Morgunblaðið - 25.11.1975, Page 18
18
MORGUNBLAÐJÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NOVEMBER 1975
Látnir þco sér
í miðjum leik!
I leik Leiknis og ÍBK f 2. deild-
inni á sunnudaginn bar það til f
miðjum seinni hálfleiknum að ÖII
Ijós voru slökkt f salnum f
fþróttahúsinu í Njarðvík. Vildu
forráðamenn hússins að leiknum
vrði hætt, þar sem leikmenn
liðanna höfðu brotið bann um
notkun klfsturs f leiknum. Eftir
nokkurt þref var þó sætzt á að
leikmenn skyldu þvo sér vendi-
lega um hendur og að þvf loknu
hófst leikurinn að nýju og tókst
að ljúka honum án frekari trufl-
ana.
Leiknir sótti þarna tvö stig til
Keflavíkur, en úrslitin urðu 17:15
eftir að Keflvíkingar höfðu leitt í
hálfleik 8:7. Sigur gestanna var
sanngjarn í þessum leik, þeir
voru greinilega sterkari aðilinn
og hefði sigur þeirra í rauninni
Fylkir vann
Breiðablik
FYLKIR sigraði Breiðablik með
22 mörkum gegn 19 i leik lið-
anna i 2. deildar keppni fslands-
mótsins i handknattleik, sem
fram fór i íþróttahúsinu Ásgarði i
Garðahreppi á sunnudaginn. Má
segja að leikurinn hafi farið fram
i kyrrþey, þar sem mótanefnd
HSÍ láðist að tilkynna breyttan
leiktima.
Fylkismenn voru betri aðilinn í
leiknum og höfðu jafnan forystu.
Staðan i leikhléi var 12 —10 fyrir
Fylki, og yfirleitt munaði 3—4
morkum. Olli Fylkisliðið nokkrum
vonbrigðum i leiknum, en hins
vegar átti Breiðablik nokkuð
þokkalegan leik og er greinilega
að ná sér á strik undir hand-
leiðslu þjálfara sins, Gisla Blönd-
al. Beztu menn Fylkisliðsins i
leiknum voru þeir Einar Ágústs-
son og Sigurður Simonarson. en i
liði UBK bar einna mest á Daníel
Þórissyni.
getað orðið stærri. Það var þó
ekki fyrr en undir lok leiksins að
Leiknismenn náðu afgerandi for-
ystu, en liðin höfðu þá skipzt á um
að vera yfir. Breytti Leiknir þá
stöðunni úr 12:12 í 17:12 og þó svo
að IBK gerði þrjú síðustu mörk
leiksins, þá varð sigri Leiknis
ekki ógnað.
Hermann Gunnarsson var
sterkastur leikmanna Leiknis i
þessum leik og gerði hann átta
mörk. Þá var Marteinn Geirsson
sterkur í vörninni og mark-
verðirnir Finnbogi og Reynir
stóðu vel fyrir sínu. Annars
verður það að segjast um lið
Leiknis að flestir leikmenn þess
hafa áður leikið betur.
Helgi Ragnarsson FH-ingur
þjálfar nú Iið IBK og mun hann
leika með liðinu í vetur. Fyrsti
leikur hans var á sunnudaginn og
var hann mjög frískur í spili
liðsins.
IWörk Leiknis: Hermann 8, Haf-
liði 6, Diðrik 2, Marteinn 1.
Mörk IBK: Grétar 4, Helgi 3,
Guðmundur 3, Sigurður 2, Sigur-
björn 1, Sævar 1, Einar 1. —áij
Kristinn er þarna kominn frfr inn á Ifnu og skorar fyrir KR-inga. Brynjólfur Markússon og Hifmar
Björnsson fylgjast með framvindu mála.
IR-ingar á grœnu Ijósi
eftir hörkideik viðKR
ANNAR eins darraðardans hefur
ekki lengi sézt á fjölum Laugar-
dalshallarinnar og undir lokin f
leik tR og KR í 2. deildinni á
sunnudagskvöldið. tR-ingarnir
unnu þennan leik örugglega
26:17 og eru þeir nú komnir með
örugga forystu f 2. deildinni. Þeir
léku mjög skemmtilegan hand-
knattleik f fyrri hálfleiknum, en f
lok seinni hálfleiksins hljóp
mikil harka f leikinn, högg,
hrindingar og pústrar voru þá
vinsælli „fþróttir" en handknatt-
leikurinn og sumir leikmenn lið-
anna eins og trúðar f sirkus.
Fyrirfram var búist við að þessi
leikur yrði mun jafnari en raunin
varð. ÍR og KR ásamt KA hafa af
flestum verið talin sigurstrang-
legust í 2. deildinni og talin
standa nokkurn veginn jafnfætis
að getu. Nú hafa iR-ingarnir hins
vegar lagt bæði þessi lið og ef
liðið heldur áfram að auka getu
sína eins og hingað til þá getur
fátt komið í veg fyrir sigur þeirra
i deildinni.
Þeir byrjuðu leikinn gegn KR
Ármannss lú lkur nar betri
og unnn Breiðablik 14-10
Jóhanna Halldórsdóttir skoraðl 8 mörk f leiknum við Vfking úr
hraðaupphlaupum og þegar þessi mynd var tekin var Jóbanna að
senda knöttinn yfir Sigríði Sveinsdóttur, markvörð Vfkings.
Valur kafsigldi KR
á fyrstu mínútunum
SOFANDAHATTUR og deyfð í
KR-liðinu gaf Val 5:0 forystu á
örfáum mfnútum og eftir það áttu
KR-stúlkurnar sér aldrei við-
reisnar von f leik liðanna f 1.
deild kvenna á sunnudaginn. Ur-
slit leiksins urðu 18:10 fyrir Val,
en í leikhléi var staðan 8:4.
Ekki verður sagt að þessi leikur
hafi verið góður hjá liðínum.
Mikið var um mistök á báða bóga.
Þessi lið geta bæði betur en þau
sýndu á sunnudaginn og Valsliðið
verður örugglega á toppnum í 1.
deild kvenna eitt árið enn. KR-
liðið verður hins vegar sennilega
um miðja deild í ár.
Sigrún Guðmundsdóttir var
fremst í flokki Valskvenna nú
sem endranær, minna bar á Ragn-
heiði en oft áður, en Björg var
hins vegar lífleg í þessum leik.
Harka var nokkur í leiknum og
var t.d. tveimur Valskonum vísað
af velli samtímis í leiknum en
slíkt telst til undantekninga í
kvennahandknattleiknum. Han-
sína var einna drýgst KR-inga í
leiknum, en annars er liðið skipað
tiltölulega jöfnum stúlkum.
Mörk Vafs: Sigrún 7, Harpa 4,
Björg 2, Hildur 2, Ragnheiður,
Halldóra og Elfn 1 hver.
Mörk KR: Hansína 5, Hjördís 2,
Sigrún, Ellý og Hjálmfríður 1
hver. — áij.
ARMANN vann sigur f leik sín-
um við Breiðablik f 1. deildar
keppni kvenna f handknattleik,
er liðin mættust f Iþróttahúsinu
Asgarði f Garðahreppi á sunnu-
daginn. 14—10 urðu úrslit leiks-
ins og verða þau að teljast nokkuð
sanngjörn, þar sem Armannsliðið
var greinilega betri aðilinn, og
sýndi oft allgóð tilþrif f leik sín-
um.
I Ármannsliðinu eru nokkrar
stúlkur sem vafalitið eru i
fremstu röð islenzkra handknatt-
leikskvenna. Þar má fyrst nefna
Erlu Sverrisdóttur, sem hefur
betri skot en flestar aðrar íslenzk-
ar handknattleikskonur, og gerði
t.d. eitt mjög fallegt mark í þess-
um leik með skoti utan frá
punktalínu. Aðrar stúlkur í Ár-
mannsliðinu sem eru góðar eru
Guðrún Sigurþórsdóttir og Þór-
unn Hafstein, sem báðar geta
brotizt í gegn og skorað.
í Breiðabliksliðinu voru það
Sigurborg Daðadóttir og Kristín
Jónsdóttir sem áttu einna beztan
leik, enlítiðbar ástórstjörnu liðs
ins, öldu Helgadóttur, skoraði
aðeins eitt mark i leiknum.
MÖRK ÁRMANNS skoruðu:
Erla Sverrisdóttir 5 (3 víti), Guð-
rún Sigurþórsdóttir 3, Þórunn
Hafstein 2, Auður Rafnsdóttir 2,
sýnt í leikjum sínum með IR í
vetur og þá ekki sizt i leiknum
gegn KR. Hann var ásamt Ágústi
Svavarssyni og Brynjólfi Markús-
syni sterkasti maður liðs síns og
það var athyglisvert í þessum leik
hve skotanýting þeirra tveggja
síðastnefndu var góð I leiknum.
KR-ingar léku undir getu í
þessum leik. Varnarleikurinn var
alltof hikandi og markvarzlan
engin i leiknum. I sókninni var
Hilmar Björnsson sá sem eitthvað
reyndi en hann gerði þó alltof
margar vitleysur í leiknum.
Símon Unndórsson tók góðan
sprett um miðjan seinni hálf-
leikinn, en sást svo tæpast meir i
leiknum. Það var helzt að Þor-
varður Guðmundsson kæmist vel
frá leiknum.
Dómarar i þessum leik voru
þeir Björn Kristjánsson og Óli
Olsen og var langt I frá að þejr
sýndu dómgæzlu samboðna milli-
ríkjadómurum.
Mörk ÍR: Ágúst 8, Brynjólfur 7,
Bjarni 4, Hörður 2, Sigurður
Anna Gunnarsdóttir 1, Sigríður Sigurðsson, Sigurður Svavarsson,
af miklum krafti og komust fljót-
lega í 7:3, síðan mátti sjá tölur
eins og 11:4 á töflunni og i leik-
hléi var staðan 13:8. KR-ingarnir
byrjuðu seinni hálfleikinn mjög
vel og náðu að minnka muninn
niður í þrjú mörk, 14:11, og síðan
16:13, en siðan ekki söguna meir.
ÍR-maskinan fór aftur í gang og á
siðustu mínútunum skoraði Iiðið
10 mörk gegn 4.
ÍR-liðið hefur ekki í Iangan
tima verið eins sterkt og um
þessar mundir og væri landsliðs-
nefndinni óhætt að lita aðeins
niður fyrir sig í leit að landsliðs-
kandidötum. Jens Einarsson
markvörður IR stendur t.d. beztu
markvörðunum í 1. deild örugg-
lega ekki að baki. Það hefur hann
Brynjólfsdóttir 1.
Mörk UBK: Kristin Jónsdóttir 4
(3 víti), Sigurborg Daðadóttir 2,
Hrefna Snæhólm 2, Jóna Þorláks-
dóttir 1, Alda Helgadóttir 1. Stjl.
Gunnlaugur og Úlfar 1 hver.
Mörk KR: Hilmar 8, Simon 5,
Þorvarður 2, Kristinn og Ásgeir 1
hvor.
— áij.
Vðrói^konumar höfðu
lítið í Fram að gera
ÞÆR þurftu ekki að hafa mikið
fyrir sigri sínum gegn Vfkingi
á sunnudaginn Framstúlkurn-
ar. Án þess að nota sitt sterk-
asta lið nema Iftinn hluta leiks-
ins varð munurinn 14 mörk
þegar yfir lauk, 21:7, en f leik-
hléi var staðan 12:3.
Það vantar mikið á að Vík-
ingsliðið sé gott um þessar
mundir, enda hefur liðið misst
nokkra af sínum beztu leik-
mönnum og þó að ungu stúlk-
urnar, sem komið hafa i saðinn,
séu lofandi, þá vantar þær auk-
ið áræði og reynsli til að hafa
nokkuð í hendurnar á sterkustu
liðum 1. deildarinnar að gera.
Framliðið er hins vegar frísk-
ara en fyrr og er líklegt til
stórra afreka í vetur. Jóhanna
Halldórsdóttir var í miklum
ham á sunnudaginn og skoraði
þá 8 mörk, flest úr hraðaupp-
hlaupum.
Mörk Fram: Jóhanna 8, Arn-
þrúður 5, Guðrún, Helga og
Oddný 2 hver. Jenný Magnús-
dóttir og Jenný Magnúsdóttir
(yngri og eldri!) gerðu 1 mark
hvor.
Mörk Vfkings: Astrós 3,
Ragnheiður 2, Anna og Guðrún
1 hvor. — áij.