Helgarpósturinn - 12.03.1987, Page 17
að leggja Hollívúdd niður í núver-
andi mynd og „bægja" frá staðnum
vel klæddu diskóliði. Meiningin er
nefnilega að leggja niður diskótek-
starfsemi í húsinu en taka þess í stað
upp gamla siði í ætt við þá, sem tíðk-
uðust í Glaumbæ, Sigtúni og
Tjarnarbúð á árunum á milll. 1965
og 1975 og tónlistin, sem nú' á að
leika í Hollívúdd verður einmitt frá
þessum árum og helst ekki yngri en
frá 1975. Ætlunin er að þarna komi
fram ýmsar gamalkunnar hljóm-
sveitir frá þessari gömlu tíð, s.s.
Hljómar, Flowers, Náttúra, Dúmbó
og Steini o.s.frv. Þá hafa starfsmenn
Laufdals í hyggju að setja upp eins
konar poppminjasafn á staðnum,
þar sem brotna tönnin hans Bjögga
Halldórs mun að sjálfsögðu skipa
heiðurssess. í kvöld á að efna tii ráð-
stefnu um málið. Þetta ætti að gleðja
hina svokölluðu 68-kynslóð.. .
A
landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins ríkti mikill samhugur, og
fannst mörgum fulltrúum friðurinn
helsti mikill og jaf nvel of dýru verði
keyptur. Telja þeir, að svona friður
sé „sovéskur", og að svolítil spenna
hefði orðið flokknum meiri lyfti-
stöng en þessi landsfundur Þor-
steins Pálssonar. í baksölum
landsfundar var nokkuð um þetta
rætt, en eins og oft áður, voru lands-
byggðarmenn óánægðir með frjáls-
hyggjutóna úr Reykjavík. Hins veg-
ar fögnuðu þeir mjög liðsinni nýs
manns, Vilhjálms Egilssonar, sem
nú er kominn í framboð í Norður-
landi vestra. Vilhjálmur þótti mjög
styrkja stöðu sína á landsfundinum,
fékk góðar undirtektir við málflutn-
ing sinn um „byggðastefnu unga
fólksins", sem hann bjó í þann bún-
ing, að landsbyggðarmenn þóttust
hafa fundið pólitíska réttlætingu
fyrir áherslum sínum, um leið og
Vilhjálmur flutti mál sitt með mark-
aðstónum, sem frjálshyggjumönn-
um fannst vera staðfesting á því að
hann væri ennþá þeirra maður —
þrátt fyrir allt. Gömlu refunum
fannst Vilhjálmi vel hafa tekist til
við að halda ósættanlegum viðhorf-
um og hagsmunum góðum — og sjá
því ráðherraefni í drengnum. ..
GRAFE LDUR
I NYJUM BUNINGI!
Gráfeldur er nú fluttur í nýtt og
stærra húsnæði í Borgartúni 28.
Sem fyrr skipa Lundia hillur
og samstæður öndvegi hjá
okkur, en úrvalið
af húsgögnum fyrir heimilið og
fyrirtækið, er meira en
nóg til að gleðja augað og
kveikja nýjar hugmyndir.
Lundia litagleði
Þú færð Lundia samstæðurnar
í þínum lit. Við blöndum litinn
að þinni ósk.
Fyrir skrifstofuna
og fyrirtækið
Skrifstofu húsgögn
Palletturekkar
Skjalageymslur
Lagerhillur
Hagstætt verð
Gerum tilboð
Nýjungar
Skemmtileg^og ódYr
unglingahúsgögn
Stólar, svefnstifar, sófar,
hornborð, símaborð,
sjónvarpsborð, skápar.
Líflegar smávörur o.m.fl.
F rá bært verð ! Óta I I iti r!
Heildsala um allt land
Seljum húsgögn og gjafavörur í
heildsölu til verslana um allt land
KOMIÐ í GRÁFELD
ÞAR KVIKNA HUGMYNDIR
GRÁFELDUR HF. BORGARTÚNI 28
SÍMI 91-62 32 22
P&Ö/SlA
HELGARPÓ8TUHWW 17