Helgarpósturinn - 12.03.1987, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 12.03.1987, Blaðsíða 11
andi endurskoðandi Hafskips verið ráðinn forstjóri Útsýnar. Helgi er einn þeirra sem keypti sig inn í fyrir- tækið fyrir fáum mánuðum, þegar Ingólfur Guðbrandsson stofnandi og eigandi firmans bauð 49 prósent þess til sölu á frjálsum markaði. Meðal kaupenda að þeim hlut auk Helga, má nefna Magnús Gunn- arsson hjá SÍF, Ómar Kristjáns- son hjá Þýsk/íslenska og fleiri. Auk þeirra sem nefndir hafa verið situr Andri Már Ingólfsson nú í stjórn Útsýnar. Þeir sem þekkja til starf- semi félagsins segja, að eftir komu nýju hluthafanna í félagið og þó sér- staklega eftir að Helgi Magnússon var færður upp að hlið Ingólfs for- stjóra þyki heldur hallað á Ingólf í völdum. Rekstur Útsýnar hefur gengið heldur illa undanfarin ár, meðal annars vegna óvæginnar samkeppni á markaðnum, og hefur Ingólfur átt við skuldir að glíma sem safnast hafa upp á þessum tíma og eru á hans eigin ábyrgð. Munu Flug- leiðir vera einna stærsti lánardrott- inn félagsins — og að sögn innan- búðarmanna þar hefur flugfélagið haft örlög ferðaskrifstofunnar í hendi sér af þeim sökum. Sömu heimildir herma að verkefni Helga næstu mánuði verði að bæta greiðslustöðu fyrirtækisins eða rétta úr kútnum eins og það er kall- að. Og athyglisvert þykir hvað hann virðist hafa fengið frjálsar hendur til þess starfa og er skýringarinnar að leita í því að Ingólfur sé að draga sig mjög út úr forstjórahlutverkinu og ætli að helga sijg óskiptur for- mennsku í stjórn Utsýnar... BLIKKSMIÐJA reykj^íkur Viðskiptavinir athugið Starfsemi okkar er flutt í nýtt húsnæði að Súðarvogi 7 Inngangur að neðanverðu. Athugið nýtt súmanúmer 68 69 40 Önnumst alla almenna blikksmíðavinnu,nýsmíði og viðhaldsþjónustu. Sí ástæður fyrir því að kjósa kratana 25. APRÍL NÁLGAST! NÚ HAFA ALLIR FLOKKAR KYNNT LISTA SÍNA. GERIÐ SAMANBURÐ Á ÞESSUM LISTA OG LISTUM ANNARRA FLOKKA. HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.