Morgunblaðið - 25.11.1975, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÖVEMBER 1975
Bergþór Sigurbjörns-
son — Minningarorð
Bergþór Sigurbjörnsson and-
aðist á Elliheimilinu Grund að
kvöldi mánudagsins 17. nóvem-
ber. Bergþór var fæddur 2. júlí
1891 að Svarfhóli i Laxárdal. For-
eldrar hans voru hjónin Sigur-
björn Bergþórsson bóndi á Svarf-
hóli og Guðbjörg Kristín Guð-
brandsdóttir. Þau áttu auk Berg-
þórs, Guðbrand, Guðrúnu,
Þorstein, Gísla og Margréti.
Þeirra eru Guðrún og Þorsteinn á
lífi. Hin eru fyrr farin.
Ungur fluttist Bergþór frá
Svarfhóli til Reykjavíkur, þangað
sem hann átti eftir að vera megin
þorra ævinnar. Hann vann alls
konar verkamannavinnu um sína
daga, auk þess var hann ágætur
bókbindari, en til þess hafði hann
lært. Ekki tók hann ávallt mikið
fyrir vinnu sína enda hafa margir
af hans kynslóð átt erfitt með að
átta sig á breyttu gildi peninga.
En hann sá fyrir sér og þurfti
ekki að vera upp á aðra kominn,
þótt veraldiegur auður hans yrði
aldrei voðalega stór. Mölur og ryð
fá ei grandað sjóðum hans. Hið
dýrmæta er hann átti var í sjálf-
tim honttm fólgið. Hjartað var
gull.
Bergþór var svo mikið barn
síns tíma, að nýir tímar og
siðir ttiltiigttstu aldar breyttii
iionum lítið. Oft gekk hann ekki
troðnar sióðir og var því ein-
samall á ferð og varð að vera
sjálfum sér nógur. Hann var iíka
tryggari þeim er hann þekkti en
nú er venjulegt; og naut þess að
vera á meðal ættingja sinna og
vina. Þá varð þessi annars hlé-
drægi maður glaður og reifur, og
ræðinn, með eigin álit á hiutun-
um.
Bergþór var afar trúaður
maður, og kom það vel í ljós í
daglegri háttsemi hans alla ævi,
en bezt og mest er hann æðrulaus
tók örlögum sínum; þeim að
deyja.
Bergþór kvæntist aldrei og átti
ekki börn. Heimili hans siðustu
árin var Elliheimilið Grund. Þar
líkaði honum vel og öðrum við
hann. Vinum hans þar og annars
staðar og ættingjum, sériega syst-
kinunum, Þorsteini og Guðrúnu
sendi ég samúðarkveðjur.
Asthildur Pétursdótt-
ir Isafirði — Minning
Hvíli Bergþór Sigurbjörnsson í
friði.
Björn Magnússon.
Fædd: 23. júlí 1957.
Dáin: 18. nóvember 1975.
Það var að morgni þriðjudaginn
18. nóv. að helfregnin kom,
„Hilda dó f nótt.“ Aðeins 2 vikur
voru liðnar síðan hún brosti svo
hreykin og glöð yfir litlu dóttur
sinni. Aðeins 4 daga var hún
heima, þá veiktist hún og var flutt
á sjúkrahúsið á ísafirði, rétta
viku lá hún þar, þá var hún
skorin, en ekki dugði það og nú er
hún dáin. Það er erfitt að skilja að
Hilda sé farin, aðeins 18 ára að
aldri, en minningin um hana mun
Valgerður Þorvarðar-
dóttir — Minning
I dag fer fram frá Há-
teigskirkju útför Valgerðar Þor-
varðardóttur, en hún lézt f
Borgarspítalanum 16. þ.m. eftir
langvarandi baráttu við illkynja
sjúkdóm.
Valgerður fæddist að Norður-
Hvammi í Mýrdai, sem þá var
prestssetur, 6. nóvember 1908 og
var fimmta barn foreldra sinna af
8, þeirra séra Þorvarðs Þorvarðs-
sonar og Andreu Eiisabetar Þor-
varðardóttur frá Litlu-Sandvík í
Flóa. Árið 1911 fluttist fjöiskyld-
an til Víkur í Mýrdal. Þar ólst
Valgerður upp og gekk i ungl-
ingaskóla eins og margir ungl-
ingar í Vík á þeim árum. Séra
Þorvarður hlaut áföll siðustu
starfsár sin við ástvinamissi.
Yngsta barnið, Sigurgeir, lézt á
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma
INGIBJÓRG BJÖRNSDÓTTIR
Vesturgotu 29
andaðist á Reykjalundi laugardaginn 22. þ m
Sigríður Þórðardóttir, Magnús Þ. Torfason og börn.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
INGIMUNDUR ÞORSTEINSSON
kennari,
Kársnesbraut 11,
Kópavogi
lézt á Borgarspitalanum laugardagmn 22 nóvember sl
Guðmunda Kristjánsdóttir
og börnin.
+
Jarðarför mannsins míns,
LÁRUSAR GUÐMUNDSSONAR.
kennara,
verður gerð frá Fossvogskirkju. miðvikudaginn 26 nóvember kl 3
síðdegis.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Sigríður Jónsdóttir.
+
Ástkaer eiginmaður mmn
BRAGI ÓLAFSSON,
verkfræðíngur
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudagmn 26 nóv kl
13 30
Fyrir hönd barna, tengdadóttur. sonarsona og systkina
Marta Ólafsson.
+
Útför
VALGERÐAR ÞORVARÐARDÓTTUR
Miklubraut 78,
verður gerð frá Háteigsktrkju i dag kl 1 3.30
Guðmundur Bjarnason, Edda Ingólfsdóttir,
Vatgarður Bjarnason. Jóna Gunnarsdóttir.
Þorvarður Þorvarðarson, Hjörtur Þorvarðarson.
Kristján Þorvarðarson, Jón Þorvarðarson,
Svanhildur Þorvarðardóttir.
eliefta ári 1924, eiginkonan 1929
og sonurinn Þórður 193Q tvítugur
að aldri, þá við nám í Reykjavík.
Af þeim systkinum eru nú á lífi
Þorvarður fyrrv. aðalféhirðir
Seðlabankans, Hjörtur fyrrv.
verzlunarmaður f Vfk, Kristján
læknir í Reykjavík, sr. Jón,
sóknarprestur i Háteigspresta-
kalli og Svanhildur frú í Reykja-
vík.
Eftir lát móöur sinnar sá Val-
gerður um heimili föður síns
næstu fjögur árin, en eftir það
var hann á heimili sonar síns og
tengdadóttur í Vík til dánar-
dægurs 1948.
Um tvitugsaldur var Valgerður
við nám í hússtjórnardeild
Kvennaskóians í Reykjavfk. Eftir
að hún fluttist frá Vík var hún
næstu árin við störf í Reykjavik,
en árið 1946 fór hún til Svíþjóðar
og var næstu þrjú árin f Stokk-
hólmi við nám og störf á barna-
heimilum.
Árið 1952 giftist hún Bjarna
Guðmundssyni klæðskerameist-
ara, hinum mætasta manni, en
hann hafði árið 1950 misst konu
sína, Bjarnheiði Frímannsdóttur
frá tveim sonum á barnsaldri,
Guðmundi og Valgarði. Áttu þau
Bjarni og Valgerður fagurt og
fágað heimili, og munu margir
minnast ánægjulegra stunda þar.
Valgerður var hin myndarlegasta
húsmóðir og annaðist heimilið af
kostgæfni. Hún lét sér annt um
framtíðarheill stjúpsonanna og
fjölskyldna þeirra eftir að þeir
höfðu stofnað eigin heimili. Hún
naut einnig mikillar umhyggju
þeirra og eiginkvenna þeirra.
Mann sinn missti Valgerður
haustið 1963.
Seinni árin starfaði hún mikið í
Kvenfélagi Háteigssóknar og var
undanfarin ár i stjórn sem gjald-
keri. Hún var góðum gáfum
gædd, ákveðin í skoðunum sam-
fara ríkri ábyrgðartilfinningu og
traust f hvívetna. Við systkina-
börnin áttum góða frænku, sem
hafði vakandi áhuga á velfarnaði
okkar og fjölskyldna okkar. Við
kveðjum hana með þakkarhug.
Ölafur Jónsson.
+
Móðir min og tengdamóðir,
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR.
Tjaldanesi 3.
GarSahreppi.
andaðist i Landspítalanum 22 nóvember
Helga Benediktsdóttir, Kristján Óli Hjaltason.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir
JÓHANNES J. KRISTJÁNSSON,
leigubílstjóri,
Langholtsvegi 101,
lézt á Borgarspitalanum sunnudaginn 23. nóv
Unnur Guðmundsdóttir,
Sigurþór Jóhannesson,
Kristrún Jóhannesdóttir,
Kristján Magnússon,
Ingibjörg Kristjánsdóttir.
+
Útför
BERGÞÓRS SIGURBJÖRNSSONAR,
er andaðist 17 nóvember, fer fram frá Fossvogskirkju 25 nóvember
kl 1.30
Vandamenn.
Eiginmaður minn
+
EINAR MAGNUSSON,
verksmiSjustjóri,
SeySisfirSi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 26 þ.m. kl
1 3 30 Blóm vinsamlega afþökkuð Þeir sem vilja minnast hins látna
láti Krabbameinsfélagið njóta þess
Jarþrúður Karlsdóttir.
lifa með þeim sem kynntust
henni.
Við eigum Hildu mikið að
þakka; alitaf var hún boðin og
búin ef til hennar var leitað.
Aldrei sagði hún nei, væri hún
beðin að passa, „já, já, ég er
ekkert að gera,“ var svarið. „Hver
á að passa okkur?“ spurðu börnin,
„á ekki Hilda að passa okkur?“
Þau voru örugg ef Hilda var hjá
þeim.
Sólin hefur gengið niður á
heimili Eniku og Péturs, en við
vitum að hún rís aftur, Iitla
dótturdóttirin á eftir að ylja upp
heimilið og veita frið og gleði. Við
verðum að sætta okkur við að sjá
Hildu aldrei framar, en við
þökkum af aihug fyrir kynnin og
það sem hún gerði fyrir okkur og
börnin.
Hún verður jarðsett frá Isa-
fjarðarkirkju f dag 25. nóvember.
Litlu dótturinni, foreldrunum
Enu og Pétri, bræðrum hennar
Inga og Kitta, og öðrum aðstand-
endum vottum við okkar dýpstu
samúð og biðjum Guð að styrkja
þau f sorg þeirra.
Fjölskyldan
Seljalandsvegi 76.
— Sjötugur
Framhald af bls. 5
undur. Lífsviðhorfum sínum lýsir
hann f áðurnefndum -bókum. Það
er hollur lestur. I einveru á fjöll-
um og samfélagi við náttúruna,
sem óvíða býr yfir öðru eins seið-
magni og á Snæfellsnesi, við ræt-
ur hins „heilaga fjalls," hefur
hann skynjað leyndardóma og
orðið fyrir áhrifum og reynslu,
sem fáir upplifa á ævinni. Þessu
lýsir hann t.d. í eftirfarandi
erindi, þvf að hann hefur ekki
vanrækt ljóðadísina með öliu
heldur:
I þögn á fjöllum,
þar er maður einn,
f þögn ð fjöllum
steinn og lyng fær mál,
og aðeins þar er
hljómur iffsins hreinn
og heilagt guðspjall
lesið vorri sál.
Og sfðast en ekki sízt er maður-
inn sjálfur þeirrar gerðar, að öll-
um, sem kynnast honum, hlýtur
að verða vel til hans. Hjartalag
hans er svo hreint og hlýtt, að frá
honum geislar góðvild til alls og
allra. Hann er hafsjór af fróðleik,
sögumaður ágætur og því aufúsu-
gestur hvar sem hann kemur. Ég
veit að margir sem þessar línur
lesa, hugsa hlýtt til hans í dag,
eins og endranær, og óska honum
allra heilla.
Vfglundur Möller
+
Maðurinn minn og faðir okkar
KALMAN S. HARALDSSON.
vélsmiður,
andaðist á Borgarspitalanum 24
nóvember
Auður Hjálmarsdóttir
og börn.
Útiaraskreylingar
blómciual
Groðurhúsið v/Sigtun simi 36779