Páls- son, fjármálaráðherra, um að sam- þykkja skuldabréf frá fyrirtækinu fyrir sektinni. Slíkt mun eiga sér for- dæmi, því Albert Guðmundsson tók upp slíka þjónustu í fjármálaráð- herratíð sinni... B orgarspitalinn er mann- margur vinnustaður. HP heyrir að menn séu búnir að reikna það út að ef borgin seldi ríkinu spítalann, eins og hugmyndir hafa verið uppi um, og eignin gerð upp fyrir sölu, þyrfti m.a. að framreikna öll lífeyris- sjóðsréttindi starfsmanna. Og út- koman yrði sú að borgin þyrfti að greiða með spítalanum til ríkisins. Þetta eru óstaðfestir útreikningar, en fullrar athygli verðir, ef réttir eru.. . Þ að þykir skjóta nokkuð skökku við hjá því opinbera að á sama tíma og dregið er verulega úr fjárstreymi til forvarnarstarfs vegna eiturlyfjavandans og til dæmis hætt við gerð heilu fræðslumyndanna gegn vágestinum kosti sömu aðilar á aðra milljón í veislu á 75 ára af- mæli ÍSÍ, sem fram fór á dögunum. Að sögn viðstaddra var brennivínið áberandi í teitinu a tarna og óspart veitt af hálfu hins opinbera, svo sem eins og í ráðherraveislum þegar hundruðum þúsunda er kyngt í formi kokteila... largt skrýtið og skemmti- legt gerðist á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins þótt ekki kæmi til alvar- legrar pólitískrar umræðu um mál- in, í friðarins þágu og einingar. Með- al hressilegri málflytjenda á lands- fundinum var Rannveig Tryggva- dóttir, sem hélt m.a. langa tölu gegn Ólafi Ragnari Grímssyni. Hún upplýsti að fyrir nokkrum ár- um, væntanlega 1979, hefði þing- frambjóðandinn sótt sovéska sendi- ráðið heim fimm sinnum. Ekki nóg með það, heldur hefði prófessorinn a.m.k. einu sinni lagt bifreið sinni spölkorn frá sendiráðinu — við til- tekið hús við Hólavallagötu. „Ég treysti ekki slíkum manni fyrir stjórnun landsins," sagði Rannveig. Þetta mun hafa verið í eina skiptið sem Sovétríkin komu við sögu á fundinum en þau hafa yfirleitt gegnt mikilvægu hlutverki á landsfundum Sjálfstæðisfiokksins áður og fyrr. Sennilega hefur þíðan í Sovét haft þessi áhrif. Á hinn bóginn kvörtuðu fulltrúar stundum undan sovéskum friði og vinnubrögðum, þegar þeir fengu sér kaffi, af því að öllum ágreiningi var eytt á bak við tjöldin, vegna kosninganna... u B W Hcira af landsfundi sjálf- stæðismanna. Rannveig Tryggva- dóttir kom aftur við sögu á fundin- um undir lokin, þegar hún talaði fyrir hönd ófæddra íslendinga. Fagnaði hún sérstaklega þeirri iíkn- arhönd sem Ragnhildur Helga- dóttir hefði rétt hinum óbornu löndum, — og átti þar væntanlega við lengingu fæðingarorlofs, sem ráðherra heilbrigðismála hefur staðið fyrir. Þegar hér var komið sögu var stemmningin á fundinum orðin mjög hástemmd og klökk, — og fjöldi landsfundarfulltrúa gráti nær af gleði, bæði fyrir hönd ófæddra Islendinga og Sjálfstæðis- flokksins alls. Til að kóróna þessa klökku hátíðarstemmningu var ákveðið að karlarnir í flokknum fengju að syngja Fósturlandsins Freyja í heiðursskyni við konur þær, sem ættu eftir að bera hina ófæddu íslendinga undir belti. Með grát- brostinni röddu tókst að ljúka þess- um lið dagskrárinnar, en hins vegar mun ráðherra vestan af fjörðum, ekki hafa getað stillt sig um að tauta eftir þessi ósköp: Þetta er eins og á samkomu hjá Hjálpræðishern- um!... || ■ ■ úseignir sem staðsettar eru í gamla miðbæjarkjarnanum gefa vel af sér í leigu og ekki síður sölu. Eins og kunnugt er flutti verslunin Gráfeldur fyrir skömmu úr Banka- strætinu inn í Borgartún en húsnæð-. ið í Bankastrætinu er leigt út. Hús- eignin gegnt Gráfeldi, Þingholts- stræti 1, er nú til sölu og er söluverð- ið 25 milljónir króna. Eigendur hússins eru Óli Friðþjófsson og Svavar Egilsson en sá síðarnefndi keypti veitingahúsið Naustið ný- lega. Þeir félagar unnu áður hjá Jöf- ur h.f., en létu af störfum þar árið 1978... il\l^^iklar líkur eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn fái forsæt- isráðherra næstu ríkisstjórnar og þar af leiðandi verði utanríkisráðherra þeirrar stjórnar úr öðrum flokki, þar eð venjan hefur verið að þessi embætti tilheyri sitthvorum sam- starfsflokknum. Matthíasi Á. Mat- hiesen núverandi utanríkisráð- herra er þetta fullkomlega ljóst og taka menn eftir því, m.a. af því hvað hann hefur verið dugandi að koma sínum mönnum að í næstu sendi- herraembætti. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, Helgi Ágústsson og Helgi Ingólfsson, allt mjög hæf- ir menn, bíða nú allir eftir erlendu brauði fyrir tilstilli Matthíasar og er nokkuð ljóst að næsta utanríkisráð- herra vinnst vart tími til að koma sínum mönnum að sakir þessa „for- varnarstarfs Matthíasar í utanríkis- málum, eins og það er nú kallað ... V ið höfum komið inn á ríkj- andi bingóstríð í blaðinu. Síðastlið- ið þriðjudagskvöld brá svo við að Magnús Blöndal Jóhannsson og félagar fluttu bingókvöld sitt um set úr Hótel Borg í Broadway og aug- lýstu 3 bifreiðavinninga (Lada), en á sama tíma héldu Þróttarar bingó í Glæsibæ. Eitthvað hafa Magnús og félagar verið bjartsýnir um of, því aðeins á þriðja hundrað manns mættu á Broadway, en húsið tekur um 1200 manns. Þegar ein bifreiðin hafði gengið úr brá svo við að Magn- ús tilkynnti að tölvan hefði bilað. Áætla heimildir okkar að mikið tap. hafi verið af þessu Broadway-ævin- týri. Þaðan streymdu hins vegar gestirnir í Glæsibæ, en margir urðu frá að hverfa, þar eð húsið var nær fullt fyrir með um 400 gesti. .. LAUSN Á SPILAÞRAUT Suður spilar 3 grönd. Útspil spaða-3: N ♦ Á10 D93 <> DG109 + D1054 ♦ D543 + G862 G1054 72 <> 6 <> ÁK732 + K976 S + G2 + K97 ÁK86 854 + Á83 Sagnir og spilamennska hafa leitt líkur að því að skipting vest- urs sé 44-1-4. Með 5-lit í laufi eða hjarta hefði vestur sennilega valið að spila út í langlitnum. Einnig er sennilegt að vestur eigi laufkóng, því ella hefði austur opnað í 3. hönd. En vegamótin í spilinu eru í fjórða slag, hvaða spili fleygir þú úr borði í spaðakóng? Hafir þú hugsað spilið vel sérðu að þú mátt alls ekki missa hjarta, svo lauf er svarið. Ástæðan er ljós í 8. slag, þegar austur skipti í hjarta-7, ætlunin var að leiða sagnhafa á villigötur um staðsetn- ingu laufkóngsins. Það er nauðsynlegt að eiga hjartaslaginn heima til að geta framkallað Vínarbragð; næst er tekið á laufás. Þá hjarta á drottn- ingu. í frítígulinn kastar þú laufi og vestur er fastur í kastþröngsnet- inu, með hjörtun og laufkóng. Ef hjarta er fleygt í 4. slag vantar samgang, því austur hagar vörn- inni eins. í fríspaða austurs kastar þú vitaskuld laufi frá báðum hönd- um.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.