Morgunblaðið - 25.11.1975, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1975
Gunnar Egilson:
Ábending til
tónlistargagnrýnanda
Kæri vinur, Jón Ásgeirsson. Ég
þakka þér tilskrifin f Mbl. f dag,
því þau gefa mér tilefni til hug-
leiðinga um tónlistargagnrýni al-
mennt, sem þú reyndar gerir
mjög að umtalsefni í grein þinni.
Það er því af ráðnum hug að ég
vel yfirskriftina að greinastúf
þessum sem ábendingu til tónlist-
argagnrýnenda (í fleirtölu) en
beini ekki orðum mfnum beint til
þín (nema þá sem eins þeirra)
þótt ég kunni að vitna í sumt sem
þú segir.
Það blandast engum hugur um
að það er vandasamt verk að
skrifa gagnrýni og er eflaust mjög
illa launað þegar haft er í hjga
hvílíka undirbúningsvinnu það
krefst hverju sinni ef vel á að
vera. Gagnrýni er ekkert sér-
kennilegt fyrirbæri og þarf alls
ekki að vera til tjóns, jafnvel í
litlu samfélagi þar sem allir
þekkjast, ef rétt er á haldið og
gagnrýnendur gera sér ljósa grein
fyrir hlutverki sínu. Þeim ber að
hafa í huga, að skrif þeirra eru
lesin, ekki einungis af fólki sem
var viðstatt listviðburðinn, heldur
líka af fólki, sem ekki kom og
tekur umsögn gagnrýnanda sem
góðan og gildan þverskurð af því
sem þarna fór fram. Oft á tíðum
eru skrif gagnrýnenda eina
umbunin sem listamennirnir fá
fyrir erfiði sitt, en hvort sem svo
er eða ekki, þá ætlast þeir hrein-
lega til þess að menn, sem fást við
að skrifa gagnrýni, leggi sig í líma
við að skrifa af sanngirni. Það er
misvirðing við tónlistarmenn
hvernig tónlistargagnrýni hefur
verið allt of oft hér á landi,
ábyrgðarlaus og órökstudd. Þú
segir Jón, að gagnrýni beri að
skoða sem viðhorf gagnrýnandans
^ Mokka-
jakkar
Stærðir 34—46
I mJ
'fa Mokka-
kápur
Stærðir 38—46.
Sendum í póstkröfu
um fand allt
• ••
ú
KAPAN
LAUGAVEGI 66
Sími 25980
Fella- oa Hólahverfi
Félag sjálfstæðismanna í Fella- og Hólahverfi heldur aðalfund sinn
fimmtudaainn 27. nóvember.
Fundurinn verður að Seljabraut 54, II. hæð
(húsnæði Kjöts og Fisks) og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ræðumaður verður Magnús L. Sveinsson,
borgarfulltrúi
Félagar fjölmenmð!
Stjórnin.
Akureyri nærsveitarmenn
Munið spilakvöld sjálfstæðisfélaganna i sjálfstæðishúsinu Akureyri
fimmtudaginn 27 nóv. kl 20.30
Glæsileg verðlaun Dans að lokinni félagsvist til kl 1
Spilanefnd
Heimdallur Heimdallur
Framhaldsaðalfundur
Framhaldsaðalfundur Heimdaltar S.U.S. verður haldinn i Miðbæ við
Háaleitisbraut miðvikudaginn 26. nóvember n.k. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kjör fulltrúaráðs.
2. Stjórnmálaályktun, umræður, afgreiðsla.
Stjórnin.
LJOSASAMLOKUR
— LJÓSAPERUR
•jnau
SÍÐUMÚLA 7—9, SÍMI: 82722.
og að það eitt sé satt, sem honum
finnst sjálfum, hvernig svo sem
það snúi að öðrum, — það er
alveg rétt, en gagnrýnandinn er í
þeirri ábyrgðarstöðu að hann get-
ur ekki skrifað: Mér þótti þetta
svo ómerkilegt að það er ekki
ómaksins vert að skrifa um það,
— en nákvæmlega þessi orð liggja
í þögninni um það sem flutt er,
heldur er til þess ætlast af gagn-
rýnandanum að hann rökstyðji
mál sitt. Það er t.d. ekki gagnrýni
að segja að eitt eða fleiri verk á
tónleikaskrá hafi mátt missa sig
og láta þar við sitja, varla er það
til þess fallið að „örva menn til
dáða, viðhalda kröfunni um vönd-
uð vinnubrögð og koma í veg fyrir
stöðnun i listsköpun" svo ég vitni
í þín eigin orð um tilgang gagn-
rýni og þaðan af siður er það
uppörvandi fyrir tónlistarmenn
þegar gagnrýnandi minnist ekki
einu orði á verk, sem þeir hafa
lagt margra mánaða vinnu í. Ég er
þér fyllilega sammála um nauð-
syn frjálsrar og óvæginnar lista-
gagnrýni, en hún verður að vera
marktæk og rökstudd. Það óskar
enginn eftir þægðargagnrýni, þar
sem „allir kyssa alla fyrir allt“
eins og Halldór Laxness orðaði
það svo skemmtilega og því síður
óska menn eftir því að gagnrýni
sé bönnuð, en ég spyr: hvaða til-
gángi þjónar umsögn um tón-
leika, þar sem fjallað er um allt
annað en það, sem máli skiptir?
I síðari grein þinni (í Mbl. í
dag, 23. nóv.) kemur þú aftur inn
á þörf þína á að setja tónflytjend-
ur skör lægra en tónskáld, eins og
fram kom i fyrri grein þinni.
Þetta er óþarfa metingur og tel ég
að enginn auki alin við hæð sina
með þvi að klifa á þessu.
Mér þykir fyrir þvi að grein
mín í Mbl. 20. þ.m. skuli hafa
farið svona illa i þig, vinur Jón,
því umvöndun minni var ekkert
frekar beint gegn þér en ýmsum
öðrum gagnrýnendum fyrr og nú,
sem hafa verið með sama marki
brenndir, þótt tilefni skrifa
minna hafi verið gagnrýni þín á
tilteknum tónleikum, en eigum
við ekki að vera sammála um það,
að frjáls og óvægin gagnrýni eigi
að viðhalda kröfunni um vönduð
vinnubrögð, — einnig hjá gagn-
rýnendum.
Reisugildi
Kröflu
MÝVATNSSVEIT 21. nóvember.
1 dag kl. 15 kom margt manna
saman norður I Kröflu, eða um
150 manns, þar á meðal Kröflu-
nefnd, verkfræðingar, verktakar
og allir þeir sem unnið hafa við
hinar margvfslegu framkvæmdir
þar, ennfremur fréttamenn.
Verið var að halda reisugildi f
tilefni þess að búið er að setja
þak á stöðvarhúsið.
Jón G. Sólnes formaður Kröflu-
nefndar ávarpaði viðstadda og
bauð alla velkomna. Gat hann
þess að það væri góður íslenzkur
siður að halda reisugildi þegar
vissum árangri væri náð við
mannvirkjagerð, þ.e. þegar þakið
væri komið á. Vissulega væri
þetta merkur áfangi sem nú hefði
náðst og því værum við saman
komin hér í dag til að gleðjast og
minnast þess að vel hefði gengið.
Hann færði öllum sem að þessu
hafa unnið hugheilar þakkir og
kvaðst biðja þess, að gæfa og
gengi fylgdi ætíð Kröfluvirkjun.
Er Jón hafði lokið máli sínu var
öllum boðnar hinar veglegustu
veitingar í mötuneytishúsinu. Þar
sátu menn fram á kvöld og glödd-
ust í góðra vina hópi yfir þeim
jákvæða árangri sem náðst hefur
við byggingu gufuvirkjunar við
Kröflu og sem er raunar algjör
forsenda þess að hægt verði að
halda verkinu áfram næstum
óslitið í vetur. Margir telja að það
sé ævintýri líkast hvað allar fram-
kvæmdir við Kröflu hafa gengið
vel til þessa og þó vissulega hafi
ýmsir örðugleikar verið á veg-
inum. Þakka menn þennan verk-
hraða á ekki lengri tíma dugnaði
Kröflunefndar og þá ekki sízt for-
manni nefndarinnar, Jóni G.
Sólnes. Kristján.
Vestfirðingamót
FÖSTUDAGINN 5. des. verð-
ur Vestfirðingamót að Hótel
Borg og hefst með borðhaldi kl. 7
e.h. Þann dag fyrir 35 árum var
fyrri hluti stofnfundar Vest-
firðingafélagsins í Reykjavfk.
Vill félagið minnast afmælisins á
þennan hátt og væntir þess að
margir Vestfirðingar vilji mætast
á „Borginni" þetta kvöld ásamt
gestum. Akraborgin og góðu veg-
irnir gera Vestfirðingum á Akra-
nesi og Selfossi, f Hveragerði,
Keflavík og öðrum nálægum
stöðum kleift að mæla sér mót við
vini í Reykjavík á Vestfirðinga-
móti á „Borginni“.
Vestfirðingafélagið hélt aðal-
fund í október. Þar var getið
ferðar að Sigöldu, Búrfelli og
Skálholti sem félagið gekkst fyrir.
Rómaður var hlutur séra Eiríks J.
Eirikssonar til að gera ferðina
ógleymanlega, sem minntist
meistara Brynjólfs Sveinsson-
ar í Skálholti, Maríu Markans
sem söng og spilaði á kirkju-
orgelið (hún var gestur fé-
lagsins) og Sveinbjörns Finns-
sonar, ráðsmanns Skálholtsstaðar
sem sá um að hópurinn fékk af-
bragðs mat þar. Ferðin var indæl,
því hópurinn var samvalinn og
samtaka um að skemmta sér.
Austfirðingar eru eins og Vest-
firðingar í mörgum átthagafélög-
um, en nú nýlega yfir-fyllti Aust-
firðingafélagið Hótel Sögu
(súlnasalinn) þegar það hafði
Austfirðingamót, svo Vest-
firðingar ættu að geta fyllt
Borgina eins og oft áður.
Verksmidju
útsala
Aíafoss
Opid þridjudaga 14-19
fimmtudaga 14-21
á útsolunm:
Flækjulopi
Hespulopi
Flækjuband
Endaband
Prjónaband
Vefnaðarbútar
Bílateppabútar
Teppabútar
Teppamottur
Aálafoss hf
MOSFELLSSVEIT
Úr „Menningarsjóði vestf.
æsku“ voru veittar í sumar kr.
130 þúsund til 5 vestfirzkra náms-
manna. Félagið á málverk eftir
Bjarna Jónsson, listmálara, og var
ákveðið að efna til skyndi-
happdrættis á Vestfirðingamót-
inu, þar sem það yrði til sýnis og
afhendingar, einnig tveir far-
miðar til Vestfjarða og hem aftur
með „Vestfjarðaleiðum" o.fl. sem
félaginu hefur verið gefið. t
stjórn félagsins eru Sigríður
Valdemarsdóttir, Sveinn Finns-
son, Þorlákur Jónsson, Þórður
Kristjánsson, Sæmundur
Kristjánsson, Olga Sigurðardóttir
og Guðrún Jónsdóttir. Vara-
stjórn: Ölafur Guðmundsson,
Þórunn Sigurðardóttir og Sigur-
vin Hannibalsson.
Skemmtinefnd og varam:
Gunnjóna Jónsdóttir, Þóra
Böðvarsd., María Gunnarsdóttir,
Haukur Hannibalsson og Þórður
Andrésson.
Happamarkaður og basar er
ákveðinn í mars og er þakksam-
lega tekið við munum sem annars
á að henda og fötum sem ekki eru
lengur hæf, eða þrengja um of
fyrir í fataskápunum. Bið
velunnara félagsins og vini að at-
huga það.
S.V.