Morgunblaðið - 25.11.1975, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NOVEMBER 1975
13
Norrænt samstarf um
eftirmenntun rafiðnaðar
20. nóvember 1975
DAGANA 9. — 11. nóvember s.l.
var haldin að örenás slot f Suður-
Svfþjðð 2. rððstefnan á vegum
Nordisk El-Utbildningskomité
(NEUK), sem tekið hefur fyrir
menntun rafiðnaðar á Norður-
löndum og er nefndin samansett
af fulltrúum vinnumarkaðarins
þ.e. rafvirkja og rafverktaka f
Danmörku, Islandi, Finnlandi,
Noregi og Svfþjðð.
Nefnd þessi hefur starfað í
rúmt ár og unnið að skýrslugerð
um þær menntabrautir, jafnt í
grunnmenntun sem eftirmenntun
rafiðnar, er fyrir eru á Norður-
löndum.
I sambandi við þetta starf vill
ráðstefnan sérstaklega undir-
strika að samtök hvers lands leggi
á það þunga áherslu, að grunn-
menntun rafiðnaðarmanna sé
ávallt í endurskoðun, þannig að
menntun þeirra sé í fullu sam-
ræmi við þá öru tækniþróun sem
á sér stað á sviði rafiðnar.
Þá bendir og ráðstefnan á að
með vel skipulagðri eftirmenntun
sem sé i höndum aðila vinnu-
markaðarins, sé hægt að ná því
þekkingarstigi, sem nauðsynlegt
sé fyrir rafiðnaðarmenn, vegna
vaxandi notkunar raforku og
sjálfvirkni og þá sérstaklega á
sviði stýritækni i nýjúm atvinnu-
tækjum í iðnaði fiskiskipum, fisk-
iðnaði, landbúnaði og þjónustu-
iðnaði.
Samþykkt var að NEUK starf-
aði áfram með jafnri þátttöku
allra Norðurlanda og fylgdist vel
með þeim breytingum sem unnið
er að á verkmenntun rafiðnar i
hverju landi, gerði skýrslu um
möguleika og samstarf eftir-
menntunar á Norðurlöndum,
ásamt samvinnu um nýjungar og
um samræmingu á námsefni á
Norðurlöndum.
Til viðbótar því er að framan
greinir má geta þess, að hér á
íslandi hefur verið starfandi
Eftirmenntunarnefnd rafiðnar
sem er samstarfsnefnd raf-
verktaka og rafvirkja um nám-
skeiðahald fyrir rafiðnaðarmenn.
Nefndin hefur í gegnum
norrænt samstarf fengið fullan
aðgang að námskeiðum viðsvegar
um landið með þátttöku um 240
rafiðnaðarmanna.
Þessum árangri tókst að ná
vegna öflugs stuðnings stjórn-
valda og þá sérstaklega iðnaðar-
ráðherra og iðnaðarráðuneytisins.
Með samstarfi þessu hefur
sparast mikið fé, þar sem Danir
hafa um árabil lagt mikla vinnu
og háar fjárhæðir í gerð slíkra
eftirmenntunarnámskeiða, en
með námskeiðum þessum er
stefnt að þvi að gefa eldri raf-
virkjum kost á því að bæta við sig
þvi nýja sem kemur inn í iðn-
námið eftir að þeir ljúka skóla og
að kenna nýjungar, sem ekki hafa
verið teknar upp i grunnnámið í
iðnskólanum.
Aðsókn sú, sem verið hefur að
þessum námskeiðum hér, hefur
sannfært menn um hversu mikil
þörf er á slíkri eftirmenntun og
að ekki megi stöðva þá uppbygg-
ingu sem þegar er hafin.
Fréttatilkynning.
r
Sparið
óþægindin
í vetur!
ÖRYGGISATRIÐI
ERU
YFIRFARIN I
VETRARSKOÐUN
SKODA
VERÐ KR:
5.900.
1. Vélarþvottur 24. Mældur rafgeymir.
2. Stilltir ventlar. 25. Hreinsuð rafgeymasámbönd.
3. Hert strokklok (head). 26 Stillt kúpling.
4. Hreinsaður og stilltur blöndungur 27. Smurð kúplingslega. 26. Ath. Slit i stýrisupphengju.
5. Ath. bensínslöngur. 29. Ath. Slit í spindlum.
6. Hreinsuð gruggkúla. 30. Ath. Slit i miðstýrisstöng.
7. Hreinsuð bensindaela 31. Ath. Slit I Stýrisvélu.
8. Ath. Kerti. 32. Ath.Hemlarör
9. Þjöppunarmæling. 33. Ath. Magn hemlavökva.
10. Stilltar platinur. 34. Jafnaðir hemlar.
11. Ath. Kveikjuþéttir. 35 Ath. Handhemill.
12. Ath. Kveikjuþræði. 36 Ath. Þurrkublöð og armar.
13. Ath. Kveikjulok og hamar. 37. Ath. Rúðusprautur.
14 Kveikja smurð. 38. Ath. Ljós.
15. Vatnsdæla smurð. 39 Hurðarskrár og
16. Ath. Viftureimar. læsingar smurðar.
17. Smurðar legur við kælivlftu. 40. Bensingjöf smurð.
18. Ath. Loftsíu. 41. Girkassaþéttingar. Ath. v/leka
19. Mældur frostlögur. 42. Ath. Miðstöð.
20. Hert botnpanna. 43. Loft í hjólbörðum og slit ath.
21. Ath. Vélarþéttingar v/leka. ^4. Ath. Olia á vél.
22. Ath. Kælikerfi v/leka. 45. Reynsluakstur.
23. Mæld hleðsla.
c SKODA VERKSTÆÐIÐ
AUÐBREKKU44-46 KOPAVOGI a
SIMI 42604
osc
^ W W W ■ ■ kynmngarvero á Panther
gjafakassa. Verðlækkun kr. 3.500.—
BOSCH
Tilvalin jólagjöf, takmarkaðar birgðir
COMBI
mriai Lf
Reykjavík, Akureyri
umboðsmenn víða.
[jóðum nú viðarklæðningu á veggi, í loft
og á gólf. Verðið er hagstætt.
Viðarþiljuverðið hið hagstæðasta
á markaðinum, vonum við.
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yöur óhætt
viðarfrilpir panell
tlSFlfPf
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
KÓPAVOGS SF
NÝBÝLAVEGI 8 SIMI:41000
TIMBURSALAN KÁRSNESBRAUT 2
BYKO